Síða 1 af 1

Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 21:20
af appel
Búinn að downloada og installa Black Mesa, en engin leið til að runna þetta.

Hélt að eitthvað hafi failað í setup-inu, en eftir stutta yfirferð á netinu sé ég að það vantar eitthvað steam sdk blah blah. Hvar í fjandanum finnur maður það og hví bundla þeir það ekki með þannig að þetta er easy piesy?

DÍSUS... kominn með snakk og bjór og ætlaði að fara runna leikinn, en nú þarf ég að standa í einhverjum eltingarleik á netinu.

blah.

Re: Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 21:26
af AntiTrust
Færð ekki aðgang að SDKinu þeirra nema vera member í Steamworks. Væri undarlegt ef þess þyrfti.

Re: Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 21:29
af GuðjónR
appel skrifaði:... kominn með snakk og bjór og ætlaði að fara runna leikinn.

Nohh kósí kvöld hjá mínum :D

Re: Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 21:33
af appel
AntiTrust skrifaði:Færð ekki aðgang að SDKinu þeirra nema vera member í Steamworks. Væri undarlegt ef þess þyrfti.


Uh?? Hvað er "Steamworks"? Ég er ekki með Steam eða neitt.. vildi bara downloada, installa og runna leikinn.... ég er greinilega of fatlaður til að geta keyrt þetta drasl.

Re: Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 21:34
af appel
Ok, búinn að installera Steam, og er að ná að keyra þetta drasl.

Rosalega er þetta Steam dót leiðinlegt, búið að krassa svona fjórum sinnum á nokkrum mínútum, dead slow og unresponsive krap.

Re: Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 21:38
af GuðjónR
appel skrifaði:Rosalega er þetta Steam dót leiðinlegt, búið að krassa svona fjórum sinnum á nokkrum mínútum, dead slow og unresponsive krap.

Þú ættir að reyna að keyra þetta sorp á Mac...þá fyrst fengirðu ógeð :pjuke

Re: Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 21:40
af ASUStek
Ahhh...Snakk,kaldur og kózy :), bara svona seigja frá því!

Re: Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 21:59
af worghal
þetta er svo einfalt, þarft bara source sdk base 2007.

ferð í steam > library > tools > install source sdk base 2007

Re: Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 22:10
af SolidFeather
Installar Steam.

Installar BMS og restin ætti að gerast sjálfkrafa.

Re: Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 23:06
af Frost
Black Mesa kominn upp hjá mér :D Nú verður spennandi að sjá hvernig hann verður.

Re: Black Mesa installing

Sent: Fös 14. Sep 2012 23:15
af appel
Spilar fínt, flottari grafík. En nú er ég fastur í frystinum... hm...

Re: Black Mesa installing

Sent: Lau 15. Sep 2012 21:49
af Daz
Hann er nokkuð flottur svona í byrjun. Spegilfægðu gastankarnir sem ég hljóp framhjá voru magnað flottir. Var samt búinn að gleyma hvað "introið" er langt!

Re: Black Mesa installing

Sent: Lau 15. Sep 2012 22:17
af darkppl
ætti að vera achivemennt að klara intro... :hillarius

Re: Black Mesa installing

Sent: Sun 16. Sep 2012 15:40
af Yawnk
Ég er fastur á partinum þar sem þú ert nýbúinn að hoppa á milli kassa sem hanga í loftinu, svo er annað herbergi þar aðeins lengra inneftir, ég bara hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera þar ](*,)

Re: Black Mesa installing

Sent: Sun 16. Sep 2012 15:50
af vesley
Yawnk skrifaði:Ég er fastur á partinum þar sem þú ert nýbúinn að hoppa á milli kassa sem hanga í loftinu, svo er annað herbergi þar aðeins lengra inneftir, ég bara hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera þar ](*,)



Half life 1 walktrough. http://www.gameboomers.com/wtcheats/pcHh/HalfLife3.htm

Re: Black Mesa installing

Sent: Sun 16. Sep 2012 17:28
af Yawnk
vesley skrifaði:
Yawnk skrifaði:Ég er fastur á partinum þar sem þú ert nýbúinn að hoppa á milli kassa sem hanga í loftinu, svo er annað herbergi þar aðeins lengra inneftir, ég bara hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera þar ](*,)



Half life 1 walktrough. http://www.gameboomers.com/wtcheats/pcHh/HalfLife3.htm

Takk kærlega fyrir þetta :)

Re: Black Mesa installing

Sent: Mán 17. Sep 2012 02:12
af appel
Jæja, ég er búinn að spila Black Mesa. Kláraði á 2 dögum. Vantar auðvitað alien hlutann í hann.

En hann er flottur, greinilega vandað til verka við þetta "remake", klárlega bara upprunalegi Half Life í nýjum klæðum. Maður þurfti að sjá screenshot úr upprunalega leiknum til að átta sig á uppfærslunni. Þó ekki eins flottur og Half-Life 2 finnst mér (sem þó er kominn nokkuð til ára sinna). Ef þú ert að vonast eftir einhverju nýju í leiknum þá er lítið sem breytist nema grafíkin og jú enginið ásamt physics og þess háttar, sami leikur en nýtt engine.

Þótt það séu liðin hvað 12-13 ár síðan maður spilaði þetta síðast þá man maður eftir nánast öllu, þó maður hafi lent í basli við að leysa ákveðnar þrautir. Þannig að þeir breyttu leiknum ekki mikið, bara smá touches hér og þar sem skiptu engu fyrir söguna eða neitt.

En rosalega er leikurinn mikill þrautaleikur, 80% tímanum fór í bara að hoppa og hlaupa til að geta komist áfram. Berðu þetta saman við leiki í dag sem eru heiladauðir point-n'-shoot.

En satt að segja þá var grafíkuppfærslan ekki að gera neitt sérstakt fyrir gameplayið... sami leikur bara flottari, en þegar það eru liðin 12-13 ár þá man maður ekkert hvernig upprunalegi leikurinn leit út, þannig að maður hefur engan samanburð lengur í kollinum, bara finnst einsog leikurinn hafi alltaf litið svona út og áttar sig ekki á muninum.

Re: Black Mesa installing

Sent: Mán 17. Sep 2012 05:54
af axyne
Ég spilaði Halflife 1 fyrir rúmu hálfu ári síðan og samt kom fyrir að ég var fastur í einhverri þrautinni í Black Mesa :skakkur

Ég var ekkert að spá í graffíkinni þegar ég spilaði hann og var ekki að átta mig á muninum.
En það er talsverður munur einsog þetta myndband sýnir vel http://www.youtube.com/watch?v=F2TI4KWbYFs&feature=youtu.be
Sýnir kannski hvað góð graffík er ofmetinn.

Re: Black Mesa installing

Sent: Mán 17. Sep 2012 09:59
af Leviathan
Finnst þetta frábært remake. Það er komið ótrúlega langt síðan ég spilaði Half life, spilaði síðast PS2 portið fyrir örugglega 6-7 árum. En mér minnir endilega að maður hafi ekki getað tekið upp hluti í umhverfinu í upprunalega, var það þannig?

Allavega skemmtilegasta tölvuleikjasession sem ég hef tekið í langan tíma, leikir í dag mættu vera meira í líkingu við þetta.