Síða 1 af 1

Fæ ég Thrustmaster T 500 RS stýri einhversstaðar hér heima?

Sent: Mið 13. Nóv 2013 11:05
af Svessi
Titillinn segir allt sem segja þarf.

Langar í Thrustmaster T 500 RS bílastýri (og nota fyrir PC)
Og svona áður en ég fer að panta mér þetta af netinu, datt mér í hug að senda hér inn póst til að ath. hvort einhver vissi hvort ég fengi þetta hér heima.
...notabene langar ekki að kaupa notað af vaktara.

Einnig ef einhver veit um hagstæða og góða síðu til að kaupa þetta frá.

Líka ef einhver getur getur bent mér á einhverja aðra tegund af stýri sem ég ætti frekar að pæla í.
Mér finnst þetta meira spennandi heldur en að fá mér Logitech G27.

Ég er líka búinn að finna dót sem kostar 3000-4000$ en er ekki alveg til í fara í þann pakkann ....ennþá.

Re: Fæ ég Thrustmaster T 500 RS stýri einhversstaðar hér hei

Sent: Mið 13. Nóv 2013 11:39
af LTFrankDrebin
Hvað ertu tilbúinn í að eyða miklu? Hefurðu kíkt á Clubsport Wheel frá Fanatec? Eða ódýrara CSR stýrið. Clubsport stýrið er dýrt, í kríngum 1000 evrur eftir því hvað þú velur með því.

Re: Fæ ég Thrustmaster T 500 RS stýri einhversstaðar hér hei

Sent: Mið 13. Nóv 2013 11:42
af I-JohnMatrix-I
Ég er með Fanatec 911 gt2 og það er mun betra en logitech g27, mæli eindregið með að þú skoðir Fanatec styrin