Síða 1 af 6
DIABLO 3 Open Beta Weekend 20 - 23 apríl
Sent: Mið 11. Apr 2012 00:04
af jomminn
Fyrsti þráðurinn sem ég set svona upp ...en einhverntíman verður maður að byrja.
Ég var bara að velta fyrir mér hverjir ætluðu að fá sér Diablo 3 þegar hann kemur
...sjálfur er ég búinn að pre-ordera hann af blizzard og ná í hann með góðar væntingar
:D:D tók samt eftir því að elkó er að selja hann ódýrara en blizzard í pre-order eftir að ég keypti hann :/
Ég sjálfur spilaði Diablo 2 eitthvað þegar hann var sem stæðstur en hef til dæmis ekki spilað hann með öðrum og mér skillst að þessi eigi að vera rosalega mikið hugsaður sem online/co-op leikur og mikið lagt uppúr þeim hluta leiksins.
Hérna er smá myndband sem sýnir spilun og mun á grafík og þessháttar í Diablo 1, 2 og 3 og verð að segja að 3 lítur alls ekki illa út
|
http://www.youtube.com/watch?v=m0M4sksBOtI |
En já ...hverjir ætla að fá sér Diablo 3 og hefur fólk einhver comment um hann til þeirra sem kanski hafa ekki spilað fyrri leikina og jafnvel ef vaktarar hafa verið að kynna sér leikinn eitthvað sérstaklega ?
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 00:09
af worghal
fæ hann frítt hjá blizzard og sjálfur mun ég stunda auction house eins og brjálæðingur.
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 00:12
af jomminn
worghal skrifaði:fæ hann frítt hjá blizzard og sjálfur mun ég stunda auction house eins og brjálæðingur.
ok ...færðu hann fríann vegna árs samning í wow þá ?
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 00:13
af worghal
yup.
en ég mun líklegast kaupa hann í collectors ef það kemur til landsins.
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 00:16
af littli-Jake
worghal skrifaði:yup.
en ég mun líklegast kaupa hann í collectors ef það kemur til landsins.
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=1111Bara 20 K FML
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 00:19
af worghal
well, star wars var á 25k og ég keypti það.
aulinn ég
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 00:21
af Frost
Búinn að pre-ordera og bíð spenntur!
Legg til að það verði stofnaður hópur svo menn geti spilað saman.
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 01:19
af jomminn
Frost skrifaði:Búinn að pre-ordera og bíð spenntur!
Legg til að það verði stofnaður hópur svo menn geti spilað saman.
alveg sammála þér þar ...var alveg frekar hissa á því að það skildi ekki vera kominn upp þráður fyrir leik af þessari stærðargráðu :p
en ég styð þessa hugmynd með að stofna hóp ...það væri snilld !
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 01:24
af DaRKSTaR
keypti collectors edition einfaldlega útaf því að ég elskaði diablo 2 lod og gat ekki hugsað mér annað en ce fyrir diablo 3.
kannski maður nái að mala inn peninga í diablo 3 eins og ég gerði í d2.
byrja í softcore svona til að specca þetta og læra á þetta áður en ég hendi mér í hardcore og að sjálfsögðu ætla ég að spila á us serverum, kaninn er svo mikið fyrir að kaupa hluti fyrir peninga þannig að maður
ætti að getað malað inn á ah sérstaklega á hc items.
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 01:31
af jomminn
hefur einhver kynnt sér hvað er í boði í multiplayer partinum á honum ...það verður pvp ...co-op veit ég ...auction house ?
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 01:36
af worghal
jomminn skrifaði:hefur einhver kynnt sér hvað er í boði í multiplayer partinum á honum ...það verður pvp ...co-op veit ég ...auction house ?
pvp kemur ekki allveg strax samt.
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 01:41
af GullMoli
jomminn skrifaði:hefur einhver kynnt sér hvað er í boði í multiplayer partinum á honum ...það verður pvp ...co-op veit ég ...auction house ?
Smá kynning á Auction House;
http://www.youtube.com/watch?v=4ir6zrHXuO0Annars mun ég hiklaust versla mér hann, skemmir ekki að hann kemur út daginn sem ég klára í prófum
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 02:41
af Frost
GullMoli skrifaði:jomminn skrifaði:hefur einhver kynnt sér hvað er í boði í multiplayer partinum á honum ...það verður pvp ...co-op veit ég ...auction house ?
Smá kynning á Auction House;
http://www.youtube.com/watch?v=4ir6zrHXuO0Annars mun ég hiklaust versla mér hann, skemmir ekki að hann kemur út daginn sem ég klára í prófum
Ég er einminn að lenda í því. Seinasta prófið mitt er 15. maí og sé varla betri leið til að fagna prófalokum heldur en að byrja í þessum leik!
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 08:07
af ManiO
Fer í aðgerð 22. maí. Mun sennilega vera á e-m súrum verkjatöflum að spila D3, SC2, FO:NV og skemmta mér konunglega.
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 08:21
af Senko
Pantaði Collectors Edition hjá Elko, hlakka mikið til að fá þennan í hendurnar, hef ekki fundið skemmtilega leyki nýlega og er farinn að leiðast, hann kemur á fínum tíma
Annars er ég mikið að spá að panta mér viku frí í vinnuni frá 15 Maí, nerding it up too much perhaps?
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 08:34
af Frost
Senko skrifaði:Pantaði Collectors Edition hjá Elko, hlakka mikið til að fá þennan í hendurnar, hef ekki fundið skemmtilega leyki nýlega og er farinn að leiðast, hann kemur á fínum tíma
Annars er ég mikið að spá að panta mér viku frí í vinnuni frá 15 Maí,
nerding it up too much perhaps?
Nei nei það er aldrei neitt of mikið
Annars langaði mig rosalega mikið í Collectors Edition en hafði ekki fjármagnið...
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 14:41
af Varasalvi
Frekar búa til "Farm Team".
24/7 farm fyrir items til að selja og við verðum allir ríkir! Rich i tell ya!
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 20:35
af DaRKSTaR
Varasalvi skrifaði:Frekar búa til "Farm Team".
24/7 farm fyrir items til að selja og við verðum allir ríkir! Rich i tell ya!
það er ekki nokkur spurning svona miðað við hvernig gengið er í dag
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 20:56
af Nariur
ég pre-orderaði hann á Amazon, fáránlegt af Blizz að rukka jafn margar evrur og dollara fyrir leikinn
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 21:01
af worghal
Nariur skrifaði:ég pre-orderaði hann á Amazon, fáránlegt af Blizz að rukka jafn margar evrur og dollara fyrir leikinn
markaðsetning
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 21:12
af Saber
Spurning til þeirra sem ætla sér að græða á þessu. Ætlið þið að taka við greiðslum í gegnum Paypal?
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 22:18
af J1nX
búinn að verað spila betuna nokkuð grimmt.. get ekki beðið eftir að leikurinn lendi á klakanum.. maður þarf að farað kaupa sér geisladrif og henda í tölvuna þar sem ég mun reyna að kaupa collectors versionið
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 22:50
af DaRKSTaR
J1nX skrifaði:búinn að verað spila betuna nokkuð grimmt.. get ekki beðið eftir að leikurinn lendi á klakanum.. maður þarf að farað kaupa sér geisladrif og henda í tölvuna þar sem ég mun reyna að kaupa collectors versionið
þarft ekki drif.. nóg fyrir þig að klikka á add game á battle.net accountinum og setja cdkeyinn inn þá geturðu downlodað honum.
Re: DIABLO 3
Sent: Mið 11. Apr 2012 23:42
af J1nX
já það er kannski rétt.. maður getur bara horft á behind the scenes diskinn í sjónvarpinu
Re: DIABLO 3
Sent: Fim 12. Apr 2012 01:59
af Tesy
Perfect tími
Er búinn í prófum 11. maí.
Hvernig virkar þetta AH? Verður bara lagt inná þig? Þetta verður þá bara nýja vinnan mín.