Síða 1 af 2

Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Þri 26. Júl 2011 23:21
af gardar
Eru menn búnir að prófa leikina í humble bundle 3? :)

Ég er búinn að versla alla hina humble bundle leikina, maður verður að styrkja gott málefni :happy

http://www.humblebundle.com/

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Þri 26. Júl 2011 23:33
af Daz
Bara Crayon Physics er nóg fyrir mig, en þetta er flókið mál, hvað borgar maður mikið og hver fær hvað :o

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Þri 26. Júl 2011 23:36
af gardar
Cryon physics lookar awesome \:D/

Annars borgaði ég 10$ eins og í öll hin skiptin, ég er svo cheap :oops:

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Þri 26. Júl 2011 23:40
af Daz
Ég kláraði demoið af Crayon physics einhverntíman, fannst það mjög skemmtilegt. Nógu einfalt fyrir mig!

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Þri 26. Júl 2011 23:43
af gardar
Ég spila einmitt einungis bara svona leiki, nógu einfaldir og ekki of tímafrekir....

Svo verður maður náttúrulega að styðja menn sem búa til leiki fyrir linux ;)

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Mið 03. Ágú 2011 23:06
af GullMoli
Búið er að bæta við þetta tilboð!

Ef þú kaupir Bundle 3 og borgar meira en average greiðslan er þá færðu Umble Bundle 2 frítt með, ég var sjálfur einmitt að skella mér á þetta núna.

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Mið 03. Ágú 2011 23:32
af gardar
GullMoli skrifaði:Búið er að bæta við þetta tilboð!

Ef þú kaupir Bundle 3 og borgar meira en average greiðslan er þá færðu Umble Bundle 2 frítt með, ég var sjálfur einmitt að skella mér á þetta núna.


Auk þess sem þeir bættu við leik, Steel Storm: Burning Retribution! \:D/

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Fös 05. Ágú 2011 17:59
af capteinninn
Var að skella mér á þetta, vantar einhverja gourmet leiki á litlu skólatölvuna

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Fös 05. Ágú 2011 18:46
af MarsVolta
Ég skellti mér á þetta :), hvet alla til að prófa machinarium sem er þarna inní extra pakkanum, án efa einn allra skemmtilegasti leikur sem ég hef spilað.

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Fös 05. Ágú 2011 18:56
af coldcut
Hver segir svo að Linux-notendur séu þeir sem tíma ekki að borga fyrir hugbúnað...

Total Payments: $1,547,993.97
Purchases #: 284,135
Average purchase: $5.45
Average Windows: $4.52
Average Mac: $7.22
Average Linux: $11.81


Ætli maður splæsi ekki í þetta til þess, einmitt eins og Garðar segir, að styðja þá sem búa til leiki fyrir Linux.

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Fös 05. Ágú 2011 19:13
af GullMoli
Atom Zombie Smasher var að bætast við í hópinn. Ég keypti hann nú stakan á steam fyrir nokkrum vikum, virkilega góður leikur og veeel þess virði.

EDIT; ef þið kaupið pakkan og fleiri leikir bætast við seinna, þá fáið þið þá samt, bara svo það sé á hreinu.

EDIT2; hægt að activate'a allt saman á steam, það er eitt seríal fyrir Bundle 3 pakkann og svo eitt fyrir Bundle 2 sem fer beint í steam.

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Þri 01. Nóv 2011 18:43
af gardar
Jæja, kominn nýr humble bundle!

http://www.humblebundle.com/

Eru menn ekki búnir að versla? :)

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Þri 01. Nóv 2011 18:53
af GullMoli
gardar skrifaði:Jæja, kominn nýr humble bundle!

http://www.humblebundle.com/

Eru menn ekki búnir að versla? :)


Keypt! Eins og öll bundle frá þeim.

Annað svipað Bundle dæmi; http://www.indieroyale.com/

Re: Humble Bundle 3, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Þri 01. Nóv 2011 22:02
af gardar
GullMoli skrifaði:
gardar skrifaði:Jæja, kominn nýr humble bundle!

http://www.humblebundle.com/

Eru menn ekki búnir að versla? :)


Keypt! Eins og öll bundle frá þeim.

Annað svipað Bundle dæmi; http://www.indieroyale.com/


Þeir fá ekki minn pening þar sem draslið þeirra virkar ekki á linux :thumbsd

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Mán 19. Mar 2012 23:32
af gardar
Eru ekki allir búnir að tryggja sér nýja humble bundle?

http://www.humblebundle.com

Android útgáfur af leikjunum núna innifaldar :happy

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Mán 19. Mar 2012 23:33
af worghal
ætla aðeins að bíða með þennan.
yfirleitt bæta þeir leikjum við aðeins seinna :P

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Mán 19. Mar 2012 23:34
af gardar
worghal skrifaði:ætla aðeins að bíða með þennan.
yfirleitt bæta þeir leikjum við aðeins seinna :P


Ef þú ert búinn að kaupa bundle-ið þá færðu leikina sem bætast við líka :)

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Mán 19. Mar 2012 23:35
af worghal
gardar skrifaði:
worghal skrifaði:ætla aðeins að bíða með þennan.
yfirleitt bæta þeir leikjum við aðeins seinna :P


Ef þú ert búinn að kaupa bundle-ið þá færðu leikina sem bætast við líka :)

núnú, ekki vissi ég af því :D

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Mán 19. Mar 2012 23:57
af gardar
Stundum er það reyndar þannig að þú færð ekki einhverja auka leiki, nema þú hafir borgað meira en avrage. En þá er einmitt best að hafa keypt bundle-ið snemma, því ef ég skil stærðfræðina og vísindin rétt þá hækkar meðaltalið þegar það borga allir hærra en meðalverð :)

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Fim 31. Maí 2012 21:14
af GullMoli
http://www.humblebundle.com/

Þetta verður varla betra! Mynd

Á sjálfur Bastion, leikur sem kom mér virkilega á óvart og ég mæli sterklega með.

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Fim 31. Maí 2012 22:10
af capteinninn
Vá hvað hann lítur vel út þessi pakki, kaupi hann líklega

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Fim 31. Maí 2012 23:49
af Daz
At first I was like
=;
but then I buyeded it. :happy

Bastion lookar vel og ég kláraði aldrei psychonauts

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Fim 31. Maí 2012 23:50
af Akumo
Daz skrifaði:At first I was like
=;
but then I buyeded it. :happy


Í alvöru? Bought*

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Fim 31. Maí 2012 23:54
af dori
Akumo skrifaði:
Daz skrifaði:At first I was like
=;
but then I buyeded it. :happy


Í alvöru? Bought*

Veistu hvað er að fiska?

Re: Humble Bundle, borgaðu þá upphæð sem þú vilt

Sent: Fim 31. Maí 2012 23:59
af worghal
Akumo skrifaði:
Daz skrifaði:At first I was like
=;
but then I buyeded it. :happy


Í alvöru? Bought*

Mynd

en í sambandi við þennan pakka, þá kaupi ég hann á morgun :D