Síða 1 af 2

HL2 demo vandamál.

Sent: Mið 12. Jan 2005 16:46
af Snorrmund
Jæja.. mig langaði svoldið að prófa HL2 demoið en það vill ekkert virka helv. Draslið,, kemur svona valve skilti svo kemur þetta

Sent: Sun 16. Jan 2005 17:57
af Ice master
hmmmm :-k

Sent: Sun 16. Jan 2005 18:44
af CraZy
Ice master skrifaði:Patch skýrslur eru mis góðar og stundum meingallaðar, eða kalla á villur þegar hugbúnaðurinn sem á að patcha er gallaður. Prófaðu að installa öllu upp á nýtt og helst ná í fullu nýjustu útgáfuna af MODunum sem þú ætlar að spila.

hann er að tala um demó,hvað koma pachar og mod málinu við :?

Sent: Sun 16. Jan 2005 19:00
af SolidFeather
eh, c/p af BT.is?

Sent: Sun 16. Jan 2005 19:03
af Snorrmund
ég er nú ekki algjört retard Ice Master :D var búinn að uppfæra hljóð, Chipset, og skjákorts drivera.. (stóð á steampowered.com að það gæti komið að gagni) buinn að installa demoinu úr þremur skrám frá mismunandi aðilum(hugi.is, Bt.is, Dc++)

Sent: Sun 16. Jan 2005 19:40
af Ice master
En það er hægt að dl hl 2 death match og það eru til patches ef þú ert að spila á netinu ;;; steam acounts þarfnast lika til að spila demoið og svona bara segja það ég prufadi að dl demoið virkar alveg fint hjá mér :?

Sent: Sun 16. Jan 2005 21:07
af MezzUp
Ice master skrifaði:ég var að vanda mig núna
Og stóðst þig vel :D


Nema vitaskuld að þetta sé:
SolidFeather skrifaði:eh, c/p af BT.is?

Sent: Sun 16. Jan 2005 21:12
af Ice master
hóst nei :D jamm þetta er c/p af bt.is

Sent: Sun 16. Jan 2005 21:31
af SolidFeather
Minnir að hann Ljósvíkingur (Stjórnandi or sum) hafi skrifað þetta á bt.is.

Sent: Sun 16. Jan 2005 22:10
af Pandemic
Þetta er af bt spjallinu var skrifað af admin.

Sent: Sun 16. Jan 2005 23:07
af Snorrmund
Ice master skrifaði:hmmmm :-k Það borgar sig alltaf að prófa að setja upp nýjan skjákorta driver, jafnvel þó tölvan sé glæný, það gæti hafa komið ný útgáfa síðan vélin var framleidd.

Patch skýrslur eru mis góðar og stundum meingallaðar, eða kalla á villur þegar hugbúnaðurinn sem á að patcha er gallaður. Prófaðu að installa öllu upp á nýtt og helst ná í fullu nýjustu útgáfuna af MODunum sem þú ætlar að spila.


Að gefnu tilefni fylgir með standard vandræðalistinn:

Það eru nokkur atriði sem orsaka yfir 95% vandamála með töluleiki. Ef eftirfarandi listi er athugaður þá er mjög líklegt að einhver þessarra hluta lagi vandamálið:

1. Gallað install - lausn: Enduruppsetja leikinn
2. Tölvan fullnægir ekki kröfum (minimum requierments) - Lausn: uppfæra það sem þarf
3. Uppfæra alla rekla (drivera) - Lausn: uppfæra skjákorts driver (algengasta lausn vandamála)
4. Galli í hönnun leiksins - Lausn: fara á heimasíðu leiksins og ná í nýjasta updeit (patch)
5. Vírus/Spyware hreinsa tölvuna - Lausn: renna spyware og vírusforritum (t.d. http://www.lavasoft.de/ )
6. Uppfæra DirectX - Lausn athuga hvort nýjasta útgáfa af directX sé til staðar (DX9.0c)
7. Uppfæra windows - Lausn: t.d. Ná í SP2 fyrir XP

Ef þessi atriði leysa ekki vandamálið gæti verið:
A. Einhver vélbúnaðarbilun hjá þér, t.d. í minni, hörðum disk - Lausn, fara með tölvuna á verkstæði eða finna út úr gallanum sjálfur og skipta um bilaða hlut.
B. Leikur gallaður - Lausn: Leita til starfsmanns í verslun

Athugið að það er algjör undantekning að leikir séu gallaðir eða að um vélarbilun sé að ræða. Vinsamlegast prófið liði 1-7 áður en leitað er til starfsmanna::: ég var að vanda mig núna

Sent: Mán 17. Jan 2005 00:18
af MezzUp
ahem, mér er skapi næst að eyða þessum pósti, eða þaðanaf verra. Núna missti ég allt álit á þér. Held að þú ættir að halda þig á BT.is (sýnist þú koma þaðan)

Ice master, þú skalt líta á þetta sem formlega viðvörun. Ritstuldur* verður ekki liðinn hérna.

* Þar sem að ritstuldur er skilgreindur sem það að afrita eitthvað af netinu og láta sem að maður sjálfur hafi skrifað það.

Sent: Mán 17. Jan 2005 01:11
af Ice master
ég var bara reyna hjálpa gaurin :evil: og ég er ekkert á bt.is versla aldrei þar og svo veit ég þetta alt sjálfur og ég skrifa alveg mjög rétt ég bara nenni þvi ekki :oops: ég fékk 8,2 i skrift :wink: og hva skiptir það máli ég er að reyna hjálpa gaurin \:D/

Sent: Mán 17. Jan 2005 01:17
af gumol
Þú náðir nú samt í þetta þaðan. Ekki nema þú sért Ljosvikingur: http://www.bt.is/BT/spjall/Lesa.aspx?UM ... 7&svaedi=3

Sent: Mán 17. Jan 2005 01:20
af Ice master
yhea so what and what's the big deal ? 8-[

Sent: Mán 17. Jan 2005 01:27
af gumol
Það væri ekkert af því ef þú hefðir látið vita að þú hefðir tekið þetta annarsstaðar frá. Það hefði kannski ekki verið neitt svaka mál En þú gerðir dáldið sem er verra, þú sagðist hafa skrifað þetta sjálfur:
Ice master skrifaði:hehe takk já þurfti að fá mér icelandic takkaborð svo ég myndi ekki causa riot eða eitthvað hérna
Það er flott að hjálpa öðrum, en það er ekki flott að taka credit fyrir það sem aðrir gera.

Sent: Mán 17. Jan 2005 01:37
af Ice master
hehehe ég vildi vera cool :8) en ég gat skrifað þetta alt sjálfur og ég vissi alt af þessu en ég var að drifa mig og ég vildi bara hjálpa :the_jerk_won en sorry anyway :cry:

Sent: Mán 17. Jan 2005 01:42
af skipio
Svona pínu offtopic en sæmdarrétturinn er mjög hátt skrifaður skv. íslenskum höfundaréttarlögum. Það er algert lykilatriði að maður má ekki eigna sér annarra verk en það er allt í lagi að vitna til þeirra (í hófi) ef maður getur heimilda. Eins ber að passa sig mjög að taka annarra manna verk og breyta þeim aðeins og telja til sinna eigin.
Nóg að vísa í málið með Hannes Hólmstein & Laxness eða þá lokaritgerðina í lögfræði fyrir nokkrum árum eftir fínan Samfylkingarstrák á uppleið (hefði orðið þingmaður), nema hvað hann hrasaði illilega og notaði annarra manna skrif sem sín eigin í lokaritgerðinni. Það varð alveg major mál útaf þessu og óþarfi að nefna að hann komst ekki inn á alþingi.

Legg til að Ice master og aðrir passi sig vel á þessu í framtíðinni. Alltaf erfitt að breyta út af ósiðum.

Sent: Mán 17. Jan 2005 02:14
af Ice master
þurftir ekkert að skrifa þetta það er ekki eins og þetta sé ólöglegt eða eitthvað bara reyna hjálpa :8) og svo er þetta lika eitthvað sem margir vita :wink:

Sent: Mán 17. Jan 2005 04:05
af skipio
Það sem þú varst að gera, Ice master, er einmitt ólöglegt að íslenskum lögum.

Sent: Mán 17. Jan 2005 12:08
af Ice master
Hehe Yhea Rigth \:D/

Sent: Mán 17. Jan 2005 13:36
af gumol
Snorrmundur: Búinn að finna lausn á þessu?

Sent: Mán 17. Jan 2005 14:52
af Snorrmund
Neii.. :( Ætla að reyna að redda mér alvöru leiknum og gá hvort þetta gerist þá :S

Sent: Þri 25. Jan 2005 21:52
af Snorrmund
þetta gerist ennþá.. ekki alveg sama villumeldingin

---------------------------
HALF-LIFE 2: hl2.exe - Application Error
---------------------------
The instruction at "0x0134e700" referenced memory at "0x0134e700". The memory could not be "read".


Click on OK to terminate the program
---------------------------
OK
---------------------------

Sent: Fös 28. Jan 2005 01:16
af Ice master
fádu þér xp sp 2 bara aftur :?