Síða 1 af 1

Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 21:23
af FuriousJoe
Er einhver kominn með kvikindið ?

Steam losar um hann eftir klukkutíma veit ég, er þetta eitthvað sem maður ætti að fá sér eða total letdown ?

Valið er Duke Nukem Forever eða Red Faction Armageddon, hvor á maður að fá sér ?

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 21:37
af axyne
Duke Nukem Forever algjörlega ef þú spilaðir duke3d í gamla daga.

Vissi ekki hann kæmi á Steam, kaupi hann um leið og prófin eru búin. :beer

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 21:39
af blitz
Ef þú spilaðir duke3d þá þarftu að kaupa hann.

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 21:40
af kubbur
Við virðingu við fyrirtækið sem bjó til dnf þá myndi eg taka hann frekar en armageddon

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 21:41
af braudrist
Ég myndi frekar bíða og downloada þeim báðum áður en þú ákveður hvorn þú ættir að kaupa. Ég er alla veganna orðinn rosa skeptískur eftir þessa röð af overhyped, drasl port leikjum sem hafa komið á þessu ári.

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 21:42
af FuriousJoe
axyne skrifaði:Duke Nukem Forever algjörlega ef þú spilaðir duke3d í gamla daga.

Vissi ekki hann kæmi á Steam, kaupi hann um leið og prófin eru búin. :beer


Já spilaði gamla Duke sko, bara búinn að lesa um að fólk séi rosalega disapointed með hann :/

Red Faction er solid og klikkar ekki þessvegna er valið erfitt ! :(

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 21:45
af FuriousJoe
braudrist skrifaði:Ég myndi frekar bíða og downloada þeim báðum áður en þú ákveður hvorn þú ættir að kaupa. Ég er alla veganna orðinn rosa skeptískur eftir þessa röð af overhyped, drasl port leikjum sem hafa komið á þessu ári.


Já skil þig, svo er þetta farið að vera svo stutt, 6-10 tíma spilun virðist vera markmiðið í dag sem er leim :(

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 21:54
af axyne
Maini skrifaði:Já spilaði gamla Duke sko, bara búinn að lesa um að fólk séi rosalega disapointed með hann :/


Mér er eiginlega sama hvort hann verði góður eða ekki, held hann eigi ekki eftir að geta valdið mér vonbrigðum.

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 22:14
af Sveppz
Er búinn að kaupa hann og er að bíða eftir preloadinu svo ég geti spilað hann !

Er búinn að vera að bíða eftir þessum lengi, bara að vona að ég verði ekki fyrir vonbrigðum

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 22:16
af FuriousJoe
Sveppz skrifaði:Er búinn að kaupa hann og er að bíða eftir preloadinu svo ég geti spilað hann !

Er búinn að vera að bíða eftir þessum lengi, bara að vona að ég verði ekki fyrir vonbrigðum


Komdu með mini-hands on review þegar þú ert búinn að prófa hann :)

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 22:27
af SolidFeather
Consoleportdrasl

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 22:31
af KrissiK
Ég er búinn að prufa Demo og það er alveg nokkuð flott, vona að leikurinn verði góður!

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fim 09. Jún 2011 22:42
af FuriousJoe
KrissiK skrifaði:Ég er búinn að prufa Demo og það er alveg nokkuð flott, vona að leikurinn verði góður!


Vona það líka :)
Jú verður maður ekki að kaupa hann, held það séi möst bara fyrir nafnið Duke Nukem.

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fös 10. Jún 2011 00:31
af Sveppz
Ég er inní leiknum akkurat núna og er að skrifa þetta í gegnum steam browserinn.

So far þá er graffíkin ekkert til að hrópa húrra fyrir en gameplayið og Duke Nukem fílingurinn er viðbjóðslega góður.
Maður fær smá svona nostalgíu hroll á nokkura mínutna fresti. Hugsa að ég sé búinn að vera að spila í svona 3 klt allt í allt.

So far þá er þetta MUST OWN fyrir þá sem fíla Duke Nukem.

PUNKTUR.

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fös 10. Jún 2011 00:46
af Kristján
MP er örugglega sniðugt i þessu með shrink gun og fleiri sniðugar byssur.

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fös 10. Jún 2011 01:25
af FuriousJoe
Sveppz skrifaði:Ég er inní leiknum akkurat núna og er að skrifa þetta í gegnum steam browserinn.

So far þá er graffíkin ekkert til að hrópa húrra fyrir en gameplayið og Duke Nukem fílingurinn er viðbjóðslega góður.
Maður fær smá svona nostalgíu hroll á nokkura mínutna fresti. Hugsa að ég sé búinn að vera að spila í svona 3 klt allt í allt.

So far þá er þetta MUST OWN fyrir þá sem fíla Duke Nukem.

PUNKTUR.



Flott að heyra :)

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fös 10. Jún 2011 08:35
af ManiO
Næ í eintak eftir vinnu, og gríp Infamous 2 með í leiðinni.

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fös 10. Jún 2011 08:51
af Hj0llz
Búinn að spila Duke í sirka 2 tíma...var með skítaglott á mér allan tímann :)
Ekkert meistarastykki sem leikur...en gamli góði Duke ;)

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fös 10. Jún 2011 16:54
af Steini B
WTF, ég er búinn að prufa að breyta öllu í leiknum, er með nýjustu drivera en alltaf er leikurinn bara svona hjá mér... :x

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fös 10. Jún 2011 17:34
af J1nX
Steini B skrifaði:WTF, ég er búinn að prufa að breyta öllu í leiknum, er með nýjustu drivera en alltaf er leikurinn bara svona hjá mér... :x


sama hjá mér :( ](*,) ](*,) ](*,)

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fös 10. Jún 2011 17:36
af Kristján
J1nX skrifaði:
Steini B skrifaði:WTF, ég er búinn að prufa að breyta öllu í leiknum, er með nýjustu drivera en alltaf er leikurinn bara svona hjá mér... :x


sama hjá mér :( ](*,) ](*,) ](*,)


keyptur eða sjóræningjaður?

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fös 10. Jún 2011 17:54
af J1nX
"If you are using an ATI video card, please try the following: Close Duke Nukem Forever Open the ATI Catalyst Control Center Select 'Gaming' from the menu bar on the left Select '3D Application Settings' Under the 'SMOOTHVISION HD:Anti-Aliasing' section, make sure 'Use application settings' is CHECKED Under the 'SMOOTHVISION HD:Anisotropic Filtering' section, make sure 'Use application settings' is CHECKED Click 'Apply' Re-launch the game"

Þetta svínvirkaði hjá mér :D

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Lau 11. Jún 2011 06:16
af kizi86
búinn að vera fastur í þessum leik í alla nótt.. hrein snilld verð ég að segja

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Fös 17. Jún 2011 13:28
af axyne
þið sem keyptuð þennan leik, hversu lengi voruði að fá kóðann sendann í e-mail til að activate-a á steam ?

edit
jæja, þurfti bara að biða í 4 tíma eftir activation code, búinn að downloada og installa.
Skemmtilegt Föstudagskvöld í vændum. :8)

Re: Duke Nukem Forever

Sent: Sun 19. Jún 2011 14:13
af axyne
jæja ég er bara nokkuð sáttur með leikinn, tók hann á 12 tímum og var frekar mikið að djöflast að reyna að finna hidden drasl. :happy