Síða 1 af 1
Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 05:00
af jomminn
Góðann dag ...ég var að velta fyrir mér áður en ég kaupi leikinn hvort tölvan mín ráði við hann ,
ég er með
Intel P965/G965 móðurborð
Intel Core 2 Duo E6420 Örgjörfa
4 gb DDR2 Corsair minni
en er að fara að kaupa mér skjákort ... Radeon HD 5750 1GB GDDR5
hvað haldið þið ...ætti ég að geta keyrt hann í allavegana low grafics
Langar ekkert lítið í þennann leik !!!
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 05:04
af Kristján
vá hvað þessi örri á eftir að vinna fyrir sínu.
það er mælt með quad core.
veit svo sem ekki budgetið fyrir skjákorti en fá þér 6k seriuna frá amd 6850 td, 8k+- dýrara en 5750
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 05:16
af jomminn
er að hugsa um að kaupa af vaktara ...er með auga á Sapphire Vapor-X HD 5750 1GB GDDR5 korti sem er til sölu hér á vaktinni
er eins og er með 8600gt 256 mb kort ...þannig að þetta yrði alveg stór uppfærsla fyrir mig hehe
http://www.testseek.com/labs/reviews/re ... rd/?p=2932en leikurinn ætti að vera spilanlegur ? það er planið að kaupa móðurborð og örgjörfa fljótlega ...en þangað til ...þá ætti ég að geta spilað hann er það ekki ?
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 05:28
af Kristján
já var einmitt að skoða sama kortið
ætla að reyna að safna samt fyrir semi high end kort.
ef þú getur fundið annað svona og farið i xfire þá eftir mjög vel settur.
hellingur af folki núna að selja sín kort til að uppfæra þannig að það er gott að vera á markaðinum fyrir notuðum kortum.
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 08:14
af audiophile
Já, en hann mun keyra eins og kúkur.
Mín keyrir hann þolanlega medium í 1920x1080 því skjákortið er í slappara lagi. Held að
lágmark fyrir skjákort sé ATI 6850/6870 eða Nvidia 560/560 Ti.
Þú ert líka með slappan örgjörva. Þarft 4 kjarna til að keyra hann almennilega. Ég keyrði betuna á E6750 klukkaðan í 3.2ghz og hann keyrði eins og skítur. Það var bara hreint út sagt ömurlegt og ekki þess virði að spila hann þannig. Eftir a' ég uppfærði í 4ja kjarna skánaði hann til muna og mun verða enn betri þegar betra skjákort kemst í kassann.
Ódýrasta leiðin til að spila BF3 fyrir þá sem eru ekki með öflugar tölvur er að kaupa sér Playstation 3.
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 08:40
af blitz
Keyrði betuna á E5200 yfirklukkaðan í 4ghz, 4gb ddr2 800 og Nvidia GTS 250 1gb og BF3 keyrði eins og kúkur @ medium í 1600x1200
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 08:56
af zedro
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 13:44
af moppuskaft
Sæll þú spila hann allveg með þinni tölvu, þá með nýa skjákortið. En í medium eða low. keiptu þér leikinn og þá er hann kominn allavegana
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 14:29
af Fumbler
Virnir okkar hjá Tomshardware tóku BF3 og testuðu með 30 skjákortum og 5 örgjörvum í flestum samsetningum. Sjáið hér niðurstöðurnar
http://www.tomshardware.com/reviews/bat ... or=RSS-182Líklega sniðugt að bæta smá við verðið á skjákortinu og fá sér 6850
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 16:02
af jomminn
6850 kortið ...það munar bara 20þús. kalli þar og það er svosem alveg peningur sem er hægt að nota þá í betri örgjörfa eða eitthvað
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 16:15
af Kristján
hvað er malið með 5k seríuna að vera betri en 6k serían???
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 16:18
af SolidFeather
Þeir fokkuðu upp allri nafngjöf að ég held.
6850 er ekki arftaki 5850 eins og maður myndi halda heldur 5770.
5970 er dual GPU kort á meðan að 6970 er single GPU. Mabara alleeeeg.
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Mán 31. Okt 2011 20:49
af audiophile
6950 er í raun arftaki 5850 og 6970 arftaki 5870.
68xx kortin eru bara eitthvað svona millibils dæmi.
Re: Vantar að vita hvort ég geti spilað BF3
Sent: Þri 01. Nóv 2011 23:26
af Varasalvi
Kristján skrifaði:hvað er malið með 5k seríuna að vera betri en 6k serían???
Ég er með 6970 og og tek undir þetta quote
Powerful single-GPU cards like the GeForce GTX 580 and Radeon HD 6970 failed to average 60fps using the high quality settings with MSAA disabled at 1920x1200. The 'Ultra' quality settings reduced frame rates to around 40fps.
Ég bara get ekki náð steady 60fps!