Síða 1 af 1

Steam leikir og serial númer

Sent: Þri 17. Júl 2012 20:58
af GuðjónR
Ein spurning til ykkar sem allt vitið, er hægt að finna serial númer á steam leikjum?
Málið er að krakkarnir eru stundum að leika sér í Spore, það er hægt að installera á mac frá DVD disk en þeir bjóða ekki uppá leikina á Steam.
Ég er með eitthvað ókeypis dót uppsett sem hefur takmarkað spilagildi. Var að spá ef ég kaupi á Steam Spore Complete Pac á $35 hvort ég gæti þá sett leikinn upp á PC náð í serialinn og notað hann þannig á Mac ?

Re: Steam leikir og serial númer

Sent: Þri 17. Júl 2012 21:25
af upg8
Þú getur alltaf séð serial nr. á Steam leikjum ef þú hægrismellir á þá á listanum í Steam yfir leiki sem þú átt. Hinsvegar veit ég ekki með leiki frá EA þar sem þeir eru gífurlega strangir á allt svona og með DRM activation og margskráningar á mörgum leikjum.