Síða 1 af 1
Full Throttle!
Sent: Fös 30. Jan 2004 13:33
af Damien
Ég sá fyrir tilviljun hjá vini mínum Full Throttle og fékk hann lánaðan!
Þessi leikur er baaaara snilld... Lucas Art er sniiiiiiilld...
Shit hvað ég elska svona gamla leiki... Day of the Tentacle, Full Throttle, Broken Sword: Smoking Mirror, FBI(man ekki endinguna) og DIG eru dæmi um snilldarleiki með snilldar söguþræði...
Ég er nú reyndar fastur í Full Throttle en þetta er að koma...
Langaði bara svona að koma þessu á framfæri
Eru einhverjir fleiri að spila svona gamla 640x480 leiki?
Sent: Fös 30. Jan 2004 13:39
af ICM
já en upplausnin segir ekkert um aldur þeirra
margir af þessum advanture leikjum eru með minni upplausn (320x240) en flestir skjáir/skjákort í dag tvöfalda það bara...
Er að fara að fá mér vasa tölvu með 320x240 skjá, ætli maður reyni ekki að spila gömlu LucasArts leikina.
En já þetta er algjör snilld, var að kaupa mér pakka með nokkrum í fyrra...
Sent: Fös 30. Jan 2004 13:47
af Damien
Hehe, man eftir öðrum núna sem ég spilaði reyndar í sega-mega.
Held að hann heitir Far-eitthvað.
Intro'ið í leikinn var þannig að það byrjaði út á plani hjá svona space'uðu heimili. Það var rigning og einn svartur bíll á planinu. Svo rúllaði myndvélin inn í húsið og inni var gaur að vinna við tölvu sem var svona risa stór grænn skjár. Man ekki alveg en annaðhvort slóg eldingu niður í húsið eða hann sullaði kóki yfir tölvuna... eða bara bæði. Hann flaug inní einhverja aðra vídd og þarf að reyna að komast heim. Fyrstu geimverurnar sem maður sér eru svona svartir olíupollar sem eru svo reyndar einhverskonar snákar sem höggva í þig ef maður hoppar ekki yfir þá...
Ahh... man það núna, þetta var ekki pickup-use leikur heldur svona eins og keen leikirnir voru, maður sér allt á hlið.
En samt góður leikur...
Man einhver hvað hann heitir? IceCaveman?
Sent: Fös 30. Jan 2004 13:55
af Damien
Bahaha tékkiði þetta!
Það er verið að gera nýjan Full Throttle!
Hann heitir Hell on Wheels...
Hann er nú ekki mikill fyrir augað en hér eru nokkur screenshots:
Sent: Fös 30. Jan 2004 13:59
af ICM
ef ég man rétt þá var öll vinnsla á FullThrottle 2 lögð niður. yfirgefin...
Sent: Fös 30. Jan 2004 14:26
af kiddi
Damien, þú ert væntanlega að tala um Another World, sem var algjör tærasta snilld.. einn fyrsti leikurinn á eftir Prince of Persia sem var með alveg geggjað smooth character hreyfingar.. síðan 1991!
http://exotica.fix.no/tunes/unexotica/g ... World.html
Úff... vægt nostalgíukast í gangi núna!
PS. Þið vitið strákar að þið getið auðveldlega leitað uppi flest alla þessa gömlu leiki með því að leita að "Abandonware" á google eða yahoo eða einhverju...
Sent: Fös 30. Jan 2004 15:13
af Arnar
Ég spilaði Full Throttle mikið, snilldar leikur
Sent: Fös 30. Jan 2004 17:01
af Tesli
OMG hvað Day of the Tentacle, Sam and Max og Full throttle voru geggjaðir leikir, ég kláraði þá oft og mörgu sinnum á sínum tíma....
Nýji Full Throttle er búinn að vera, þeir hættu með hann eins og Icecaveman sagði. (vonbrigði dauðans)
Sent: Fös 30. Jan 2004 18:12
af viddi
Hvað er þetta er enginn að spila Red Alert 1
Tærasta Snilld
Sent: Fös 30. Jan 2004 22:39
af Snorrmund
Ég er bara hneikslaður!!! Enginn hérna er búinn að nefna rúsínuna í pylsuendanumm!! LARRY!!!
Sent: Fös 30. Jan 2004 22:51
af ICM
stocker sorry ég vissi ekki til þess að það væri keppni í að nefna nöfn hérna...
Sent: Fös 30. Jan 2004 23:50
af Damien
kiddi skrifaði:Damien, þú ert væntanlega að tala um Another World, sem var algjör tærasta snilld.. einn fyrsti leikurinn á eftir Prince of Persia sem var með alveg geggjað smooth character hreyfingar.. síðan 1991!
Jájájájájájá!!!
Haha! þetta er hann, góður kiddi.
Allveg snildarleikur.
Alveg satt sem þú segir, mjöög smooth character hreyfingar, allt svona liquid og flott.
Another World... rosalega var graffíkin flott þegar þessi leikur kom út...
Sent: Fös 30. Jan 2004 23:54
af Damien
Þessi síða sem þú vísar í, eru þetta ekki dl og spilanleg versions af leikjunum?
Þeir eru allir í formattinu .lha
hvar finn ég playerinn fyrir þetta? sé hann ekki á síðunni
Sent: Fös 30. Jan 2004 23:58
af Damien
Hmm er þetta tónlistin úr leikjunum eða?
UnExoticA skrifaði:"Over 390 megabytes of awesome tunes."
og
"The ExoticA Game Music Archive"
Sent: Lau 31. Jan 2004 02:26
af kiddi
Leitaðu að DeliPlayer ef ég man rétt, hann spilar ~ca 150 ólík Amiga soundformött, m.a. þetta sem Another World sándtrakkið er í..... og jú, þú getur fundið leikinn á AbandonWare síðum .. sem eru óteljandi talsins =)
Sent: Lau 31. Jan 2004 03:20
af Zaphod
Held því miður að LucasArts haldi ennþá fast í copyright á flestum sínum leikjum nema kannski Pipe Dreams ( Man einhver eftir honum? )
Löglegar Abandonware síður linka ekki í leiki ef höfundurinn er í ESA. Held að LucasArts sé í því or some
En þeir sem ætla sér að spila þessa klassísku leiki er þetta málið
http://www.scummvm.com/