Síða 1 af 2

GTA: San Andreas

Sent: Þri 02. Nóv 2004 13:03
af Bendill
Ég er kominn með hann! liggaliggalái!

Kærastan fór í Elkó í gær og fékk seinasta eintakið! Leikurinn seldist upp á þeim tuttugu mínútum sem hún stóð í röð :lol:

Hann er sweet btw, mikið skemmtilegra að keyra bílana núna, meiri raunveruleiki...

Sent: Þri 02. Nóv 2004 13:36
af halli4321
já djöful langar mann í þennan leik, en mér finnst þeir samt alltaf skemmtilegri í PC þannig að ætli maður bíði ekki þangað til, HL2 og Metal Gear solid 3 eru að koma út og fátækur námsmaður eins og ég á ekki nógan pening fyrir þessu öllu...en því meira sem ég les um þennan leik því minna langar mig til að bíða eftir PC útgáfunni, en hvenær á leikurinn að koma út í PC? er það ekki einhverntíma í mars?

Re: GTA: San Andreas

Sent: Þri 02. Nóv 2004 13:44
af elv
Bendill skrifaði:Ég er kominn með hann! liggaliggalái!

Kærastan fór í Elkó í gær og fékk seinasta eintakið! Leikurinn seldist upp á þeim tuttugu mínútum sem hún stóð í röð :lol:

Hann er sweet btw, mikið skemmtilegra að keyra bílana núna, meiri raunveruleiki...



OMG fer kellingin þín og verslar tölvuleiki fyrir þig(stendur meira að segja í röð)...............gott eintak eða gott uppeldi? :shock:

Sent: Þri 02. Nóv 2004 14:00
af noizer
Þú ert frekar heppinn, kærastan þín að standa í biðröð og kaupa tölvuleikina fyrir þig

En mig langar geðveikt í þennan leik, er að safna :lol:

Sent: Þri 02. Nóv 2004 14:17
af zaiLex
hér er mjög áhugaverð grein um leikinn á huga.

Sent: Þri 02. Nóv 2004 14:21
af viddi
Hann á að koma út í Maí 2005 á PC ég bíð bara þar sem ég á ekki PS2 og langar ekki í hana

Re: GTA: San Andreas

Sent: Þri 02. Nóv 2004 14:29
af Stutturdreki
Bendill skrifaði:Hann er sweet btw, mikið skemmtilegra að keyra bílana núna, meiri raunveruleiki...

Ef ég væri ekki forfallinn tölvuleikjasjúklingur þá myndi þessi setning örugglega hljóma mjög undarlega..

Sent: Þri 02. Nóv 2004 15:20
af BlitZ3r
eg bíð bara eftir pc version það er hvort sem er að koma út nfs:u2 og þá liggur maður í honum þangað til

Sent: Þri 02. Nóv 2004 16:44
af Stebbi_Johannsson
Jamm... alltof margir leikir að fara koma... Ef það væri núna byrjun September og GTA:SA að koma út þá myndi ég kaupa PS2&GTA:SA saman... :D

Langar svo mikið í hann :(

Sent: Þri 02. Nóv 2004 17:25
af SolidFeather
pfff, ég náði honum á föstudaginn, engin röð eða neitt! \:D/

Sent: Þri 02. Nóv 2004 19:11
af gakera
Eru slowdown í stórum senum? Fólk hefur verið að kvarta undan því...

Sent: Mið 03. Nóv 2004 11:44
af Bendill
SolidFeather skrifaði:pfff, ég náði honum á föstudaginn, engin röð eða neitt! \:D/


Það var vegna þess að hann var settur á 29. okt fyrst en var síðan seinkað til 2. nóv (sem var tilkynnt æi dagblöðum þessa lands) en kom síðan 29. okt þrátt fyrir allt og enginn var látinn vita...

Sent: Mið 03. Nóv 2004 11:46
af Bendill
gakera skrifaði:Eru slowdown í stórum senum? Fólk hefur verið að kvarta undan því...

Ég hef nú ekki haft mikinn tíma til að spila leikinn en ég hef ekki tekið eftir neinu sem mér fannst pirrandi, enda er maður með svo stutt athyglissvið... dæmi:

Kvaaa eretta marr, gegt slówdán! ... Hei, ný tattú stofa!

Sent: Mið 03. Nóv 2004 12:34
af StarDu$t
það fer víst eftir því hvað tölvan er gömul, ný og fersk tölva höndlar leikinn betur en gömul og útjöskuð... :lol: :megasmile
er að fara einmitt þessa stundina að versla nýja tölvu og leikinn. (vinur minn skemmdi tölvuna og er ekki enn búinn að greiða mér hana eftir 1 ár) :evil:

Sent: Mið 03. Nóv 2004 13:36
af hahallur
Mætti grafíkin í leiknum vera betri.
Annars bíð ég bara að dl honum á PC :)

Sent: Mið 03. Nóv 2004 15:40
af Birkir
hahallur skrifaði:Mætti grafíkin í leiknum vera betri.
Annars bíð ég bara að dl honum á PC :)


Síðast þegar ég vissi þá er þetta bannað hér á spjallinu...

Sent: Mið 03. Nóv 2004 16:17
af Stebbi_Johannsson
Suma tölvuleiki kaupir maður útaf respect :evil:

dæmi: GTA, CM/FM og HL2

Sent: Mið 03. Nóv 2004 16:38
af hahallur
Oki þá veit ég það núna.
Einu leikirnir sem ég kaupi útaf respect eru s.s. Doom 3 - HL 2 - MaxPayne - Call of Duty

Sent: Mið 03. Nóv 2004 17:25
af jericho
Bendill skrifaði:Kvaaa eretta marr, gegt slówdán! ... Hei, ný tattú stofa!


úhhh úhh úh!!! Tattoo stofur...


Annars gamla tölvan mín var nú hætt að ráða við nokkurn skapaðan hlut! Því átti ég marga leiki inni þegar ég loksins fékk mér nýjan grip - og skemmtileg tilviljun það að ég er einmitt núna að spila Vice City. Ef mér finnst hann skemmtilegur, hvernig á mér eftir að finnast San Andreas?

Reyndar er eitt sem ég þarf að spyrja ykkur um - ég hef ekki athugað það, en er Multiplayer í þessum leik??? Það var nú fátt skemmtilegra á LANinu að taka multiplayer í gamla GTA leiknum þegar maður vildi smá hvíld á CS og DOD og þessu endalausa mindless killing leikjum

Sent: Mið 03. Nóv 2004 18:10
af hubcaps
jericho skrifaði:er Multiplayer í þessum leik???


http://www.mtavc.com/

það var innlendur server fyrir nokkrum mánuðum, virðist ekki lengur vera til.

Sent: Mið 03. Nóv 2004 20:49
af StarDu$t
Þessi leikur er hrein snilld, verð spilandi SA næstu mánuði... :)
og varðandi grafíkina, mar venst henni eftir 1-2 tíma í spilun.

Sent: Mið 03. Nóv 2004 22:51
af Pandemic
Guð minn almáttugur hvað grafíkin í þessum leik er hræðileg.
Ég er búinn að spila hann í 2 tíma núna og grafíkin er hálfkláruð glitches á sumum stöðum og laggar alveg hræðilega.

Sent: Mið 03. Nóv 2004 23:02
af Sup3rfly
Það var nú fátt skemmtilegra á LANinu að taka multiplayer í gamla GTA leiknum þegar maður vildi smá hvíld á CS og DOD og þessu endalausa mindless killing leikjum


Aha og það er ekkert mindless killing í GTA :wink:
Nei ég segi annars svona það er hægt að gera shitload annað en að drepa fólk í GTA, sérstaklega á multiplayer (Drag Race, Race, Jump, Hunt and Destroy etc. etc. etc.)

Sent: Mið 03. Nóv 2004 23:30
af Snorrmund
"(Drag Race, Race, Jump, Hunt and Destroy etc. etc. etc.)" Í san andreas? eða í mta vc :? allavega hvernig geriru þetta? :?

Sent: Mið 03. Nóv 2004 23:40
af Sup3rfly
Maður gerir bara sitt eigið dæmi. Ef þið eruð að tala um í PC (ég hef aldrei spila Multiplayer) en það ætti ekki að vera mikið mál að finna bíla (eða mótorhjól) og ákveða að fara einn hring kringum einhver nokkur hús og sá sem er á undan vinnur :o

Jump: bara sá sem að jumpar hærra eða eitthvað
Hunt and Destroy: Finna vin sinn og drepa hann!


Annars var þetta bara eitthvað sem að mér datt í hug, ég hef aldrei spilað VC í multiplayer. Getur verið bæði í SA og VC.