Síða 1 af 3

Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 13:50
af g0tlife
Ákvað að henda inn hérna bara smá samantekt sem ég tók um leiki sem ég hef spilað og eytt tíma í. Væri til í að sjá svör ykkar ef þið hafið spilað þá. Hefði getað haldið grein um hvern leik svo ég reyndi nú bara að hafa þetta svona stutt.
Svo mun ég henda inn trailer frá hverjum leik með.
En leikirnir eru: Mass Effect 2, Star Wars Knights Of The Old Republic 2 Godfather 2 og Assasins Creed 2
Online Spilun: Call Of Duty Modern Warfare 2 og Age Of Mythology

Mass Effect 2 er bara snildin ein. Var að enda við að klára hann í 2 skiptið núna og fannst hann miklu meira einhvern veginn. Þar sem maður skildi leikinn betur og gerði hann erviðari þá var maður aðeins lengur með hann, bardagarnir urðu mikið lengri og maður gaf sér meiri tíma í hann sem ég mæli bara með. En í fyrsta skiptið sem ég kláraði hann þá missti ég hálft liðið mitt á endaborðinu. En í annað skiptið núna þá missti ég bara Legion. Kláraði reyndar bæði skiptin sem Renegade. En ætla eftir einhvern tíma að klára hann með paragon láta leikinn í erviðasta og reyna láta alla lifa af enda lotuna. Mass Effect 2 er virkilega þægilegur í spilun og það sem mér fannst best við hann frá mass effect 1 var að þurfa ekki að bíða alltaf í helvítis lyftu. Svo fraus leikurinn á meðan maður var stundum í lyftu og þá var allt brjálað og barið í borð. En þeir tóku það út og fá high five fyrir það. En fyrir þá sem vita ekki þá er gott að klára mass effect 1 þar sem það breytir aðeins númer 2. Persónur geta komið frá númer 1 sem þú leifðir að lifa og þú getur fengið skilaboð og svona frá fólki úr mass effect 1. Gaman að sjá hvað þeir lögðu mikið í það. Svo las maður að það mun líka hafa stór áhrif á Mass Effect 3 ef þú hefur klárað 1 , 2 og lifað af. Svo maður bíður bara spenntur yfir Mass Effect 3
http://www.youtube.com/watch?v=lCpK2XnIaeI

Star Wars Knights Of The Old Republic 2 er frábær eða ekki besti star wars leikurinn. Finnst hann persónulega toppa Star Wars: Jedi Knight Academy. En þó var online spilunin í jedi academy virkilega skemmtileg. En ef þú hefur spilad Knights of the old republic eða munt gera það þá er sá leikur líka skiptur niður, eða það eru 2 endar. Ég kláraði hann 2 sinnum sem góður og vondur. Sem er gaman að sjá munin á dark og light side og líka hvernig þú spilar leikinn allt öðrýsi. En hann er samt enginn Mass Effect 2 sem hefur um hvað 8 öðrýsi enda ?
En líkt og mass effect 2 þá er þetta mikill tal leikur og þú þarft að hafa áhugan við leikinn. En það sem gerði mann þreyttann á honum var að hlusta á einhverja geimveru rödd. Þá þurftiru að byrja lesa allt sem hann sagði og það reyndist þreytandi til lengdar. En það er alltaf gaman að geta leikið sér að nota force powers. Getur valið um þau sjálfur t.d. taka upp mann og kyrkja, eldingu, draga lífið úr mönnum og bæta þitt og svo margt margt fleira.
http://www.youtube.com/watch?v=7EaTWlh-mLA

Godfather 2 fannst mér frábær skemmtun. Góður leikur til að dunda sér í. Allt annar leikur en godfather 1 þar sem þeir opnuðu fyrir margt og gerðu leikinn mun þægilegri. Gaman líka við þennann leik að ef þú ert orðinn þreyttur á söguþræðinum þá getiru alltaf farið að taka yfir rackets eða leikið þér að skjóta allt í klessu. Það sem heillaði mig mest við leikinn var fjölskyldan þín eða your family. Þar sem þú gast valið hver færi með þér úr ''The family tree'' og líka eiginleikann að senda menn til að opna peningaskápa, taka rafmagnið af, sprengja hluti og meir. Fullt sem þú getur gert í þessum leik og mæli vel með honum ef ykkur langar í dundur en skemmtilegt dundur.
http://www.youtube.com/watch?v=eZZ5UMjRQFY

Assassins Creed 2 fannst mér mjög líkur fyrsta leiknum en eins og með alla hina fyrir ofan þá gera þeir oftast leik númer 2 miklu betri og þægilegri í spilun. Sem þeim tókst að gera. En með fyrsta leikinn þá varð maður rosa þreyttur á honum fljótlega eða svo fannst mér. Sérstaklega að þurfa alltaf að fara langar leiðir og það á hesti sem þeir minkuðu mikið. Líka það sem þeir gerðu voru mörg auka mission. Þau voru nú mörg eins en það var fínt að hverfa frá söguþræðinum og klifra upp á hús og byggingar í leit af fjársjóð eða reynast við grafhýsin.
Skemmtileg saga aftur á móti og bíð spenntur eftir númer 3 þar sem þessi leikur endaði alveg stórfurðulega.
http://www.youtube.com/watch?v=mVWhWsgHzKM

Online leikirnir:

Call Of Duty Modern Warfare 2 er náttúrulega bara frábær skemmtun og sérstaklega ef vinir þínir spila hann online líka. Þá er gaman að vera á ventrilo og spila saman á netinu. Eins og með alla hina Call Of Duty þá er maður enga stund með Single player nema þú gerir það erviðiast. En það er alltaf bara það sama, svo það er ekkert endilega rosa gaman að spila það aftur og aftur því þú veist alveg hvað er að fara gerast. En online spilunin er skemmtileg og reyna ranka sig upp eins lengi og maður nennir. Toppurinn er að ná að nota kjarnorkusprenguna í online spilun. Persónulega hef ég reynt það marg oft en næ því aldrei en ætla mér einn daginn að ná því !
http://www.youtube.com/watch?v=EnBL7wd3LgI

Age Of Mythology er besti leikurinn af öllum Age Of. Þennann leik getiru spilað aftur og aftur þótt þú veist hvernig söguþráðurinn er þá getiru alltaf byggt öðrýsi og gert þetta öðrýsi. Gallinn við hann samt að hann er að deyja út hægt og rólega. Enda var hann líka gefinn út 2002. Núna í dag eru bara um 500 - 600 manns sem spila hann online. En í honum getiru valið um 9 guði og færð viss god powers með hverjum guð. Þar erum við að tala um Zeus, Hades, Poseidon, Ra, Isis, Set, Thor, Odin og Loki.
Þetta er alltaf eini leikurinn sem er alltaf í tölvunni minni því það er gaman að kíkja í hann og taka nokkra leiki online af og til.
http://www.youtube.com/watch?v=Onik-BD92Ow

Leikir sem maður er að bíða eftir:

Starcraft 2 en hann er bara uppseldur og svo er Mafia 2 að koma út eftir 2 vikur og maður bíður spenntur eftir þessum 2 !

Mafia 2 Trailer:
http://www.youtube.com/watch?v=RtSF2hpOrAw

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 14:14
af AntiTrust
Ég þarf ekki einu sinni að hugsa mig um til að lista mínu bestu.

Silent Hill 1.

Eini leikurinn sem ég hef spilað ever, sem hræðir mig jafn mikið í dag og hann gerði fyrir 10 árum. Sálfræðilega tónlistin sem spilar óafvitandi inn á undirmeðvitundina, léleg grafík sem gerði lítið nema auka spennuna, draugabörn labbandi útúr veggjum beint fyrir framan þig, og ótrúlega erfiðu en skemmtilegu puzzles og riddles í leiknum gera þetta einn af þeim betri sem ég hef spilað. Í hard er þetta algjörlega leikur fyrir IQ toppana, og fátt skemmtilegra en gott mental challenge.

Metal Gear Solid serían. Misgóðir, en allir góðir.

Þarf að útskýra þennan e-ð? Söguþráðurinn, umhverfið, karaktersköpunin og þróunin, gameplay-ið, gervigreindin, in game video-in. MGS 1 er án vafa sá allra, allra besti sem ég hef nokkurntímann spilað og sá grunur að ég muni aldrei upplifa slíkt aftur hryggir mig. Nú er bara að sjá hvað Hideo og Shigenobu takast að gera með Raiden í MGS : Rising sem kemur út í vetur.

Gran Turismo.

Þegar þessir leikir komu út fyrst þá loksins, loksins var hægt velja alvöru bíla, keyra á alvöru brautum to the fullest detail, og tune-a bíla af e-rju viti annað en að gera bara "Upgrade pack 1" og nitró eða felgur og fleira í þeim kjánalega dúr. Leikurinn var og er ERFIÐUR, sem gerir hann þeim mun skemmtilegri. Þetta er leikur fyrir alla áhugamannabílstjóra og uppúr. Aksturinn, tilfinningin, bílarnir, brautirnar, hljóðin, eiginleikar hvers bíls fyrir sig, hraði. Þetta var eins raunverulegt og var á kosið þegar fyrsti kom út og leikirnir þar á eftir hafa seint valdið vonbrigðum. Nú er bara að reyna að halda sér rólegum þar til GT5 kemur út 2. Nóvember. Það verður festival.

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 15:31
af Hnykill
Fallout 3 og allir 3 STALKER leikirnir eru í uppáhaldi hjá mér.

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 16:44
af einarhr
Sá leikur sem ég féll fyrst fyrir var Half Life og ber ég þess ekki bætur í dag :) Fór yfir í CS, Medal of Honor, Call of Duty og svo endaði ég í CSS þegar Half Life 2 kom út.

Síðastliðið ár hef ég mest spilað Call of Duty MW2 en er búin að gefast upp á honum sökum þess að það er svo mikið svild í gangi í honum. Keypti mér BF BC2 um daginn og er fastur yfir honum eins og er en kíki alltaf reglulega í CSS.

Hef spilað mikið af öðrum leikjum eins og td. Fifa frá árinu 97 og uppúr í PC ásamt Race 07 og Grid en FPS leikinir eru alltaf á topp hjá mér.

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 16:59
af Nördaklessa
Bestu leikir sem ég hef spilað eru, Hitman 2 silent assasin, Hitman Blood money, Doom seriunar, Medal of honor, Cod og Css...

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 17:14
af Gúrú
BF1942.

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 17:21
af Son of a silly person
Gúrú skrifaði:BF1942.


Þar er ég mikið sammála =D>

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 17:53
af ManiO
Fallout 1 & 2, Baldur's Gate 1 & 2, Planescape: Torment, Demon's Souls og ADoM.

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 20:56
af Daz
Deus Ex anybody???
Civilization (skiptir engu númer hvað).
Warcraft 1 (eini RTSinn sem ég hef nennt að klára)
Planescape: Torment


En svona fyrir OP-inn, þá hef ég ekki spilað neinn af þessum leikjum (aðeins prófað Mass Effect 1 og KOTOR 1). Flottur póstur samt, =D> =D> =D>

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 22:11
af razrosk
Silent Hill 1 - Eins og AntiTrust sagði, still scares the crap out of me.
Warcraft II
Warcraft 3 - DotA
Command and Conquer: Generals
Company of Heroes
Quake III
Robot Unicorn Attack - Dont even ask.

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 23:11
af KrissiK
Son of a silly person skrifaði:
Gúrú skrifaði:BF1942.


Þar er ég mikið sammála =D>

ég er mjög sammála ykkur báðum :D

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Fös 20. Ágú 2010 23:56
af FuriousJoe
Final Fantasy 7
Silent Hill 1
Resident Evil 1
Resident Evil 2
Tomb Raider 1
Tomb Raider 2
Metal Gear Solid 1
Metal Gear Solid 2
Parasite Eve 1
Parasite Eve 2
Legend of Legaia
Legend of The Dragoon
Dragon Age

Þetta er ekki listað í neinni ákveðni röð, bara þeir sem eru í mestu uppáhaldi hjá mér.

Spilaði alla leikina þarna nema Dragon Age, þegar ég var krakki, minningarnar eru svo góðar og það er sennilega það sem heldur þessum leikjum í sem mestu uppáhaldi hjá mér ;)

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 12:07
af BjarkiB
Hef aldrei verið mikið inní tölvuleikjunum, en á helling af þeim og eini leikurinn sem ég hef nent að klára er COD-MW2.

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 12:42
af Blues-
Quake II og Quake III
Besti multiplayer leikir ever!

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 13:06
af chaplin
Counter-Strike 1.3

/thread

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 13:13
af sakaxxx
left4dead 1 og 2
oblivion
fallout 3
insurgency
bioshock 1 og 2
red alert 1 og 2
dead space
gta san andreas
max payne 1 og 2
total annihilation
cod mw 2
morrowind

svo margir góðir leikir :D

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 14:53
af gunnig
Það er sorglegt að sjá hversu fáir notendur hafa spilað mass effect 1/2 hann er beztur <3 (og wow)

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 16:54
af KrissiK
gunnig skrifaði:Það er sorglegt að sjá hversu fáir notendur hafa spilað mass effect 1/2 hann er beztur <3 (og wow)

hef klárað þá báða .. mjög góðir .. en þoli ekki hvað það er fáranlegt að láta déskotans kallana ríða and shit ... þetta er líka svona í dragon age ... framleiðandinn eða eh .. þeir gera þetta við þessa leiki ... alveg þroskaheft sko ,, mitt álit btw.. :P

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 17:12
af biturk
úffff



fallout 2
diablo 1 og 2 og expansion
dungeon keeper 2
warcraft 1, 2, 3 og expansions (wow er viðbjóður)
theme hospital
theme park
construction bob
eurotrucker simulator
nfs most wanted
nfs hot pursuit
nfs carbon
grand theft auto 1
grand theft auto 3
grand theft auto san andreas
sidney 2000
grinch
c&c 1 og alveg uppí red alert 2
monkey island leikirnir.......ALLIR
thief 1 og 2, vægast sagt góðir leikir
heroes of might and magic 3
GUN , by far besti vestra skotleikur í heiminum!!! elska þennan leik
return to castle wolfenstein
wolfenstein 3d
doom 1, 2 og final doom
quake 1 og 2
commandos 1
flatout 2
duke nukem 3d
settlers 2 (þessi er einn af þeim betri)
max payne 1 og 2
fifa 98
gran turismo 2 (í playstation1)

og þetta er bara það sem ég man eftir í fljótu bragði.


og eins og sést spila ég laaaaaang mest gamla og góða leiki :lol:

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 17:32
af vesley
Mass Effect 2
Grand theft auto 4 og aukapakkinn
Race Driver Grid og dirt leikirnir
Gran turismo
Bf1942
Diablo 2


Og listinn gæti haldið áfram....

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 17:34
af g0tlife
Ég vona að fólk sé ekki að miskilja þráðinn en vildi bara benda á að ég var meira að tala um leiki sem maður hefur virkilega lagt tíma í og ekki bara t.d. klárað 1 sinni. Ég hef klárað veit ekki hversu marga leiki einu sinni. En alla leikina sem ég nefndi hef ég klárað 2 sinnum eða oftar og virkilega tekið mér tíma í leikinn. En gaman að sjá svörin sem koma hingað inn

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 17:52
af Frost
Grid
Dirt
Mass Effect 2
Crysis
Call Of Duty 2
Battlefield Bad Company 2
Battlefield 1942
Battlefield 2
Warcraft 3

Það eru ofsamargir leikir sem gætu farið á þennan lista en nenni ekki að skrifa meira.

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 17:58
af hallihg
Þessir risastóru listar eru hundleiðinlegir yfirlestrar, komið bara með ykkar uppáhalds leiki, einhver topp 50 listi leggur ekkert af mörkum til umræðunnar imho, án þess að vera leiðinlegur! :D

Mín besta leikjaupplifun var vafalaust Metal Gear Solid á PS, rosalegur söguþráður og magnað gameplay. Psycho Mantis verður ekki toppaður.

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 19:12
af KrissiK
hallihg skrifaði:Þessir risastóru listar eru hundleiðinlegir yfirlestrar, komið bara með ykkar uppáhalds leiki, einhver topp 50 listi leggur ekkert af mörkum til umræðunnar imho, án þess að vera leiðinlegur! :D

Mín besta leikjaupplifun var vafalaust Metal Gear Solid á PS, rosalegur söguþráður og magnað gameplay. Psycho Mantis verður ekki toppaður.

sammála þér með Metal Gear Solid ... æsku minningar af honum hér :)

Re: Bestu leikirnir sem ég hef spilað

Sent: Lau 21. Ágú 2010 20:09
af svanur
Einfaldleikinn er alltaf bestur - Mega Man 2 og The Legend of Zelda. Leikir ég hef klárað a.m.k. 5x p leik.

Bætt við: Skil samt ekki alveg af hverju menn setja Left 4 Dead leikina hérna - Hrikalega basic og ósjarmerandi leikir, hef spilað báða!