Síða 1 af 1

Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 02:11
af TheThing
Sælir.

Hef mikið verið að pæla í að kaupa tölvuleikinn Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 en hef heyrt frá nokkrum að hann sé pínu lélegur. Getið þið sagt mér hvrenig ykkur hefur fundist hann vera? Nafnið lætur þetta hljóma eins og þetta sé einhver B leikur. Vildi bara fá meira álit áður en ég fjárfesti í leikinn. :)

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 02:13
af Gúrú
Ímyndaðu þér hvaða skotleik sem er sem hefur komið út síðustu 3 ár, nema með skriðdrekum, laser guided missiles, flugvélum og þotum.

Alveg eins og allir hinir skotleikirnir að öðru leyti. :lol:

Mæli með því að downloada bara demoinu/cracki/fá að prófa hjá einhverjum áður en þú ákveður hvort þú fjárfestir eða ekki. :)
(Og plís þetta chan undirskriftadæmi er að meiða mig)

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 03:26
af GullMoli
Gúrú skrifaði:Ímyndaðu þér hvaða skotleik sem er sem hefur komið út síðustu 3 ár, nema með skriðdrekum, laser guided missiles, flugvélum og þotum.

Alveg eins og allir hinir skotleikirnir að öðru leyti. :lol:

Mæli með því að downloada bara demoinu/cracki/fá að prófa hjá einhverjum áður en þú ákveður hvort þú fjárfestir eða ekki. :)
(Og plís þetta chan undirskriftadæmi er að meiða mig)


Það eru ekki flugvélar og þotur í honum :)

Mér finnst þetta nokkuð nettur leikur. Núna finnst mér líka allir aðrir leikir alltof óraunverulegir því það stútast ekki allt þegar maður skítur í það með t.d. tank eða basúkku. Finnst fáránlegt að skjóta í vegg, eða keyra í hús á skriðdreka og veggurinn bara gefur sig ekki.

Mæli með því að þú prufir hann allavega.

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 03:27
af Gúrú
Eru þotur og flugvélar í BC en ekki BC2?

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 03:28
af GullMoli
Veit ekki með BC en það er allavega ekki í BC2, bara þyrlur. Mér finnst það einmitt mjög fínt bara enda möppin ekkert gífurlega stór.

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 08:52
af barabinni
Voru þotur í BF2 ekki Bad Company.

Persónulega finnst mér þetta vera besti skotleikurinn í boði þessa dagana, sérstaklega ef þú hefur net-spilun í huga.
32 manna serverar, getur skotið og sprengt allt og skemmt þér að því á meðan. Ég allavega get skemmt mér konungalega við að spila þetta þó að það séu ekkert miklar framfarir í þessum leik nema jú þú getur fellt nánast allar byggingar.

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 10:38
af NiveaForMen
Já.

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 11:13
af audiophile
Ég hef spilað alla Vígvalla leiki síðan 1942 og get með sanni sagt að þessi rokkar feitt. Ég er búinn að spila hann frá útgáfudegi og er enn að spila.

Hann er að vissu aðeins öðruvísi en Vígvöllur 2 sem kom út árið 2005 þar sem hann styður 32 spilara en ekki 64 og það eru engar þotur og aðeins minna um flugbardaga, en það eru þyrlur í honum og bílar og skriðdrekar í massavís. En ekki í öllum borðum samt. Sum er bara liðhlaupa borð.

Það sem er skemmtilegt við þennan Vígvallarleik er að það er hægt að eyðileggja nánast allar byggingar og skóglendi og því er aldrei hægt spá fyrir um fyrir hvar herlið óvina brýst gegn eða hvar þú getur leitað skjóls og stundum geta borðin endað alveg auð af skjóli vegna mikillar eyðileggingar. Svo er hið nýja áhlaupskerfi (Rush Mode) mun skemmtilegra og býður upp á hraðari og meira spennandi leiki en hið gamla fána yfirráðskerfið (Conquest), sem er þó líka til staðar í leiknum.

Eitt verð ég þó að minnast á, að þessi leikur krefst góðs vélbúnaðar og hann elskar fjögurra kjarna örgjörva, en spilar þó alveg á tvíkjarna, bara ekki á fullum gæðum. Sérstaklega ef þú munt spila í nítjánhundruðogtuttugu sinnum þúsundogáttatíu upplausn.

Vonandi hjálpar þetta eitthvað.

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 11:34
af ManiO
Guðjón, ertu búinn að íslenska alla síðuna? :shock:

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 11:44
af himminn
HVUR ANDSKOTINN ER AÐ HELVÍTIS SÍÐUNNI?

smá "test"

i speak gott english

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 11:53
af audiophile
Síðan er í fínu lagi, ákvað bara að skrifa þetta á góðri íslensku. :8)

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 12:28
af Sydney
Mér finnst þetta plebbalegur leikur og spila miklu frekar ennþá BF2 en þennan.

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 13:42
af mercury
besti leikur ever.

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Sun 08. Ágú 2010 16:48
af SteiniP
Þetta er svona nokkurnveginn útkoman ef að BF2 og Quake myndu eignast barn saman.

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Þri 17. Ágú 2010 02:17
af nessinn
Fínn leikur.

Mér finnst Modern Warfare 2 vera alveg skuggalega ofvirkur leikur, allt gerist á 120 km/h og maður hugsar lítið sem ekkert plan eða langtímamarkmið annað en að drepa óvinina.

Bad Company 2 er meira skipulagt og skemmtilegra að taka round ekki endilega bara að drepa óvini heldur að koma sér í fínt squad og ná að vinna með taktík. Erfitt samt stundum að finna góða servera eða góð squad en þegar maður finnur svoleiðis er þetta gífurlega öflugur leikur.

Mér finnst báðir leikirnir vera mjög fínir og finnst ekki hægt að bera þá saman um hvor sé betri því þeir eru alveg fáránlega ólíkir. Annars er Starcraft 2 legend.

Svo ætla ég að gefa þér verðlaun fyrir rosalega vondan titil á post

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Þri 17. Ágú 2010 09:06
af valgeirthor
Sælir

Mér þykir þetta mjög skemmtilegur leikur en það sem skiptir líka máli að hann kostar bara $29.99USD á Steam.

-Valgeir

Re: Er Vígvöllur: Slæmur félagsskapur 2 góður?

Sent: Þri 17. Ágú 2010 11:58
af einarhr
Fínn leikur, keypti hann í vor þegar ég var búin að fá nóg af Call of Duty MW2. MW2 er alveg flottur en allt of mikið svindlað í honum og menn komast upp með það.

BFBC2 er snild, miklu taktískari leikur en td MW2