Síða 1 af 2

HL2 Gylltur í Ágúst!

Sent: Mán 05. Júl 2004 23:48
af ErectuZ
HL2 verður gylltur á Ágúst sem gefur fram að hann verður gefinn út einhvern tíman enda sumars. En, miðað við að þetta er Valve....Hver veit hvenær hann kemur út? :P

Valve eru líka búnir að gefa fram hve stór hann verður in total. Á disk(um) verður hann samtals 2GB, en þegar uppsettur á harða drifinu verður hann um 3GB. Svo á auðvitað eftir að bætast við CS: Source, HL: Source og DOD: Source. CS: source er hinn venjulegi Counter Strike okkar nördanna, en aðeins á hann eftir að nota nýju source-vélinni sem Valve gerði í tilefni HL2. HL: Source verður hinn venjulegi "original" Half Life leikur, sem kom út árið 1998, með sama storyline og allt það, nema bara notandi nýju Source Vélarinnar. DOD er hinn sívinsæli Day of Defeat, en það er Half-Life mod. Hann kemur líka út í Source-formi, og býst Valve við miklum vinsældum.

Meiri (Well, varla) upplýsingar hér: http://www.megagames.com/news/html/pc/h ... gust.shtml

Sent: Þri 06. Júl 2004 01:42
af machinehead
Maður missir nú bara smátt og smátt áhugann á þessum leik,
en ef maður á samt pottþétt eftir að kaupa sér hann þegar hann kemur út!

Sent: Þri 06. Júl 2004 03:30
af fallen
ISS! það er aldrei hægt að missa áhugann á hl.

Sent: Þri 06. Júl 2004 03:34
af machinehead
Jahh, mér er allavega farinn að leiðast biðin!

Sent: Þri 06. Júl 2004 08:19
af ErectuZ
Hverjum er ekki að leiðast hún? :?

Sent: Þri 06. Júl 2004 11:13
af GuðjónR
Rainmaker skrifaði:Hverjum er ekki að leiðast hún? :?

mér...

Sent: Þri 06. Júl 2004 11:44
af skipio
Gaman, gaman.

Þá getiði loksins hent gamla Half Life út af tölvunni.

Sent: Lau 10. Júl 2004 13:00
af Icarus
fyrst var maður frekar spenntur fyrir þessu og alveg ógeðslega flott en maður er löngu búinn að missa áhugann á þessu.

Sent: Lau 10. Júl 2004 13:58
af GuðjónR
Þetta er farið að verða eins og StarWars og Matrix...biðin löng og eftirvængingin eftir því, útkoman getur því varla orðið annað en vonbrigði.

Sent: Sun 11. Júl 2004 21:13
af Hawley
machinehead skrifaði:Maður missir nú bara smátt og smátt áhugann á þessum leik,
en ef maður á samt pottþétt eftir að kaupa sér hann þegar hann kemur út!

Icarus skrifaði:fyrst var maður frekar spenntur fyrir þessu og alveg ógeðslega flott en maður er löngu búinn að missa áhugann á þessu.


þið vitið það jafn vel og ég að þið eigið báðir eftir að kaupa hann og spila í gegn

:D

Sent: Sun 11. Júl 2004 22:09
af skipio
Já, mér þykir leitt að segja það að ég skyldi kaupa miða á bæði Matrix framhöldin semog nýju Star Wars myndirnar. :oops:

Dýr lexía, ef maður hugsar út í það (4x800+nammi). En ég skal ekki láta freistast núna - læri af reynslunni og kaupi ekki nýja Half Life því hann sökkar örugglega eins og fyrrnefndar "kvikmyndir".

Sent: Sun 11. Júl 2004 22:20
af Arnar
skipio sökkar örugglega?

Ekki segja eitthvað sem þú veist ekki.

Sent: Sun 11. Júl 2004 22:34
af Steini
skipio skrifaði:Já, mér þykir leitt að segja það að ég skyldi kaupa miða á bæði Matrix framhöldin semog nýju Star Wars myndirnar. :oops:

Dýr lexía, ef maður hugsar út í það (4x800+nammi). En ég skal ekki láta freistast núna - læri af reynslunni og kaupi ekki nýja Half Life því hann sökkar örugglega eins og fyrrnefndar "kvikmyndir".



Ég varð nú ekki fyrir miklum vonbrigðum með þessar myndir þótt þær hefðu mátt vera betri og við vitum ekkert hvort að leikurinn eigi eftir að "sökka"

Sent: Sun 11. Júl 2004 22:48
af Zaphod
Þetta er allavega leikur sem ég mun aldrei kaupa enda hef ég aldrei spilað half life eða neitt af moddunum fyrir hann ...

Sent: Sun 11. Júl 2004 22:58
af skipio
Arnar skrifaði:skipio sökkar örugglega?

Ekki segja eitthvað sem þú veist ekki.


"Læra af reynslunni", skiljú? :)

Sent: Mán 12. Júl 2004 14:52
af Icarus
Hawley skrifaði:
machinehead skrifaði:Maður missir nú bara smátt og smátt áhugann á þessum leik,
en ef maður á samt pottþétt eftir að kaupa sér hann þegar hann kemur út!

Icarus skrifaði:fyrst var maður frekar spenntur fyrir þessu og alveg ógeðslega flott en maður er löngu búinn að missa áhugann á þessu.


þið vitið það jafn vel og ég að þið eigið báðir eftir að kaupa hann og spila í gegn

:D


ég mun ALDREI kaupa leik sem heitir nafninu Half-life þótt að þeir skelli númerinu tveir fyrir aftan.

Sent: Mán 12. Júl 2004 15:16
af Snorrmund
nú?

Sent: Mán 12. Júl 2004 21:00
af Icarus
Stocker skrifaði:nú?


af því að það brýtur gegn öllu sem ég trúi á :)

Sent: Mán 12. Júl 2004 21:11
af GuðjónR
Icarus skrifaði:af því að það brýtur gegn öllu sem ég trúi á :)

Brýtur það gegn vaktinni?

Sent: Mán 12. Júl 2004 21:11
af ErectuZ
Icarus skrifaði:
Stocker skrifaði:nú?


af því að það brýtur gegn öllu sem ég trúi á :)


... Ekki ertu þýskur ...? :P

Sent: Mán 12. Júl 2004 22:49
af skipio
Icarus skrifaði:
Stocker skrifaði:nú?


af því að það brýtur gegn öllu sem ég trúi á :)

Og á hvað trúir þú, leyfi ég mér að spyrja?

Sent: Þri 13. Júl 2004 05:05
af gnarr
[quote="skipio"]Dýr lexía, ef maður hugsar út í það (4x800+nammi).

er HÆGT að sjá eftir nammi peningum ;) annars voru Matrix myndinrar allar 3 með þeim allra verstu myndum sem ég hef séð. það var samt gaman að sjá nýjar tæknibrellur í fyrstu, en myndin er engu að síður ein sú versta sem ég hef séð. keanu reaves náttla alltaf jafn góður *HÓST*

Sent: Þri 13. Júl 2004 11:05
af skipio
gnarr skrifaði:er HÆGT að sjá eftir nammi peningum ;) annars voru Matrix myndinrar allar 3 með þeim allra verstu myndum sem ég hef séð. það var samt gaman að sjá nýjar tæknibrellur í fyrstu, en myndin er engu að síður ein sú versta sem ég hef séð. keanu reaves náttla alltaf jafn góður *HÓST*


Ég verð nú að segja að mér fannst Matrix frábær þegar ég sá hana í bíó á sínum tíma ('99) en þá sá ég hana á óvissusýningu og hafði því mjög óljósa hugmynd um hvað hún væri. Hún kom því skemmtilega á óvart. Hinsvegar er hún afar leiðinleg í enduráhorfingu og sömuleiðis eru hinar tvær VR-myndirnar það árið, Existenz eftir Cronenberg og 13th floor mun áhugaverðari myndir, ef út í það er farið.
Svo mæli ég eindregið með öðrum nýlegum VR-vísindaskáldsögu-thriller, myndinni Cypher ( http://www.imdb.com/title/tt0284978/ ). Frábær mynd sem fáir hafa heyrt um og enn færri séð. Fæst í Laugarásvídjó.

En ég sé svo sannarlega eftir öllum þeim hundruðum þúsunda króna sem hafa farið í sælgæti, gos og skyndibita síðustu árin. Hugsið ykkur hvað það hefði nú verið miklu sniðugra að borða hafragraut í staðinn og fá sér fyrir peninginn þá einsog 10 terrabæta harðan disk? Hint hint! :P

Sent: Þri 13. Júl 2004 11:07
af Sup3rfly
Var þessi þráður ekki um Half Life 2?

Sent: Þri 13. Júl 2004 11:16
af skipio
Sup3rfly skrifaði:Var þessi þráður ekki um Half Life 2?


Utanefnisþræðir eru alltaf miklu skemmtilegri. :wink: