Síða 1 af 1

HR LAN mót

Sent: Fim 11. Ágú 2011 08:55
af pzykojozh
Var bara að pæla hvort einhver hér ætlar á LAN mótið í CS 1.6, CSS og Starcraft 2 í Háskóla Reykjavíkur um helgina. Svo verða líka fleirri leikir í gangi.

Ef ykkur vantar upplýsingar um mótið þá fæst það hér: http://hringurinn.lanmot.is

Re: HR LAN mót

Sent: Fim 11. Ágú 2011 09:28
af beggi90
Myndi klárlega mæta ef ég væri ekki erlendis.

Væri samt til í að sjá Age of Empires II sem leik á svona lani eitthverntímann ef það næðust nógu margir.

Re: HR LAN mót

Sent: Fim 11. Ágú 2011 09:31
af ManiO
Af hverju vissi maður ekki af þessu? ](*,) Hefði verið til í að taka þátt í SC2 mótinu.

Re: HR LAN mót

Sent: Fim 11. Ágú 2011 09:45
af J1nX
held það sé ekki of seint að skrá sig.. annars veit ég það ekki, voða lítið af upplýsingum sem maður fær þarna hjá þeim, vantar alveg hvenær húsið opnar og hvenær skráningu lauk

Re: HR LAN mót

Sent: Fim 11. Ágú 2011 09:53
af ManiO
J1nX skrifaði:held það sé ekki of seint að skrá sig.. annars veit ég það ekki, voða lítið af upplýsingum sem maður fær þarna hjá þeim, vantar alveg hvenær húsið opnar og hvenær skráningu lauk


Kemst ekki um helgina. Hefði mögulega getað gert einhvers konar ráðstafanir með smá fyrirvara.

Re: HR LAN mót

Sent: Fim 11. Ágú 2011 11:07
af J1nX
meinar það :D ég og gaulzi reiknum allaveganna með því að vera þarna og casta starcraft leikjum, getið fundið okkur á justin.tv/gaulzi .. ef það breytist eitthvað þá læt ég bara vita á þessum þráði :P

Re: HR LAN mót

Sent: Fim 11. Ágú 2011 11:12
af ManiO
J1nX skrifaði:meinar það :D ég og gaulzi reiknum allaveganna með því að vera þarna og casta starcraft leikjum, getið fundið okkur á justin.tv/gaulzi .. ef það breytist eitthvað þá læt ég bara vita á þessum þráði :P


Eru einhverjar aðrar SC2 keppnir í gangi á klakanum?

Re: HR LAN mót

Sent: Fim 11. Ágú 2011 12:00
af J1nX
getur fylgst með á 1337.is :P nýbúnir að halda eitt onlinemót og stefnum á að halda annað fljótlega eftir lanmótið :P annars alltaf gott líka bara að fylgjast með á iceland rásinni ingame :D

Re: HR LAN mót

Sent: Fim 11. Ágú 2011 14:00
af pzykojozh
Já ég hangi þar inni regluglega.

Það er samt ekki of seint til að skrá sig, ef einhver var að pæla. Þarft bara að skrá þig á síðunni og borga við hurðina. Svo er bara gaman!

En já, það eru mjög litlar upplýsingar en við látum það virka.

Re: HR LAN mót

Sent: Fös 12. Ágú 2011 12:02
af J1nX
ef þið voruð ekki búnir að fá að vita þá opnar húsið kl 4 og mót er áætlað að byrji um 7leytið.. svo verða ég og gaulzi ferskir að casta starcraft leikjum á justin.tv/gaulzi fyrir þá sem heima sitja :D ef það breytist eitthvað mun ég svo peista því í þennan þráð :D

Re: HR LAN mót

Sent: Fös 12. Ágú 2011 12:04
af fannar82
Binni,

ertu að spila cs 1,6 þarna líka?