Síða 1 af 1

Nintendo eShop inneign

Sent: Fim 20. Mar 2014 19:47
af JohannThor


Veit einhver hvort hægt sé að kaupa Nintendo eShop inneignarkort á Íslandi. Þeas ekki Wii points eða DSi points heldur inneign til að kaupa á 3DS.

Re: Nintendo eShop inneign

Sent: Fim 20. Mar 2014 22:43
af Plushy
Ef einhver væri að selja það væru það Ormsson/BT. Sé þetta samt hvergi á síðunni þeirra.

Getur samt lagt inn inneign á eShop í gegnum kreditkort ef þú átt þannig, eða greitt beint í gegnum kreditkort líka.

Ormsson/BT geta pantað fyrir kort að öllum líkindum, annars geturðu keypt eShop inneign á www.inneign.com (er ekki í listanum, en veit að hann getur pantað þannig - og á lægra verði en þú myndir láta ormsson panta).

Á að versla sér einhvern skemmtilegan Nintendo leik? :)

Re: Nintendo eShop inneign

Sent: Fös 21. Mar 2014 18:27
af JohannThor
Skoðaði Ormsson og Elko en fann ekkert þar, hef samband við inneign.is, vissi ekki af þessari þjónustu :D

Það kitlar svolítið að kaupa Legend of Zelda: Ocarina of Time upp á nostalgíuna, svo eru Castlevania, Fire Emblem og Steamworld Dig að kitla líka.

Takk fyrir hjálpina ;)

Re: Nintendo eShop inneign

Sent: Fös 21. Mar 2014 18:31
af Plushy
JohannThor skrifaði:Skoðaði Ormsson og Elko en fann ekkert þar, hef samband við inneign.is, vissi ekki af þessari þjónustu :D

Það kitlar svolítið að kaupa Legend of Zelda: Ocarina of Time upp á nostalgíuna, svo eru Castlevania, Fire Emblem og Steamworld Dig að kitla líka.

Takk fyrir hjálpina ;)


Ekkert mál :)

Langar að kaupa Ocarina of Time og reyndar A Link to the Past líka, seinni leikurinn var "on sale" :D