Síða 1 af 2

Góðir LAN leikir?

Sent: Lau 13. Mar 2010 18:46
af BjarkiB
Sælir/ar vaktarar,

Nú fyrst maður er kominn með góða nýja tölvu svo ég ætla að halda smá LAN. Hvaða leikjum mælið þið með? og hvernig tengir maður allar tölvunar? og með hvernig tengi/stykki?

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Lau 13. Mar 2010 18:48
af ViktorS
cs 1.6 er legendary :P en gekk vel að setja saman tölvuna?

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Lau 13. Mar 2010 18:51
af TwiiztedAcer
Far Cry, Battlefield, Halo og Half Life etc.
The Ship :D

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Lau 13. Mar 2010 18:52
af BjarkiB
Hún er ekki allveg komin saman. Restin af hlutunum á leiðinnni.

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Lau 13. Mar 2010 19:27
af Lexxinn
cs 1.6 bara basic svo geturu farið í cod4 ef nógu margir svo fer bara eftir ef þið verðið online eða ekki

en til að tengja þær saman þarftu switch/hubb

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Lau 13. Mar 2010 20:11
af BjarkiB
Semsagt ég tengi svona switch við aðal rásina á routernum og tengi svo allar tölvunar í switchin?

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Lau 13. Mar 2010 20:14
af Lexxinn
Tiesto skrifaði:Semsagt ég tengi svona switch við aðal rásina á routernum og tengi svo allar tölvunar í switchin?


Akkurat en mundu að netið fer alltaf í fyrsta portið haha klikkaði á því einu sinni ;S

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Lau 13. Mar 2010 20:18
af BjarkiB
Haha, takk fyrir ráðlegginguna :wink:

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Lau 13. Mar 2010 21:30
af Orri
Helstu leikirnir sem ég hef spilað á lönum eru þessir :

CS 1.6 (Energy útgáfuna ef fólkið er lélegt í CS)
Halo CE
COD4
Left4Dead 2
Red Faction Guerilla*
Bionic Commando*
Far Cry 2*
Rainbow Six Vegas 2*

Man ekki eftir fleirum í augnablikinu.
*Hef lent á lönum þar sem margir eru með tölvur sem ekki ráða við þessa leiki.

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Lau 13. Mar 2010 21:42
af Harvest
Leikir sem ég lana ALLTAF í:


Strats:
Company of heroes
Supreme Commander
C&C: Generals
Starcraft

FPS
HL2: Source
CS: Source
Team-fortress: source
Dod: source
COD4
Left4Dead 2
SWAT 4
Flashpoint

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 11:14
af KermitTheFrog
Það sem hefur verið mest spilað á lönum sem ég hef farið á er CS 1.6, Day of Defeat, Left 4 Dead, Warcraft, við höfum nokkrir dottið í COD 4 af og til.

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 11:40
af DeAtHzOnE
Gratz með tölvuna. :)

Halo og CS eru mjög góðir.

ég og vinur mínir lönuðum í halo fyrir sirka mánuði og dóum úr hlátri þetta var svo mikil snild!!!

Bad commpany 2 er BILAÐUR!!!!!

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 14:24
af Enginn
DeAtHzOnE skrifaði:Gratz með tölvuna. :)

Halo og CS eru mjög góðir.

ég og vinur mínir lönuðum í halo fyrir sirka mánuði og dóum úr hlátri þetta var svo mikil snild!!!

Bad commpany 2 er BILAÐUR!!!!!


Styð Bad Company 2!

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 14:49
af Pandemic
Lexxinn skrifaði:
Tiesto skrifaði:Semsagt ég tengi svona switch við aðal rásina á routernum og tengi svo allar tölvunar í switchin?


Akkurat en mundu að netið fer alltaf í fyrsta portið haha klikkaði á því einu sinni ;S


skiptir engu máli.

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 15:57
af Jimmy
Unreal Tournament!
Finnur ekki meiri eðal.

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 16:24
af starionturbo
Pandemic skrifaði:
Lexxinn skrifaði:
Tiesto skrifaði:Semsagt ég tengi svona switch við aðal rásina á routernum og tengi svo allar tölvunar í switchin?


Akkurat en mundu að netið fer alltaf í fyrsta portið haha klikkaði á því einu sinni ;S


skiptir engu máli.


Það skiptir bara víst máli á switch.
Þú þarft að tengja Internet access í WAN portið sem er yfirleitt fyrsta portið á switchinum.
Stundum er hægt að breyta switch í access point (hub) og þá má hann vera í hvaða númeraða porti sem er. ( ekki WAN samt ).

Ef þið komist ekki á netið getur verið að þið þurfið að stilla switchinn, láta hann tengjast DHCP í gegnum WAN, og spurning hvort hann hleipi því yfir í öll hin portin eða keyri dhcp server sjálfur.

annars mæli ég með C&C Generals!

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 16:35
af ingibje
ég maeli með quake3 ! cs og Generals :)

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 16:38
af Lallistori
Quake , Half life , Cs 1.6 , Battlefield

Svona það helsta sem spilað er á lönum sem ég hef mætt á í gegnum tíðina :D

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 18:15
af bAZik
Battlefield 1942
Counter-strike
Warcraft 3

Yfirleitt eru samt allir leikir góðir í góðum félagsskap..

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 19:18
af Pandemic
starionturbo skrifaði:
Það skiptir bara víst máli á switch.
Þú þarft að tengja Internet access í WAN portið sem er yfirleitt fyrsta portið á switchinum.
Stundum er hægt að breyta switch í access point (hub) og þá má hann vera í hvaða númeraða porti sem er. ( ekki WAN samt ).

Ef þið komist ekki á netið getur verið að þið þurfið að stilla switchinn, láta hann tengjast DHCP í gegnum WAN, og spurning hvort hann hleipi því yfir í öll hin portin eða keyri dhcp server sjálfur.

annars mæli ég með C&C Generals!

Gætir þurft að gera það ef þú værir með gamlan switch með Uplink porti en svo er ekki í dag á þessum nýju. Datt svona í hug að prófa þetta til að athuga hvort þetta væri alveg örruglega ekki rétt hjá mér. Er með gamlan Netgear switch sem er með uplink port (reyndar ekki í notkun). Annan InfoSmart frá kísildal sem þetta breytir engu á og einn annan frá Trendnet sem þetta breytti engu á. Ég er að skrifa innlegg núna á Porti 3 á Vodafone router sem tengist yfir í Trendnet á porti 2 og svo Infosmart switch á porti 6. Það er bara góð regla að tengja í port 1 en það er engan vegin nauðsynlegt.


Góðir lan leikir
CS
Killing floor
COD 3 og 4.
Battlefield ef þú hefur fjöldan.
SWAT

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 19:19
af dori
Ég mæli virkilega mikið með Age of Empires II. Það er frábær leikur.

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Sun 14. Mar 2010 21:03
af beggi90
Age of empires II og Counter strike 1.6.

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Mán 15. Mar 2010 19:44
af littli-Jake
Jimmy skrifaði:Unreal Tournament!
Finnur ekki meiri eðal.

djöfull er ég sammála þér

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Mán 15. Mar 2010 22:49
af depill
starionturbo skrifaði:Það skiptir bara víst máli á switch.
Þú þarft að tengja Internet access í WAN portið sem er yfirleitt fyrsta portið á switchinum.
Stundum er hægt að breyta switch í access point (hub) og þá má hann vera í hvaða númeraða porti sem er. ( ekki WAN samt ).

Ef þið komist ekki á netið getur verið að þið þurfið að stilla switchinn, láta hann tengjast DHCP í gegnum WAN, og spurning hvort hann hleipi því yfir í öll hin portin eða keyri dhcp server sjálfur.


úff það er svo margt rangt.....

Fyrst. Switch getur ekki haft "WAN" port ( L2 switchar geta það ekki, gætir svo sem tæknilega gert WAN port á L3 switch, en ég ætla ekki að fara í riflidið með L3 switch og routera með innbyggðum switch .... ).

Switch getur ekki heldur verið HUB, og Access point er ekki HUB. Það er allt önnur virkni í switchum heldur en hubbum og hubbar tengjast ekkert access punktum. Persónulega hef ég aldrei heyrt talað um access punkta nema í bara wifi skilgreiningunni, og allavega Cisco talar aldrei um access point sem annað en wifi, en kannski ert þú að leggja aðra hugsun í það. Það er svo sem til access punktar með innbyggðum switch líka... Og routerar með innbyggður access púnkt ?

Neðstu setninguna skil ég varla, ef þú ert sérstaklega að hugsa um L2 switcha þá skiptir þetta aftur engu máli.

Þú ert soldið að rugla saman "hub's", "access points", "switchum" og routerum sem þér tókst einhvern að koma í svarið þitt að væri basicly sami hluturinn sem þeir eru ekki.

Ef þetta er dummy L2 switchar eins og allir ódýrir switchar eru, þá skiptir þetta engu máli hvar þú tengir þetta í, passaðu bara ef þú ert að tengja saman marga svissa að gera ekki loopu þá lendirði í STP veseni. Það mætti kannski frekar benda á að passa að tengja ekki í IPTV portið á routerunum ef þetta sé þess konar router..

Re: Góðir LAN leikir?

Sent: Mán 15. Mar 2010 23:07
af krizzikagl
Þetta eru leikir sem ég hef spilað mest á lönum:

GTA IV
LoL = League of Legends
CS 1.6
Warcraft 3

Aldrei klikkað! ;D