Síða 1 af 1

klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 19:05
af Haxdal
Keypti PS3 í gær fyrir strákinn svo hann geti spilað við félagana en það kemur alltaf svona clicking noise þegar ég set disk í vélina eða ejecta honum út.
Eina sem ég fann á google um clicking hljóð var þegar verið er að lesa disk, ekkert sem heyrðist bara þegar diskurinn var á leiðinni inn eða út.

Ég veit ekki betur en að það heyrist allt eðlilega í henni að öðru leiti, engin klikk eða óeðlileg hljóð þegar strákurinn er að spila Black Ops eða þegar hún er að lesa diskinn.

Er þetta eitthvað til að hafa áhyggjur af?.. ætti ég að fara með hana niður í Elko og fá henni skipt út?

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 19:15
af worghal
hversu hávært er þetta click ?

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 19:19
af teitan
Ertu að meina hljóð eins og í þessu?: http://www.youtube.com/watch?v=uxWiMFq32s8

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 19:49
af worghal
ef að þetta er eins og á myndbandinu, þá er þetta bara af því að það er ekki sama drif í báðum vélum, slim vélarnar eru með háværari mechanisma, that is all.

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 19:58
af Haxdal
teitan skrifaði:Ertu að meina hljóð eins og í þessu?: http://www.youtube.com/watch?v=uxWiMFq32s8

nei, ekki svona thumping hljóð.
Meira svona einsog eitthvað sé ekki að ná gripi, eða það séu einhver tannhjól að snúast sem eru ósmurð eða eitthvað.

Ég tók video af þessu í símanum mínum og henti á Youtube, ekki bestu myndgæðin en klikk hljóðið heyrist.
http://www.youtube.com/watch?v=BzkX_Dr-17Y
önnur útgáfa af videoinu þar sem hljóðið er betur í synci : http://www.youtube.com/watch?v=3A3ErVYRfQA

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 20:06
af beatmaster
Ég myndi fara og skila henni, þetta getur ekki talist eðlilegt (sagt án þess að hafa sérfræðiþekkingu á PS3)

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 20:32
af teitan
Farðu og fáðu nýja... þetta er ekki eðlilegt hljóð... það er eins og það sé eitthvað laust inni í henni :shock:

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 20:42
af worghal
já sæll, þetta er gallað eintak, endilega reyndu að fá nýja :O

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:52
af Haxdal
Já, held það sé ferð niður í Elko á morgun með vélina og athuga með þetta.

Spurði þá líka á PSX.is og þau svör sem ég hef fengið voru líka að fara bara með hana sem fyrst í búðina.

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 23:00
af gutti
Mæla með að fara með vélinna eins hinir búnir að segja :!: og auk þess alls ekki gleyma taka nótunna með þegar þú ferð skila eða ert með kennitölu skráð hjá þeim

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Mið 03. Ágú 2011 23:02
af Jimmy
Ég fór með mína vél í Elko dagsgamla útaf fáránlegu hljóði í viftunni og það var djööööfull að fá henni skipt út..

Það sást ekki á einu né neinu á vélinni og allar umbúðir og allt var í 100% standi en samt vildi gæjinn ekki skipta henni út fyrir mig af því að hann "Gat ekki tekið inn gallaða vél" en samt sem áður vildi hann ekki skipta henni út nema senda hana á verkstæði til að staðfesta bilun.

Þurfti að fara með hana niður í Són og þar ætlaði gæjinn að láta mig fá eldra módel heldur en það sem ég keypti daginn áður af því að það voru einu vélarnar sem hann átti refurbished hjá sér.
Endaði á að fara aftur niðrí Elkó og bíða í einhverjar 40min eftir að gæjinn hringdi í yfirmann og fékk leyfi til að láta mig fá nýja vél..

Allan tímann var ég mikið að spá í að fá vélina aftur og fara með hana uppí Lindir og skila henni, mæta síðan aftur niðrí Skeifu og kaupa nýja, eða öfugt, hefði sparað mér einhverja 2 tíma og helvítis hellings af rifrildum.

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Fim 04. Ágú 2011 19:16
af Haxdal
Fór með vélina í Elko í dag og talaði þar við stelpu sem heitir Hildur í vöruafhendingunni sem lét mig fá nýja vél, var ekkert vesen að fá henni skipt.

Var að tengja hana og drifið í nýju virkar eðlilega, ekkert klikk hljóð og bara smooth gangur þegar diskur fer inn og út.

Re: klikk í ps3 þegar diskur fer inn/út

Sent: Fim 04. Ágú 2011 21:14
af Jimmy
Hún mætti kenna hinum helvítis haugnum í vörumóttökunni eitt eða tvennt.