Síða 1 af 1

Meðalaldur spilar?

Sent: Þri 02. Nóv 2004 15:47
af zedro
:roll: Bara smá hugdetta, hvað er fókið hér gamalt sem er að spila tölvuleiki/netleiki.

Enginn sérstakur leikur bara alla tölvuleiki yfir höfuð.
Allar gerðir tölva meðtaldar PC, PS2, X-BOX o.s.frv.

Muna svo að sýna hreinskilni.
Endilega kommenta hvað þið eruð búnir/búin að spila lengi. :wink:

Sent: Þri 02. Nóv 2004 15:54
af MezzUp
ekki að svara ef að maður er hættur að spila?

Sent: Þri 02. Nóv 2004 16:14
af zedro
Pælingin var til núverandi spilara, en þeir sem eru hættir geta endilega kommenterað hvað þeir voru gamlir þegar þeir hættu. :wink:

Sent: Þri 02. Nóv 2004 16:46
af Stebbi_Johannsson
Að spila hvaða leik?

Eða ertu að meina bara tölvuleiki yfir höfuð?

Sent: Þri 02. Nóv 2004 16:48
af MezzUp
aight,

maður hefur náttla alltaf verið eitthvað að leika sér síðan maður fékk tölvu, en ég spilaði CS og fleiri MP nokkuð mikið á milli 14 og 16 ára, hætti síðasta vor/sumar

Sent: Þri 02. Nóv 2004 16:49
af zedro
Enginn sérstakur leikur bara alla tölvuleiki yfir höfuð.
Allar gerðir tölva meðtaldar PC, PS2, X-BOX o.s.frv. :wink:

Sent: Þri 02. Nóv 2004 22:11
af hubcaps
Er 23 ára og einu leikirnir sem ég spila er Tetris og GTA serían; skemmtileg blanda það. :wink:

Sent: Mið 03. Nóv 2004 07:36
af Sveinn
Spilaði CS í 2 ár, hætti svo fyrir einu ári, spila núna Warcraft, en ekki mjög marga fleiri netleiki en það. Helst bara Single Player leiki eins og Doom 3, Monster Garage, Battlefield(spila bara Single player í honum, veit að hann er líka net).

Sent: Mið 03. Nóv 2004 08:40
af gnarr
spila Battlefield af og til.. ég er enþá í klani í honum þótt ég spili hann ekki nema á svoa 1-2 mánað fresti.

Sent: Mið 03. Nóv 2004 08:42
af goldfinger
er 17, spilað tölvuleiki siðan ég var 11 (byrjaði i cm)

Sent: Mið 03. Nóv 2004 08:57
af Stutturdreki
Heh.. örugglega um 18-19 ár síðan ég komst yfir PC tölvu (Advance86)í fyrsta skipti.. átti aldrei Commandore64, Amiga eða Sinclair eins og flestir aðrir áttu..

Leikirnir hafa 'aðeins' breyst síðan.. ascii graffík og cga litir..

Sent: Mið 03. Nóv 2004 15:27
af Predator
Spila nú marga leiki en lang mest CS byrjaði að spila tölvuleiki þegar ég var 6 ára. Byrjaði í eitthverjum leik sem hét DeathKeep. Ég er 14ára núna.

Sent: Mið 03. Nóv 2004 15:39
af nomaad
20 vetra, spila helst FPS og bílaleiki. Hef þó opinn hug og prófa allt :D

Sent: Mið 03. Nóv 2004 15:52
af gnarr
afhverju hljómaði þetta eins og auglýsing af einkamal.is :lol:

Sent: Mið 03. Nóv 2004 17:31
af jericho
Stutturdreki skrifaði:Heh.. örugglega um 18-19 ár síðan ég komst yfir PC tölvu (Advance86)í fyrsta skipti.. átti aldrei Commandore64, Amiga eða Sinclair eins og flestir aðrir áttu..

Leikirnir hafa 'aðeins' breyst síðan.. ascii graffík og cga litir..


ég er nú með gamla Commandore64 uppi á háalofti (með segulbandi, joystick og einhverjar leikjasnældur)! Þú gætir kannski bætu upp fyrir missinn með því að taka aðeins í hana? (ahhh, those were the days) :lol:

Sent: Mið 03. Nóv 2004 17:36
af BlitZ3r
ég hef nú spilað tolvuleiki síðan pabbi keypti fyrstu tölvunna sína

Sent: Mið 03. Nóv 2004 18:38
af MezzUp
BlitZ3r skrifaði:ég hef nú spilað tolvuleiki síðan pabbi keypti fyrstu tölvunna sína

Já, það segir okkur allt :D

Sent: Mið 03. Nóv 2004 19:11
af Mosi
MezzUp skrifaði:
BlitZ3r skrifaði:ég hef nú spilað tolvuleiki síðan pabbi keypti fyrstu tölvunna sína

Já, það segir okkur allt :D

já hann keypti hana 14. febrúar 1991
hver vissi það ekki?

Sent: Mið 03. Nóv 2004 19:22
af Voffinn
jericho skrifaði:
Stutturdreki skrifaði:Heh.. örugglega um 18-19 ár síðan ég komst yfir PC tölvu (Advance86)í fyrsta skipti.. átti aldrei Commandore64, Amiga eða Sinclair eins og flestir aðrir áttu..

Leikirnir hafa 'aðeins' breyst síðan.. ascii graffík og cga litir..


ég er nú með gamla Commandore64 uppi á háalofti (með segulbandi, joystick og einhverjar leikjasnældur)! Þú gætir kannski bætu upp fyrir missinn með því að taka aðeins í hana? (ahhh, those were the days) :lol:


Ég á gamla Acorn tölvu.. spurning um að stofna klúbb?

Sent: Mið 03. Nóv 2004 19:53
af nomaad
gnarr skrifaði:afhverju hljómaði þetta eins og auglýsing af einkamal.is :lol:


Ahahaha, það var ekki ætlunin. Nema þú hafir áhuga :O

Sent: Mið 03. Nóv 2004 21:08
af BlitZ3r
það var 100mhz með 16mb minni og 2-3mb skjakort og var uber á sínum tíma :)

en hef mestan áuga á fps leikjum og bílaleikjum

Sent: Mið 03. Nóv 2004 22:18
af Sup3rfly
Ég spila nú alla heimsins leiki, en er svona mest í FPS, RTS og MMORPG leikjum.