Síða 1 af 2

Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 08:45
af sirkus
Er einhver sem er að spila simcity nýja leikinn ?

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 13:59
af ZiRiuS
Jebb

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 14:18
af hfwf
leið og ég fæ tölvuna mína til baka og búið verður að cracka leikinn almennilega og henda upp server emulation þá gerir maður það, annars ekki sjhens að fara borga fyrir þetta drm kjaftæði online only dæmiþ

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 14:31
af Gúrú
hfwf skrifaði:leið og ég fæ tölvuna mína til baka og búið verður að cracka leikinn almennilega og henda upp server emulation þá gerir maður það, annars ekki sjhens að fara borga fyrir þetta drm kjaftæði online only dæmiþ


Frekar mikið dick move. Ef þú vilt ekki styðja við DRMið slepptu því þá að kaupa leikinn og ekki stela honum.

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 14:37
af worghal
ég ætla ekki að borga krónu fyrir leik frá EA á næstunni.
ég fékk smá inside scoop með þetta massíva fail hjá þeim og satt best að segja, þeir eru naut heimskir og eru allveg sama um viðskipta vini sína.

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 14:38
af hfwf
Gúrú skrifaði:
hfwf skrifaði:leið og ég fæ tölvuna mína til baka og búið verður að cracka leikinn almennilega og henda upp server emulation þá gerir maður það, annars ekki sjhens að fara borga fyrir þetta drm kjaftæði online only dæmiþ


Frekar mikið dick move. Ef þú vilt ekki styðja við DRMið slepptu því þá að kaupa leikinn og ekki stela honum.


Nei, þetta er dick move hjá EA. Ekki reina réttlæta það.

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 14:40
af Gúrú
hfwf skrifaði:
Gúrú skrifaði:
hfwf skrifaði:leið og ég fæ tölvuna mína til baka og búið verður að cracka leikinn almennilega og henda upp server emulation þá gerir maður það, annars ekki sjhens að fara borga fyrir þetta drm kjaftæði online only dæmiþ

Frekar mikið dick move. Ef þú vilt ekki styðja við DRMið slepptu því þá að kaupa leikinn og ekki stela honum.

Nei, þetta er dick move hjá EA. Ekki reina réttlæta það.


EA má gera það sem það vill með vörurnar sínar, þú átt mjög auðvelt með að sniðganga þær bara. Þetta er ekki eina vatnsfyrirtækið í Reykjavík, þetta er bara einhver leikjaframleiðandi.

Þetta er(verður) dick move hjá þér.

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 14:53
af playman
worghal skrifaði:ég ætla ekki að borga krónu fyrir leik frá EA á næstunni.
ég fékk smá inside scoop með þetta massíva fail hjá þeim og satt best að segja, þeir eru naut heimskir og eru allveg sama um viðskipta vini sína.

Care to explain?

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 14:58
af worghal
playman skrifaði:
worghal skrifaði:ég ætla ekki að borga krónu fyrir leik frá EA á næstunni.
ég fékk smá inside scoop með þetta massíva fail hjá þeim og satt best að segja, þeir eru naut heimskir og eru allveg sama um viðskipta vini sína.

Care to explain?

ég vill ekki að neinn verði rekinn.

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 15:40
af ZiRiuS
Ég keypti leikinn hjá þeim, gat ekki spilað hann fyrstu tvo dagana, EA fengu svo samviskubit, ætla að gefa mér leik frá þeim að eigin vali og ekkert vesen núna á serverunum.

Ég er sáttur...

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 16:58
af Cikster
En hafið þið sem hafið keypt leikinn pælt í því hvað gerist þegar EA hætta að nenna halda servernum uppi?

Ef þið munduð vilja prófa hann eftir 10 ár (eða eitthvað) þá munduð þið einfaldlega ekki getað það. Ekki einusinni single player.

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 18:37
af hfwf
Mynd Læt þetta hér.

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 18:53
af tdog
Ég setti upp SimCity 2000 um daginn og er að spila The Sims (þann fyrsta) núna og ég er ekkert að fara að uppfæra...

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 19:03
af DJOli
Ekki ætla ég að kaupa inn í þetta kjaftæði.

Frekar 'pírata' ég leiknum. Ég er einn þeirra sem styð tölvuleikjaframleiðendur ekki með svona heimskulegum 'breytingum' eins og að geta t.d. ekki save-að sjálfur, eða að VERÐA að vera nettengdur til að spila leikinn. Þetta er nautþroskaheft.

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 19:56
af rango
DJOli skrifaði:Ekki ætla ég að kaupa inn í þetta kjaftæði.

Frekar 'pírata' ég leiknum. Ég er einn þeirra sem styð tölvuleikjaframleiðendur ekki með svona heimskulegum 'breytingum' eins og að geta t.d. ekki save-að sjálfur, eða að VERÐA að vera nettengdur til að spila leikinn. Þetta er nautþroskaheft.


Ég hélt ég myndi aldrei vera sammála þér, Enn það gerðist.
Hefði keypt þennan leik enn nú býð ég frekar eftir einhverju öðru. :happy

Þetta er multiplayer leikur, Það getur ekki verið að þeir fái að selja hann sem single-player?

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 20:13
af Revenant
Bíddu er þetta ekki nákvæmlega það sama og gerðist fyrir Diablo 3?

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 20:25
af DJOli
Sko. Þessi ljóti djöfullegi hringeikjuleikur sem þeir eru að spila þarna, þessir stóru framleiðendadjöflar, þessi leikur er skyldur kvikmynda og tónlistariðnaðinum.

Hver man ekki eftir að 'geta ekki' spilað kvikmynd á dvd disk í tölvunni sinni vegna þess að diskurinn var með vörn?.
Hver man ekki eftir að hafa sett geisladisk í tölvunna með einhverri 'fucked up beyond all religion' vörn sem olli því að diskurinn spilaðist eins og hann væri skemmdur? regluleg 'clicks' eins og rispur.

Hver man svo ekki eftir því þegar Bioshock var gefinn út, og hvert eintak takmarkað við 5 fresh installs?.

Þeir halda áfram að traðka á okkur eins lengi og við leyfum þeim það. Ég segi 'stelum' ÖLLUM DRM-uðu leikjunum!.

Þið vitið það vonandi að það tók innan við viku að brjóta upp drm-ið (sjóveikisvélina) sem sett var í GTA4.

Við sem neytendur eigum því ekki að láta 'stóra ljóta kallinn' traðka á okkur og móta okkur sem hliðhollan og stilltan búfjénað.

Lokaorð?. Skítt með kerfið.

p.s.
Þetta DLC er líka bullshit.
Ég veit ekki með ykkur, en ég keypti borderlands, og eignaði mér þar með réttinn á að 'pírata' leikinn með dlc-unum til að geta spilað með vinum mínum vegna þess að ég er vanur því að viðbætur við tölvuleik sem bundnar eru við það að þær virki AÐEINS á vöruna sem um ræðir séu fríar.

Re: Simcity

Sent: Sun 10. Mar 2013 21:24
af playman
hver vill þetta?

Re: Simcity

Sent: Mán 11. Mar 2013 11:21
af Jónas Þór
ég keypti hann #elskann #slaveforEA #supportDRM

En svona að öllu gríni slepptu þá meiga þeir sem hafa áhuga að detta maske í íslenskt region adda mér á origin, Id: MaLLii

Re: Simcity

Sent: Mán 11. Mar 2013 12:33
af sirkus
Mér finnst þetta mjög góður leikur, verst hvað þeir ákváðu að hafa fáa server-a í byrjun, hef ekki mikið geta spilað hann síðan hann kom, það fer vonandi að batna.
Þetta með að fá frían leik, hefði frekar viljað fá þessa DLC pakka gefins. :)

Sambandi við að þurfa alltaf að vera tengdur, er svo sem alveg sama um það, vantar samt að hafa val um að spila offline region, svona til að grípa í þegar enginn server er laus. Má vera með einhverjum takmörkunum, Minna map eða ekkert "Great work" (bara hugmynd). Síðan varðandi það að geta ekki spilað hann eftir einhver x mörg ár, því að enginn server lengur uppi, þeir hljóta að koma með patch til að menn geti ennþá spilað.

Re: Simcity

Sent: Mán 11. Mar 2013 13:53
af Varasalvi
Gúrú skrifaði:
hfwf skrifaði:leið og ég fæ tölvuna mína til baka og búið verður að cracka leikinn almennilega og henda upp server emulation þá gerir maður það, annars ekki sjhens að fara borga fyrir þetta drm kjaftæði online only dæmiþ


Frekar mikið dick move. Ef þú vilt ekki styðja við DRMið slepptu því þá að kaupa leikinn og ekki stela honum.


Það finnst mér ekki, hann vill mótmæla en samt spila leikinn, því þrátt fyrir vandamál þá er leikurinn ágætur.

Ég veit ekki hversu mikið gagn er í þessu, en ég skrifaði undir þetta https://www.change.org/petitions/electr ... ture-games

Re: Simcity

Sent: Mán 11. Mar 2013 15:20
af Labtec
Örruglega 50% af leiknum er á serverum hjá þeim, allt data er stored á servers
þannig þið sem biðið eftir "crack".....haldið áfram að biða

Re: Simcity

Sent: Mán 11. Mar 2013 16:00
af DJOli
Labtec skrifaði:Örruglega 50% af leiknum er á serverum hjá þeim, allt data er stored á servers
þannig þið sem biðið eftir "crack".....haldið áfram að biða

Enn betra! þarna ertu að gefa í skyn að verið sé að selja okkur vöru sem við fáum ekki í hendurnar nema að við fylgjum neyslureglum sem EA setja.

Re: Simcity

Sent: Mán 11. Mar 2013 16:21
af Dúlli
DJOli skrifaði:
Labtec skrifaði:Örruglega 50% af leiknum er á serverum hjá þeim, allt data er stored á servers
þannig þið sem biðið eftir "crack".....haldið áfram að biða

Enn betra! þarna ertu að gefa í skyn að verið sé að selja okkur vöru sem við fáum ekki í hendurnar nema að við fylgjum neyslureglum sem EA setja.
hahahaha og ef þetta er svona ef þú segir og serverar fara niður eða eithvað gerist hverfur þá slatti af því sem þú hefur gert ef ekki allt.

Mynd

Re: Simcity

Sent: Mán 11. Mar 2013 16:36
af worghal
Dúlli skrifaði:
DJOli skrifaði:
Labtec skrifaði:Örruglega 50% af leiknum er á serverum hjá þeim, allt data er stored á servers
þannig þið sem biðið eftir "crack".....haldið áfram að biða

Enn betra! þarna ertu að gefa í skyn að verið sé að selja okkur vöru sem við fáum ekki í hendurnar nema að við fylgjum neyslureglum sem EA setja.
hahahaha og ef þetta er svona ef þú segir og serverar fara niður eða eithvað gerist hverfur þá slatti af því sem þú hefur gert ef ekki allt.

[img]*mynd*[/img]

uss, thetta er ekkert. Train simulator 2013 og allt dlc kostar um 2500 dollara.