Síða 1 af 1

WOW vandræði, alltaf að frjósa :(

Sent: Fös 20. Maí 2005 13:13
af wICE_man
Ég ákvað að gera þá vitleysu á dögunum að kaupa mér World of Warcraft. Eftir að hafa sett upp leikinn og uppfært taldi ég mig vera í góðum málum spilaði vandræðalaust í eina tvo tíma og skemmti mér bara vel.

Næsta skipti sem ég keyrði leikinn fraus tölvan skyndilega eftir nokkrar mínútur af spilun. Ég hélt kanski að þetta væri vegna óstöðugrar yfirklukkunar og stillti tölvuna á grunnstillingar. Ekkert breyttist, á einhverju random bili frís tölvan, þetta eru yfirleitt 5-15mín spilun.

Semsagt frekar fúlt.

Hafa einhverjir aðrir lent í svipuðu og ef svo er, hver er þá lausnin?

Sent: Fös 20. Maí 2005 13:27
af hahallur
Vonum að þetta verði til þess að þú endurheimmtir líf þitt aftur :lol:

Nei bara nett grín :wink:

Sent: Fös 20. Maí 2005 15:18
af Snorrmund
hahallur skrifaði:Vonum að þetta verði til þess að þú endurheimmtir líf þitt aftur :lol:

Nei bara nett grín :wink:
Heheh.. mér finnst sumir..(sem ég þekki) Spila alltof mikið.. með kannski 20-30 daga í PLAYTIME! En hvað getur maðurinn sagt sem er að fara að lana yfir alla helgina :) Annars ef ég man rétt þá ertu með góðan vélbúnað wIceman .. Þannig að eina sem ég þori að skíta á er leikurinn .. Eða stýrikerfi/driver? er þetta aldrei á sama stað? en annars

LEEEEEEEEEEEEEEEEEEEROOOOOY JEÖÖRKIIIINS! :)

Sent: Fös 20. Maí 2005 16:54
af Yank
Spila ekki þennann leik.

En hef svo sem lent í því að fikt við OC skemmi einhverja file í windows, driverum eða jafnvel einstökum leikjum. Þannig bara hugmynd, setja allt á stock, út og inn með drivera, leikinn osfv.

Sent: Fös 20. Maí 2005 19:54
af Mencius
Þessi leikur er víst alltaf að frjósa og serverarnir að hrynja. Allavegana félagi minn sem spilar þennan leik segði mér það og ég var hjá honum um daginn og hann hrundi og fraus hægri vinstri á meðan ég var hjá honum.

Sent: Fös 20. Maí 2005 20:34
af hahallur
Já getur verið útaf of háu vcore-i hjá þér, sá að það var allveg 1.8v.
Eins og allir td leikir sem ég hef átt frá Ubisoft hafa ekki startað sér eða fronsa eftir smá það vcore er komið í 1.6+

Prófaðu að setja það í deafult og gáðu hvort þetta lagist ekki.

Sent: Lau 21. Maí 2005 14:01
af Icarus
Borgar sig ekkert að spila þennan leik, ég keypti mér hann, varð alveg háður og einkunnirnar mínar hrundi í bókstaflegri merkingu, hæsta einkunin mín í lokaprófunum núna var 6...

Ennþá með account active en hef núna ekki farið í leikinn í nærri því viku og stefni ekkert á að fara á hann á næstunni :)

Sent: Lau 21. Maí 2005 18:36
af CraZy
ja svona eru þessir mmorpg leikir :?
var háður eve á sínum tíma *hrollur*

Sent: Mán 23. Maí 2005 23:46
af wICE_man
Ég er ekki orðinn háður ennþá og efast um að ég verði það, en það er ágætt að dunda sér í honum.

Sent: Lau 28. Maí 2005 02:02
af biggi1
wow er snilld! að vera með félögunum á vent eða eitthvað og spila er svakalega gaman!, og í sambandi vin einkunnir í skólanum þá .... hmm jahhh


Mencius skrifaði:Þessi leikur er víst alltaf að frjósa og serverarnir að hrynja. Allavegana félagi minn sem spilar þennan leik segði mér það og ég var hjá honum um daginn og hann hrundi og fraus hægri vinstri á meðan ég var hjá honum.


það er bara útaf því að hann er öruglega á high populaited server, eins og Burning blade, þar sem allir íslendinarnir eru, en ég er á t.d. Dragonblight, og hann er stöðugur og fínn, en Burning blade er alltaf hrinjandi

svo vil ég benda öllum wow nördum á test relmin sem eru snilld!- https://test.worldofwarcraft.com/en/login/login?service=http%3A%2F%2Ftest.worldofwarcraft.com%2Fen%2Fcopy%2Fcharacter-copy.html