Síða 1 af 8

MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Mán 20. Sep 2010 19:03
af GullMoli
Sælir.

Þar sem fólk er nú í skóla og vantar eitthvað til að dunda sér við (í tímum) þá ákvað ég að sýna ykkur þennan leik.

Byrjið á þessu videoi; http://www.youtube.com/watch?v=FaMTedT6P0I

Þetta er semsagt sandbox leikur sem þú getur spilað í browsernum (en einnig dlað .exe skrá og spilað).

Það eru tvær "útgáfur" af leiknum;

-Classic er frí. Þá ertu bara með alla kubba. Það eru engin dýr eða monsters. Getur ekki dáið. Getur ekki ræktað, mineað, eða neitt í þá áttina. Þú ert bara með endalaust af kubbum og getur gert það sem þig langar. Oftast er þó frekar mikið caos á servernum í þessu mode'i, enda getur hver sem er spilað og gert það sem hann vill.

-Survival útgáfan kostar um 1500-1700kr og þá ertu með "survival" mode eins og er sýnt í videoinu. Þá þarftu að mine allt og lifa af. Stórkostlega ávanabindandi leikur enda ekkert smá skemmtilegt. Minna um einhverja hálfvita sem eru í því að skemma (líka erfiðara að skemma því það tekur smá tíma að brjóta kubba, fer að vísu eftir því hversu gott verkfæri þú ert með).

Í báðum týpunum er heimurinn 100% randomly generataður svo að enginn spilar í sama umhverfi. Svæðið í survival týpunni er þó margfalt stærra en í Classic.

Ég mæli 110% með því að skella sér á Survival týpuna, en athugið þó að þessi leikur er ennþá bara í Alpha stigi svo það eru einhverjir gallar, aðalega í multiplayer (já það þetta er multiplayer). Multiplayer í survival er þó ekki alveg komið 110% í gagnið. Það eru t.d. engir monsters í því.

Heimasíðan hjá leiknum hrundi um helgina því leikurinn er orðinn fáránlega vinsæll og serverinn þoldi ekki álagið sem fylgdi nýjasta update'inu. Því er ekki hægt að spila leikinn í browsernum í augnablikinu en það ætti að koma í gagnið á morgun.

IP á Íslenskan server: gussi.is
(skrifið gussi.is í ip gluggann og gerið connect)
Athugið þó að ef eitthvað er skemmt hjá öðrum þá fær sá hinn sami bann á stundinni.

http://www.minecraft.net

Annað sniðugt video sem ég fann í fljótu bragði sem sýnir aðeins hvernig þetta virkar og kennir á leikinn; http://www.youtube.com/watch?v=ylVtj-1Ccgg

Wiki: http://minecraftwiki.net/wiki/Main_Page
Crafting guide: http://minecraftwiki.net/wiki/Crafting

Ps. Ef þið deyjið þá getið þið valið að spawna aftur en þá missið þið allt sem þið voruð með á ykkur. Þið spawnið á sama stað og þið byrjuðuð í byrjun svo það er ágætt að hafa "base'ið" nálægt því. Og ef að þið finnið staðinn þar sem þið dóuð þá ætti allt stuffið ykkur að liggja þar.

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 19:08
af Frost
Ég byrjaði í þessum leik í gær og ég get sagt að ég er orðinn háður honum. Er með risastórt fjall og göng inní því, carts o.m.fl.

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 19:21
af GuðjónR
Þetta er eitthvað það mesta BULL sem ég hef séð...
Er þessi "leikur" ekki grín? er þetta alvara?

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 19:24
af Selurinn
Er HD5970 nóg fyrir þetta?

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 19:25
af GullMoli
GuðjónR skrifaði:Þetta er eitthvað það mesta BULL sem ég hef séð...
Er þessi "leikur" ekki grín? er þetta alvara?

Þetta er alls ekki bull, þetta er algjör snilld! Og þetta er ekki grín leikur. Grafíkin er ekki upp á marga fiska en það skiptir einfaldlega engu máli í þessum leik.

Annað video úr áströlskum tölvuleikja þætti sem gerir reveiw um leikinn; http://www.abc.net.au/tv/goodgame/video ... 30&story=5

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 19:26
af GullMoli
Selurinn skrifaði:Er HD5970 nóg fyrir þetta?

Tjah, 480 kortið mitt virðist höndla hann ágætlega :besserwisser

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 19:28
af Nariur
GuðjónR skrifaði:Þetta er eitthvað það mesta BULL sem ég hef séð...
Er þessi "leikur" ekki grín? er þetta alvara?

you be trollin'

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 20:14
af svennnis
þú getur sett á 3d og verið með gleraugu með bláu og rauðu gleri og verið með þetta þannig þá er þetta snilld !

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 20:25
af GuðjónR
GullMoli skrifaði:Grafíkin er ekki upp á marga fiska...

YOU DON'T SAY =D>

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 21:32
af appel
GuðjónR skrifaði:Þetta er eitthvað það mesta BULL sem ég hef séð...
Er þessi "leikur" ekki grín? er þetta alvara?

Ég þekki kauðann sem bjó hann til, sænskur leikjaforritari sem heitir Markus Persson.

Hann er búinn að græða €1 milljón evra á leiknum á innan við einu ári, og hann er að selja fyrir um 5 milljónir íslenskar kr. á dag! Einnig var hann í laumuferð til Valve Software um daginn, stuttu seinna stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki.

Þessi leikur er mega hit.

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 21:34
af GuðjónR
appel skrifaði:

:wtf :wtf :wtf

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 21:35
af Larfur
appel skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Þetta er eitthvað það mesta BULL sem ég hef séð...
Er þessi "leikur" ekki grín? er þetta alvara?

Ég þekki kauðann sem bjó hann til, sænskur leikjaforritari sem heitir Markus Persson.

Hann er búinn að græða €1 milljón evra á leiknum á innan við einu ári, og hann er að selja fyrir um 5 milljónir íslenskar kr. á dag! Einnig var hann í laumuferð til Valve Software um daginn, stuttu seinna stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki.

Þessi leikur er mega hit.

Svona er það þegar menn fá góða hugmynd.

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 21:52
af Daz
Gameplay > Graphics.

Augljóslega væri þessi leikur betri með betri grafík, en á móti, eru ekki allir orðnir þreyttir á "Generic FPS clone 3: Killin time" ?

Re: MINECRAFT

Sent: Mán 20. Sep 2010 22:01
af Plushy
Er búinn að spila þennan leik í einhvern mánuð, var frábær fyrst og er að vísu enn skemmtilegur, en finn enga hluti til að gera því ég er svo latur að byggja hluti og mina meira :)

Auk þess er "X's Adventure in Minecraft" skemmtilegt að horfa á, on going youtube video um einn gaur sem byrjar í leiknum og byggir svo heiminn sinn. [urhttp://www.youtube.com/watch?v=4bh4EexJO4Il][/url]

Re: MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Mán 20. Sep 2010 22:33
af appel
Smá úr minecraft:
Mynd

Re: MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Mán 20. Sep 2010 23:24
af Plushy
Ætla vona að þetta hafir þú ekki búið til..

.. ef svo er, vel gert! og hérna eru 2 krónur keyptu þér líf :)

Re: MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Mán 20. Sep 2010 23:38
af hsm
VARÚÐ þetta er heroin í digital formi :)

Re: MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Þri 21. Sep 2010 02:15
af Black
gat nú ekki annað en hlegið þegar ég fékk upp errorin að skjákortið mitt stiðji ekki leikinn xD!
Mynd

Re: MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Þri 21. Sep 2010 02:31
af hsm
Black skrifaði:gat nú ekki annað en hlegið þegar ég fékk upp errorin að skjákortið mitt stiðji ekki leikinn xD!
Mynd

Þetta er driver vandamál og hefur ekkert með skjákorts gerð að gera, þarft að virkja eða haka í eitthvað sambandi við OpenGL. Man ekki hvað, en ég lenti í því sama, en kom því í lag, þurfti ekki að uppfæra driver.

Re: MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Þri 21. Sep 2010 02:32
af Black
hehe ég reddaði þessum driver málum strax sko.. fannst þetta bara dáldið fyndið

Re: MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Þri 21. Sep 2010 02:34
af Viktor
Black skrifaði:gat nú ekki annað en hlegið þegar ég fékk upp errorin að skjákortið mitt stiðji ekki leikinn xD!
Mynd

OpenGL er oft með vandamál, þarft bara að laga drivera.

Re: MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Þri 21. Sep 2010 02:38
af hsm
Black skrifaði:hehe ég reddaði þessum driver málum strax sko.. fannst þetta bara dáldið fyndið

Já og nú getur þú notið þess alls sem þessi leikur hefur uppá að bjóða varðandi grafik \:D/

Re: MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Þri 21. Sep 2010 07:50
af audiophile
Horfið á þetta Minecraft video, fyndnasta ever..... http://www.youtube.com/watch?v=LnjSWPxJxNs

Re: MINECRAFT, toppar allt í að drepa tíma!

Sent: Þri 21. Sep 2010 09:36
af GuðjónR
hsm skrifaði:
Black skrifaði:hehe ég reddaði þessum driver málum strax sko.. fannst þetta bara dáldið fyndið

Já og nú getur þú notið þess alls sem þessi leikur hefur uppá að bjóða varðandi grafik \:D/

hahahahahahahaha

Re: MINECRAFT

Sent: Þri 21. Sep 2010 12:38
af raRaRa
appel skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Þetta er eitthvað það mesta BULL sem ég hef séð...
Er þessi "leikur" ekki grín? er þetta alvara?

Ég þekki kauðann sem bjó hann til, sænskur leikjaforritari sem heitir Markus Persson.

Hann er búinn að græða €1 milljón evra á leiknum á innan við einu ári, og hann er að selja fyrir um 5 milljónir íslenskar kr. á dag! Einnig var hann í laumuferð til Valve Software um daginn, stuttu seinna stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki.

Þessi leikur er mega hit.

Hmm, laumuferð til Valve. Getur verið að hann sé að fara setja leikinn sinn á Steam? :) Ég veit að Robin Walker o.fl. hjá Valve vildu alltaf búa til svona leik, þ.e. leik sem gengur út á sandboxing, að notendur búi sér til markmið.