Síða 1 af 1

Battlefield 3 lagg?

Sent: Mið 25. Apr 2012 22:21
af inservible
Blessaðir vaktarar...
Staðan er þannig að keypti Battlefield 3 þegar hann kom út og alltaf hefur hann laggað og ég þess vegna hreinlega ekki nennt að spila hann en langar ú að prófa hann eitthvað. Þetta lýsir sér þannig að það er eins og ég stoppi í svona 1 sec á svona 15-20 sec frest alveg óþolandi.
P.s virðist var alveg sama hvaða stillingum hann er í.
Er ekki einhver snillingur þarna úti með lausn á þessu eða þekkir til?

Er að keyra hann á i7 2600k , gtx 460 sli, 8 gb (1600). ætti að vera meira en nóg right?

Re: Battlefield 3 lagg?

Sent: Mið 25. Apr 2012 22:43
af fremen
er þetta ekki bara hið sívinsæla micro-stutter?

Re: Battlefield 3 lagg?

Sent: Mið 25. Apr 2012 22:45
af inservible
sem er? :/

Re: Battlefield 3 lagg?

Sent: Mið 25. Apr 2012 22:47
af fremen

Re: Battlefield 3 lagg?

Sent: Lau 28. Apr 2012 22:55
af tveirmetrar
Þeir kenna Multi GPU um þetta en ég var með 7970 amd og fann aldrei fyrir þessu. Skipti svo út fyrir GTX 680 og þá finn ég fyrir þessu. V-sync reddar þessu en ég meika ekki "mús" laggið sem kemur þegar v-sync er on. Hef prufað allan fjandann og eitthvað gerði ég til að minnka þetta niður í nánast ekki neitt. Bara prufa að fikta, slökkva á hyper-threading breyta upplausnum, breyta sensi, max fps í console í leiknum osfr. Þannig fékk ég þetta til að hætta að trufla spilunina hjá mér. Tek samt eftir þessu ef ég fylgist með því ](*,)

Re: Battlefield 3 lagg?

Sent: Sun 29. Apr 2012 00:17
af bubble
inservible skrifaði:Blessaðir vaktarar...
Staðan er þannig að keypti Battlefield 3 þegar hann kom út og alltaf hefur hann laggað og ég þess vegna hreinlega ekki nennt að spila hann en langar ú að prófa hann eitthvað. Þetta lýsir sér þannig að það er eins og ég stoppi í svona 1 sec á svona 15-20 sec frest alveg óþolandi.
P.s virðist var alveg sama hvaða stillingum hann er í.
Er ekki einhver snillingur þarna úti með lausn á þessu eða þekkir til?

Er að keyra hann á i7 2600k , gtx 460 sli, 8 gb (1600). ætti að vera meira en nóg right?



bara svona shot in the dark...en er lángt síðan að þú upfæriðr drivernana þína?

Re: Battlefield 3 lagg?

Sent: Mán 30. Apr 2012 13:40
af inservible
Sælir, ég hef reynt mest allt af þessu en einmitt ekkert virðist laga þetta nema þá að þetta kannski minnki aðeins eins og þú talaðir um... finnst þetta skrítið þar sem að ég hefði haldið að þessi búnaður sem ég er með er frekar standard. Allir driverar ávallt up to date og vélin fullkominn að öllu öðru. Einnig er þetta eini leikurinn sem ég hef lent í þessu og hef ég keyrt þá marga síðan ég setti saman þessa vél ekkert second hand og allt tiptop en vandamál er til staðar en hvað það er? er mér ráðgáta og skrítið er farinn að hallast að því að EA sé eitthvað að skíta á sig þar sem að þetta virðist mjög þekkt vandamál án þess að einhver sé að finna einhverja eina lausn.

Re: Battlefield 3 lagg?

Sent: Mán 30. Apr 2012 13:52
af GullMoli
Ég vil meina að þessi leikur sé bara meingallaður.

Sjálfur er ég að lenda í því að leikurinn frýs og crashar svo á desktop eftir 10-20 min af spilun. Þetta er eini leikurinn sem gerir þetta hjá mér, en samt er ég ekkert að lagga í leiknum.

Merkilega margir að lenda í bölvuðu veseni með þennan leik þótt að vélbúnaðurinn sé þokkalega high-end.

Re: Battlefield 3 lagg?

Sent: Mán 30. Apr 2012 18:22
af arons4
Var vesen með hann hjá mér þegar hann var á hægari hdd, eins var hann sífellt crashandi þegar HDD inn sem hann var á slökkti á sér(power save option).

Re: Battlefield 3 lagg?

Sent: Lau 12. Maí 2012 12:43
af inservible
Jæja strákar fór í gegnum allt, prófaði að slökkva á HT og SLI eins og talað er um. Einnig prófaði ég ýmis stillingar ásamt því að setja hann aftur upp á SDD. Niðurstaða: Þessi leikur er bölvað drasl og ekkert nema léleg forritun þar sem að netið er fullt af tillkynningum um galla. Af 6 einstaklingum sem ég þekki sem að spila eða spiluðu hann gáfust 4 hreinlega upp. Flottur en skítaleikur, tala nú ekki um hvað ég get ekki þetta web viðmót hjá þeim.
Takk fyrir tips!

Re: Battlefield 3 lagg?

Sent: Lau 12. Maí 2012 14:28
af tveirmetrar
Þetta er nú meira ruglið. Fékk mér 2 skjái til viðbótar og er að keyra Nvidia Surround núna og þetta er gjörsamlega horfið... 6008x1080 upplausn, rock solid... Skipti niður í 1920 og þá kickar þetta inn aftur... haha :face