Síða 1 af 1

Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fim 14. Júl 2016 15:06
af littli-Jake
Datt í hug að einhver hérna mundu hafa gaman af þessu.

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... _a_markad/

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fim 14. Júl 2016 15:34
af GuðjónR
Sá þetta áðan, hef ekki keypt leikjatölvu síðan Dreamcast frá Sega en gæti vel hugsað mér að kaupa þessa.

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fim 14. Júl 2016 18:45
af Moldvarpan
Jubb, gæti vel hugsað mér að kaupa þessa.

Nostalgia, hdmi, nett og ódýr.

Ekki skemmir heldur að þessir leikir koma með :)

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fim 14. Júl 2016 19:06
af kizi86
Lookar vel, hdmi stór plús, ekki mögulegt að bæta við leikjum eða nota gömlu game carts.... RISA MÍNUS!

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fim 14. Júl 2016 21:39
af littli-Jake
kizi86 skrifaði:Lookar vel, hdmi stór plús, ekki mögulegt að bæta við leikjum eða nota gömlu game carts.... RISA MÍNUS!


Augljóslega ekki hægt að nota gömlu leikina þar sem þessi vél á þannig séð ekkert kilt við gömlu nema nafið og framleiðandan.

Kæmi mér samt ekki á óvart að það væri síðar hægt að kaupa leikjapakka.

En þó svo að það væri ekki hægt er þetta samt magnað.

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fim 14. Júl 2016 21:40
af littli-Jake
littli-Jake skrifaði:
kizi86 skrifaði:Lookar vel, hdmi stór plús, ekki mögulegt að bæta við leikjum eða nota gömlu game carts.... RISA MÍNUS!




Hví segiru að það verði ekki hægt að bæta við leikjum?

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fim 14. Júl 2016 23:08
af Viggi
Æji. Held að ég fá mér frekar bluetooth controller og noti emulator af android tv frekar. Þá getur maður spilað alla :)

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fim 14. Júl 2016 23:09
af urban
Verðið er líka skemmtilegt á henni.

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fim 14. Júl 2016 23:20
af hagur
littli-Jake skrifaði:
littli-Jake skrifaði:
kizi86 skrifaði:Lookar vel, hdmi stór plús, ekki mögulegt að bæta við leikjum eða nota gömlu game carts.... RISA MÍNUS!




Hví segiru að það verði ekki hægt að bæta við leikjum?


Það kemur fram að hún er alveg standalone, ekkert internet connectivity og ekki hægt að stinga neinum cartridges í hana. Vandséð hvernig hægt sé að koma fleiri leikjum í hana.

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fös 15. Júl 2016 10:51
af Hrotti
Mér finnst þetta brjálæðislega flott! þó það sé ekkert mál að henda upp emulatorum osfr. Þetta kemur bara klárt, lítur vel út og ekkert vesen. Ég á pottþétt eftir að kaupa svona.

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Fös 15. Júl 2016 11:20
af birkirsnaer
Þetta er alger snilld, sérstaklega þar sem þetta er á einungis 60 USD!

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Lau 16. Júl 2016 10:30
af kizi86
skil samt ekki af hverju nintendo setur bara ekki ALLA leikina inn? eitt stk 250MB flash kubbur rúmar ALLA nes leiki sem gerðir hafa verið... af hverju þeir takmarka þetta við 30 leiki is beyond stupid imho....

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Lau 16. Júl 2016 11:37
af Daz
kizi86 skrifaði:skil samt ekki af hverju nintendo setur bara ekki ALLA leikina inn? eitt stk 250MB flash kubbur rúmar ALLA nes leiki sem gerðir hafa verið... af hverju þeir takmarka þetta við 30 leiki is beyond stupid imho....

Af því að Nintendo á ekki réttinn á öllum þeim Nintendo leikjum sem hafa komið út?
Af því að Nintendo hefði þurft að borga höfundarréttargjöld fyrir leiki sem þeir eiga hlut í?
Af því að þeir ætla að selja addon í þessa vél seinna með fleiri leikjum?

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Lau 16. Júl 2016 16:38
af chaplin
Ákvað að fagna með að skreyta ísskápinn

Mynd

Re: Gamla Nintendo að koma aftur

Sent: Lau 16. Júl 2016 18:54
af urban
kizi86 skrifaði:skil samt ekki af hverju nintendo setur bara ekki ALLA leikina inn? eitt stk 250MB flash kubbur rúmar ALLA nes leiki sem gerðir hafa verið... af hverju þeir takmarka þetta við 30 leiki is beyond stupid imho....


Vegna þess að þá geta þeir ekki selt sömu vöruna seinna aftur með sömu eiginleikum (en öðrum leikjum)

Önnur fyrirtæki gera mikið af þessu, Apple einna bestir í því samt sem áður.