Síða 1 af 2

GTA:SA Hörmuleg gæði

Sent: Fim 11. Nóv 2004 11:54
af zedro
Jæja fólk, eg var loksins að fá eintakið mitt af GTA: San Andreas,
hleyp heim og skelli disknum í tölvuna barrasta allt í goody feeling.

En þegar leikurinn byrjar varð ég fyrir talsverðum vonbrigðum,
til að byrja með þá laggaði introið!!! :shock: WTF... en ókey vík því til hliðar og
bíð efit að leikurinn byrjar og þá fekk ég mesta sjokkið, leikurinn var
hrein og bein hörmung á að líta. Ég hef lesið hér og þar að sumir séu
með góð gæði en aðrir hörmulega. Hvort þetta tengist tölvunni sjálfri
veit ég ekki en einsog flestir hafa eflaust séð trailerinn fyrir leikinn hafa
þeir eflaust séð að trailerinn er í geðveikum gæðum annað en er hjá mér.

Svo ég var að velta þessu fyrir mér hvort ég þurfi að splæsa á nýja
tölvu, hvort mín sé ekki bara orðinn úreld (enda keipti ég mér hana
þegar hún fyrst kom í búðir). Ætli PSTwo sé ekki málið.

Veit einhver hér um þetta mál? Því miða við gæðin í leiknum hjá mér
liggur við að mar skili honum aftur. Leikurinn er góður en gæðin eru
alveg óásættanleg miða við hvað þetta er stór PS2 titill. [-X

Sent: Fim 11. Nóv 2004 12:20
af hahallur
Mér finnst grafíkin hörmungur en leikurinn ágætur.
Ekkert meira en það.

Re: GTA:SA Hörmuleg gæði

Sent: Fim 11. Nóv 2004 12:43
af elv
Zedro skrifaði: flestir hafa eflaust séð trailerinn fyrir leikinn hafa
þeir eflaust séð að trailerinn er í geðveikum gæðum annað en er hjá mér.

[-X


lol var einmitt að spá hvaða rusl væri verið að auglýsa þegar ég sá sjónvarps auglýsinguna,slööp grafík og hikstaði/hægði á 1-2 stöðum

Sent: Fim 11. Nóv 2004 12:55
af noizer
Ég sem var svo spenntur að fara að kaupa leikinn, eða ég er sko að safna fyrir honum. En eftir að ég heyrði þetta ætla ég að hugsa mig um

Sent: Fim 11. Nóv 2004 12:56
af hahallur
Ég sé eftir að hafa keypt hann á PS2.
Bara bíða þangað til hann kemur á PC.

Sent: Fim 11. Nóv 2004 12:57
af einarsig
mér hefur fundist PC version af leikjum alltaf langskemmtilegust og flottust, fyrir utan kannski einhverja bardagaleiki eins og tekken t.d

Sent: Fim 11. Nóv 2004 12:58
af noizer
jú ætli ég kaupi hann ekki bara í PC

Sent: Fim 11. Nóv 2004 13:05
af Sup3rfly
Þetta er einfaldlega það besta sem að PS2 getur boðið uppá, orðin svolítið gömul þessi tölva.

Sent: Fim 11. Nóv 2004 13:28
af Bendill
Sup3rfly skrifaði:Þetta er einfaldlega það besta sem að PS2 getur boðið uppá, orðin svolítið gömul þessi tölva.


Heyr heyr, svo er það líka skemmtanagildið sem leikurinn býður upp á sem heillar, ekki grafíkin. Leikir sem bjóða bara upp á flotta grafík eru afskaplega innantómir finnst mér...

Einnig finnst mér rangt að ætlast til þess að leikur sé eitthvað rosalega flottur fyrir augað bara af því að hann flokkast undir þungarviktartitil, gameplay er það eina sem skiptir máli í þessum leik, endalaust gameplay!

Re: GTA:SA Hörmuleg gæði

Sent: Fim 11. Nóv 2004 13:34
af jericho
Zedro skrifaði:...Ég hef lesið hér og þar að sumir séu
með góð gæði en aðrir hörmulega. Hvort þetta tengist tölvunni sjálfri
veit ég ekki ...


er leikurinn ekki eins í öllum PS2 tölvum? Hann getur ekkert verið betri í einni og verri í annarri? Ég hélt þetta væri allt sama tóbakið, þessar playstation tölvur...

Sent: Fim 11. Nóv 2004 15:17
af Vilezhout
gameplay>grafík

Sent: Fim 11. Nóv 2004 16:18
af Snorrmund
100% sammála B3ndli.. t.d. Gömlu larry leikirnir, og gömlu nfs leikirnir eru endalaust skemmtilegir.. þó að grafíkin er RUSL.. mér finnst grafíkin bara fín í SA en annars skiptir gameplay öllu.. leikir verða ekkert skemmtilegir ef það er góð grafík .. t.d. DOom3 hann er með lélegasta og ófrumlegasta gameplay í heimi, en með betri grafik .. samt sukkar hann það segir okkur aðeins eitt.. Að grafík segir svona 20% um skemmtilegheit :)

Sent: Fim 11. Nóv 2004 16:50
af elv
Bendill skrifaði:
Sup3rfly skrifaði:Þetta er einfaldlega það besta sem að PS2 getur boðið uppá, orðin svolítið gömul þessi tölva.


Heyr heyr, svo er það líka skemmtanagildið sem leikurinn býður upp á sem heillar, ekki grafíkin. Leikir sem bjóða bara upp á flotta grafík eru afskaplega innantómir finnst mér...

Einnig finnst mér rangt að ætlast til þess að leikur sé eitthvað rosalega flottur fyrir augað bara af því að hann flokkast undir þungarviktartitil, gameplay er það eina sem skiptir máli í þessum leik, endalaust gameplay!



Hehe Bruce Lee er og verður alltaf uppáhalds leikurinn minn svo ég er nú ekki bara að pæla í grafík...

Sent: Fim 11. Nóv 2004 17:00
af MezzUp
Doom anybody? :D

Sent: Fim 11. Nóv 2004 17:08
af elv

Sent: Fim 11. Nóv 2004 17:08
af BlitZ3r
Snorrmund skrifaði:100% sammála B3ndli.. t.d. Gömlu larry leikirnir, og gömlu nfs leikirnir eru endalaust skemmtilegir.. þó að grafíkin er RUSL.. mér finnst grafíkin bara fín í SA en annars skiptir gameplay öllu.. leikir verða ekkert skemmtilegir ef það er góð grafík .. t.d. DOom3 hann er með lélegasta og ófrumlegasta gameplay í heimi, en með betri grafik .. samt sukkar hann það segir okkur aðeins eitt.. Að grafík segir svona 20% um skemmtilegheit :)


var búnnað redda mer death rally sem er um 8 ára leikur or sum en mer allveg sama um grafík bara skemtilegur. en það myndi nú ekki að skemma fyrir að vera með alminilega grafík í nýjum leikjum

Sent: Fim 11. Nóv 2004 17:19
af MezzUp
Hva, vantar bara AA :P

Mynd

Sent: Fim 11. Nóv 2004 17:35
af zaiLex
Bendill skrifaði:gameplay er það eina sem skiptir máli í þessum leik, endalaust gameplay!


Vilezhout skrifaði:gameplay>grafík


word!

Sent: Fim 11. Nóv 2004 19:44
af hahallur
[quote="MezzUp"]Hva, vantar bara AA :P

Nokkuð til í þessu hjá þér.

Annars eru hendurnar á gaurunum plötur, svipar svoldið til HL-1 svo er sum skinn algjör hörmung.
Vantar fleiri polygona og AA.

Sent: Fös 12. Nóv 2004 16:39
af MezzUp
hahallur skrifaði:
MezzUp skrifaði:Hva, vantar bara AA :P


Nokkuð til í þessu hjá þér.

Annars eru hendurnar á gaurunum plötur, svipar svoldið til HL-1 svo er sum skinn algjör hörmung.
Vantar fleiri polygona og AA.

whot? átti að vera kaldhæðni hjá mér.........
Vonandi líka hjá þér, þar sem að ég er nokkuð viss um að það séu ekki polygonar í 2d leik

Sent: Fös 12. Nóv 2004 17:44
af Sup3rfly
Ég held að hann hafi haldið að þú værir að tala um San Andreas þegar þú varst að tala um Bruce Lee leikinn.

Annars er ekkert það léleg grafík í SA bara skella AA eða hærri upplausn á 'etta

Sent: Fös 12. Nóv 2004 17:58
af MezzUp
Sup3rfly skrifaði:Ég held að hann hafi haldið að þú værir að tala um San Andreas þegar þú varst að tala um Bruce Lee leikinn.

ahh, skilþig :)

Sent: Fös 12. Nóv 2004 20:12
af ICM
Ekkert léleg grafík? í guðana bænum drengir það væri ekki nóg að skella AA og hærri upplausn! Hræðilega léleg upplausn á öllum textures á módelunum og ekkert flott eins og pixel shaders eða bump mapping og módelin eru eins og spítukallar.

Sent: Fös 12. Nóv 2004 21:14
af MezzUp
IceCaveman skrifaði:Ekkert léleg grafík? í guðana bænum drengir það væri ekki nóg að skella AA og hærri upplausn! Hræðilega léleg upplausn á öllum textures á módelunum og ekkert flott eins og pixel shaders eða bump mapping og módelin eru eins og spítukallar.

ég er allan tímann búinn að vera að tala um Bruce Lee leikinn í kaldhæðni :roll:

Sent: Fös 12. Nóv 2004 21:15
af hahallur
Hélt þú væri að tala um GTA: SA :)