Síða 1 af 1

Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 10:38
af andpgud
Sælir. Langar að kaupa mér þráðlausa leikjatölvumús. Nota þetta við lappann. Með hverju er mælt og hvar fæst það hér?

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 10:59
af Plushy
T.d. Razer Orochi eða Razer Mamba. Báðar með þráðlausu og USB tengi ef þú vilt hafa hana tengda. Nokkrir eru með Mamba hérna og segja að hún sé snilld, Orochi er að vísu minni og nettari og myndi eflaust henta betur í fartölvur.

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 11:10
af Daz
Afhverju ætti minni mús að henta betur í fartölvu? Svo hún skyggi ekki á skjáinn?

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 11:19
af ManiO
Daz skrifaði:Afhverju ætti minni mús að henta betur í fartölvu? Svo hún skyggi ekki á skjáinn?

Auðveldara að flytja hana milli staða býst ég við.

af Eiiki
Razer Mamba allan daginn.

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 11:57
af Daz
ManiO skrifaði:
Daz skrifaði:Afhverju ætti minni mús að henta betur í fartölvu? Svo hún skyggi ekki á skjáinn?

Auðveldara að flytja hana milli staða býst ég við.

En ef þú ert að leita að mús til leikjaspilunar þá hljóta menn að taka gæðin fram yfir færanleika. Annars eru "stórar" mýs ekkert það mikið stærri en þessar "far-mýs".

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 12:29
af dori
Ég er með Razer Mamba og hún er mjög góð.

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 13:02
af kjarribesti
CM SENTINEL ADVANCE eða Mamba.. :happy

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 13:25
af Frost
Allt frá Razer, nema Lachesis :pjuke

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 17:43
af Halli25

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 19:46
af littli-Jake
það var könnunarþráður hérna fyrir einhverjum vikum. þar var Logitech MX-518 með yfirburði. Ég er einmitt með eina slíka og er ekkert nema sáttur :happy

Edit
viewtopic.php?f=20&t=34525&st=0&sk=t&sd=a&hilit=hva%C3%B0a+m%C3%ADs

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 19:57
af Stingray80
littli-Jake skrifaði:það var könnunarþráður hérna fyrir einhverjum vikum. þar var Logitech MX-518 með yfirburði. Ég er einmitt með eina slíka og er ekkert nema sáttur :happy

Edit
viewtopic.php?f=20&t=34525&st=0&sk=t&sd=a&hilit=hva%C3%B0a+m%C3%ADs

held að MX518 sé efst einfaldlega, vegna þess að hun er svo ódýr. átti svoleiðis í mörg ár. klassa mús. er kominn með Razer mamba nuna fýlana í tætlur

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 22:10
af dori
littli-Jake skrifaði:það var könnunarþráður hérna fyrir einhverjum vikum. þar var Logitech MX-518 með yfirburði. Ég er einmitt með eina slíka og er ekkert nema sáttur :happy

Edit
viewtopic.php?f=20&t=34525&st=0&sk=t&sd=a&hilit=hva%C3%B0a+m%C3%ADs

Hann er að biðja um þráðlausa.. Og btw... "mís", for reals?

Re: Langar að kaupa tölvuleikjamús. Vantar ykkar hjálp

Sent: Fös 29. Apr 2011 22:36
af jonrh
Til að Razer Mamba virki þráðlaust þarftu að
tengja dokkuna með USB. Razer Orochi eða
Logitech G700 myndu því held ég henta betur
ef þú ert mikið á flakki.