Síða 1 af 1

Age of Empires II HD!

Sent: Fös 15. Mar 2013 16:46
af danheling92
Talandi um endurholdgun gamla og góðra leikja, hver hérna mun spila þetta? Ég sé fyrir mikilli skemmtun fyrir stafni eftir að þessi leikur kemur út. Ég mun líklegast spila mest 2v2 og 4v4 eða free for all, og það væri gaman ef við mundum búa til Steam group fyrir þá sem ætla sér að spila þennan eitthvað að viti, sem ég vona að gerist :)

Ég spilaði sjáfur í gamla daga bara skirmish við tölvuna, og skemmti mér endalaust við að búa til risa borgir, og svo auðvitað að spawna 10 rauðum sportbílum og leika mér að keyra yfir sveitir óvina hersins :guy

http://store.steampowered.com/app/221380/

Re: Age of Empires II HD!

Sent: Fös 15. Mar 2013 16:54
af beggi90
Mér finnst þetta mikið fyrir 10 ára gamlan leik.

Sérstaklega þar sem mikið af þessum hlutum eru þegar komnir í forgotten empires.
Var að vonast eftir góðu ladder kerfi en á erfitt með að eyða 20$ í tengingu við steam, þó ég endi líklega á því að gera það.

Spilaði mest á game-ranger um tíma.

Re: Age of Empires II HD!

Sent: Fös 15. Mar 2013 16:57
af danheling92
beggi90 skrifaði:Mér finnst þetta mikið fyrir 10 ára gamlan leik.

Sérstaklega þar sem mikið af þessum hlutum eru þegar komnir í forgotten empires.
Var að vonast eftir góðu ladder kerfi en á erfitt með að eyða 20$ í tengingu við steam, þó ég endi líklega á því að gera það.

Spilaði mest á game-ranger um tíma.


Ég býst við því að þessi leikur verði með svona 3000-5000 virka spilendur á hverjum tíma í Evrópu í meðallagi, þannig að ég mundi telja þetta vera vel þess virði.

Re: Age of Empires II HD!

Sent: Fös 15. Mar 2013 19:05
af g0tlife
Aðeins of dýrt en það er bara fyrst svo lækkar þetta. Stór partur afhverju ég fýla steam. Maður hefur nælt sér í marga gamla þar á slikk

Re: Age of Empires II HD!

Sent: Fös 05. Apr 2013 10:44
af ggmkarfa
Einhver til í það að kaupa saman 4-pack á 59.99 $ ?

Re: Age of Empires II HD!

Sent: Fös 19. Apr 2013 16:03
af ggmkarfa
ggmkarfa skrifaði:Einhver til í það að kaupa saman 4-pack á 59.99 $ ?

Bump

Re: Age of Empires II HD!

Sent: Fös 19. Apr 2013 16:14
af zetor
lítur vel út! hef töluvert verið aðspila þennan leik á Game Ranger.