Síða 1 af 1

Counter-Strike: Condition Zero, Delated Scenes

Sent: Þri 06. Apr 2004 19:12
af Snorrmund
Jæja, ég fór uppí BT í dag og þar var ein tölva með CS:CZ á. Ég byrjaði á að prufa venjulega CS:CZ en í honum átti maður oftast að drepa mann með einhverri ákveðinni byssu og klára t.d. eitt "ránd" á amk 90 sec og það var hund leiðinlegt.

EN í delated scenes þá var þetta miklu skemmtilegra meiri "taktík" í leiknum. T.d. komin camera til að setja undir hurðar og hjá hornum til að sjá þar. Svo miklu fleiri items t.d. "logskurðartæki"(kann ekki rétta orðið :P) sem var til að brjóta upp lása. Svo voru sum vopn orðin öðruvísi og oft flottari. Mér fannst þetta miklu flottara og amk 5x betra en original cs. ... En það er bara ég :)

bara smá grein um það sem mér fannst um þennan leik :P

Sent: Þri 06. Apr 2004 19:43
af fallen
Logsuðutæki ?

Sent: Þri 06. Apr 2004 21:49
af gumol
Hljómar vel, best að fara að dl þessu (stórt :shock:)

Sent: Þri 06. Apr 2004 22:21
af Hlynzit
gumol skrifaði:Hljómar vel, best að fara að dl þessu (stórt :shock:)


d/l hvar ?

Sent: Þri 06. Apr 2004 22:22
af gumol
Í steam (þarft örugglega að kaupa CS:CZ)

Sent: Mið 07. Apr 2004 10:00
af Snorrmund
halli skrifaði:Logsuðutæki ?

Gææti verið, en sko t.d. þú getur logskorið og logsoðið. Ef þú logsýður þá ertu að sjóða einhverja málma saman. En ef þú ert að logskera þá ertu að skera einhverja málma í sundur. Þetta heitir samt örugglega logsuðutæki :P

Re: Counter-Strike: Condition Zero, Delated Scenes

Sent: Fös 09. Apr 2004 18:44
af Sveinn
Stocker skrifaði:... fleiri items t.d. "logskurðartæki"(kann ekki rétta orðið :P)


hahahha snorri ;) You rule man :P GO Snorri.

Sent: Mán 26. Apr 2004 00:08
af Pirate^
vá mikið mál útaf einu orði !!! :twisted: :lol:
En ég var að heyra að þetta væri bara leiðinlegur leikur og enginn ætlar að spila hann :? og ekki ætla ég að spila hann biða bara eftir half-life 2 og byrja að spila hann :wink:

Sent: Mán 26. Apr 2004 01:39
af gumol
Þú heyrir rétt. Deleted scenes er ókláraður leikur (sem er auk þess leiðinlegur)

CZ er svo bara fyrir þá sem vilja spila CS einir eða á netlausu lani þegar þeir eru ekki með netið. Bottarnir í honum eru mjög góðir (þe. líkjast mjög venjulegum spilurum, ólíkt Podbot) Í CZ er líka single player partur.(sammt notast við gömlu góðu CS-borðin + nokkur ný).