Síða 1 af 1

Minecraft áhugasamir um byggingalist

Sent: Fös 12. Okt 2012 13:09
af sammi4
Nokkrir áhugasamir Minecraft-spilarar viljum gjarnan fá til liðs við okkur góða smiði til að byggja í þessum vinsæla tölvuleik.
Server (vefþjónn) er nýuppsettur og verið að prófa bestu útfærsluna.
Þeir sem hafa góðar hugmyndir endilega látið heyra frá ykkur, jafnvel þó þið þekkið ekki Minecraft, það er ekkert mál.
Kv. smíðagrúppan

Re: Minecraft áhugasamir um byggingalist

Sent: Fös 12. Okt 2012 15:43
af Swanmark
Ég er ekkert svakalegur byggingamaður, en ég þekki nokkra. ;)

Hvað er tilefnið? Bara til gamans? :D

Re: Minecraft áhugasamir um byggingalist

Sent: Fös 12. Okt 2012 18:13
af Xovius
Ég gæti svosem byggt eitthvað aðeins með ykkur :)

Re: Minecraft áhugasamir um byggingalist

Sent: Sun 14. Okt 2012 10:59
af sammi4
Tveir efnilegir komnir til liðs við okkur. Gott mál.
Endilega ef þið vitið af áhugasömum smiðum þá hafið samband. Við vildum helst vera 10-20 í grúppunni, alla vega ekki yfir 20.
Pælingar í gangi með að smíða Hallgrímskirkju, nokkrir útlendingar eru með kirkjuna á YouTube, en hún er ekki rétt hjá þeim og sennilega hafa þeir aldrei komið hingað. Væri gaman að hafa bygginguna eins rétta og hægt er.
Kv. Smíðagrúppan

Re: Minecraft áhugasamir um byggingalist

Sent: Sun 14. Okt 2012 14:24
af DJOli
ég væri game.

Re: Minecraft áhugasamir um byggingalist

Sent: Sun 14. Okt 2012 14:26
af rango
Ég er til í slaginn!