Síða 1 af 1
MX 1000 Fyrir leikina??
Sent: Mán 21. Feb 2005 23:11
af Pepsi
Hvað segið þið leikjagúrúin? Er eitthvað vit í að fá sér MX1000, væri nefnilega andskoti gott að hafa þráðlaust...........
Sent: Þri 22. Feb 2005 03:09
af Ice master
Ég hef prufað mx1000 i hl 2 og cs:S og það var alveg frábært
Sent: Þri 22. Feb 2005 11:20
af Yank
Kannski gamaldags en er á því að þráðlaust og leikir fari ekki saman. Hef þó enga reynslu af þessari mús.
Sent: Þri 22. Feb 2005 12:47
af CraZy
þráðlaust er bara svo mikklu betra ekki einhver snúra fyrir manni alltaf
Sent: Þri 22. Feb 2005 13:10
af Fletch
ég hef notað bæði mx700 og mx1000, þær eru báðar mjög góðar í leiki, ekkert delay...
Eina við þær að þær eru töluvert þyngri en venjulegar mýs, getur tekið tíma að venjast því
Fletch
Sent: Þri 22. Feb 2005 18:48
af kemiztry
Ef menn nota lágt sens í CS þá er MX1000 alveg vonlaus mús
Þar á ég við að ef maður lyftir henni smá upp þá slokkar á geislanum og er það ekki alveg að virka fyrir mig
Að öðru leyti er hún brilliant.. kannski svoldið þung en maður sættir sig við það sérstaklega þar sem rafhlaðan getur verið að endast manni í mánuð án þess að þurfa að hlaða hana
Sent: Þri 22. Feb 2005 19:27
af urban
kemiztry skrifaði:Ef menn nota lágt sens í CS þá er MX1000 alveg vonlaus mús
Þar á ég við að ef maður lyftir henni smá upp þá slokkar á geislanum og er það ekki alveg að virka fyrir mig
Að öðru leyti er hún brilliant.. kannski svoldið þung en maður sættir sig við það sérstaklega þar sem rafhlaðan getur verið að endast manni í mánuð án þess að þurfa að hlaða hana
hmmm þá get égekki notað hana.....
er kominn í 1.4 í sens og er alltaf að fara neðar
Sent: Þri 22. Feb 2005 20:20
af CraZy
hehe eg er að nota 9 í sens
reindar í ET
Sent: Þri 22. Feb 2005 20:25
af kiddi
Ég gaf pabba mína MX1000, ég er fótósjoppari m.a. og mér tókst ekki að venjast henni á einum mánuði... fór í MX510 sem er my all time favourite mús.
Sent: Fim 24. Feb 2005 15:02
af StarDu$t
ég á þessa mx1000 og hún sökkar í 1. person skotleiki.
ég nota bara gömlu góðu trust músina mína, mæli sterklega með henni mjög þægilegt grip á henni, geislinn kannski ekki upp á sitt besta en hver vill hafa of nákvæma mús....
http://trust.com/products/product.aspx?artnr=12523
Sent: Fim 24. Feb 2005 15:41
af zaiLex
StarDu$t skrifaði:ég á þessa mx1000 og hún sökkar í 1. person skotleiki.
ég nota bara gömlu góðu trust músina mína, mæli sterklega með henni mjög þægilegt grip á henni, geislinn kannski ekki upp á sitt besta en hver vill hafa of nákvæma mús....
http://trust.com/products/product.aspx?artnr=12523
Allt frá trust er rusl í minni orðabók.. MS 3.0 er besta mús í heimi áður en snúran á henni fer að losna og hún missir samband. Maður þarf bara að fara extra vel með hana
annað en ég gerði. MS 4.0 er líka frábær fyrir utan skrollið það er big nono í leikjum, en annars frábært fyrir að skrolla á netinu, hún er líka með hliðarskroll sem ég hef þurft að nota EINU sinni og ég hef átt músina í ár eftir 2 mán.
Sent: Fim 24. Feb 2005 23:04
af Ragnar
Ég mæli með Razor Daimondback 1600dpi. Ég sjálfur á ekki svona mús en ætla líkelga að fá mér. Félagi minn á svona og hún er algjör snilld.
Ps. Svo mæli ég með Allsop músa mottum 1.200kr í Tölvuvirkni
.