Síða 1 af 1

tölvuskjár eða hd sjónvarp.

Sent: Sun 23. Jan 2011 18:50
af bulldog
Ég var að velta fyrir mér þegar maður er kominn í leikjaspilun í háum gæðum skiptir öllu máli hvort að maður er að nota full hd sjónvarp í það eða hágæða tölvuskjá ?

Re: tölvuskjár eða hd sjónvarp.

Sent: Sun 23. Jan 2011 18:57
af B.Ingimarsson
held að allir led og lcd skjáir sem þú færð í dag ráði við HD mynd

Re: tölvuskjár eða hd sjónvarp.

Sent: Sun 23. Jan 2011 18:58
af bulldog
ég er að meina þegar ég er að spila tölvuleik og nota full hd sjónvarpið mitt sem tölvuskjá.

Re: tölvuskjár eða hd sjónvarp.

Sent: Sun 23. Jan 2011 19:02
af B.Ingimarsson
bulldog skrifaði:ég er að meina þegar ég er að spila tölvuleik og nota full hd sjónvarpið mitt sem tölvuskjá.

þetta fer allt eftir upplausninni sem þú keyrir leikinn á, ef ég skil þig rétt þá ertu að tala um hvort gæðin verði eins góð , til dæmis að spila leik í 640x480 á 40" skjá væri ekkert altof gott

Re: tölvuskjár eða hd sjónvarp.

Sent: Sun 23. Jan 2011 19:06
af bulldog
full hd sjónvarpið mitt er alltaf stillt á 1920x1080 myndi ég ná jafn góðum gæðum/hraða í leikjaspilun með því eins og kannski segjum góðum 24" led tölvuskjá ?

Re: tölvuskjár eða hd sjónvarp.

Sent: Sun 23. Jan 2011 19:09
af B.Ingimarsson
bulldog skrifaði:full hd sjónvarpið mitt er alltaf stillt á 1920x1080 myndi ég ná jafn góðum gæðum/hraða í leikjaspilun með því eins og kannski segjum góðum 24" led tölvuskjá ?

já það ætti að vera eins ef þú stillir leikinn á 1920x1080

Re: tölvuskjár eða hd sjónvarp.

Sent: Sun 23. Jan 2011 19:11
af bulldog
takk fyrir svarið :megasmile

Re: tölvuskjár eða hd sjónvarp.

Sent: Sun 23. Jan 2011 19:12
af B.Ingimarsson
bulldog skrifaði:takk fyrir svarið :megasmile

takk fyrir að gera mig að ofurnördi :megasmile

Re: tölvuskjár eða hd sjónvarp.

Sent: Sun 23. Jan 2011 20:25
af mind
B.Ingimarsson skrifaði:
bulldog skrifaði:full hd sjónvarpið mitt er alltaf stillt á 1920x1080 myndi ég ná jafn góðum gæðum/hraða í leikjaspilun með því eins og kannski segjum góðum 24" led tölvuskjá ?

já það ætti að vera eins ef þú stillir leikinn á 1920x1080


Gæðalega séð eru engin vandamál með svona.

En varðandi hraðann þá er svartíminn á sjónvörpum eiginlega undantekningalaust hærri en á skjám. Ekki óraunhæft að áætla 50-200ms eftir týpum og stillingum jafnvel þó svo sjónvarpið hafi eitthvað sem kallast "game mode".
Þetta háar tölur eru yfirleitt óásættanlegar fyrir FPS leiki.