Síða 1 af 1

Far Cry 2 -- Pínu vesen

Sent: Sun 28. Jún 2009 18:28
af KermitTheFrog
Jæja, þá er maður að taka Far Cry 2 upp aftur eftir að hafa gefist upp á honum fyrir áramót. Ég mæli eindregið með því að fólk sem hefur verið að bölva honum í sand og ösku að spila hann meira því hann er mjög góður þegar maður er kominn aðeins inn í hann.

En nóg um það. Þannig er mál með vexti að ég get mountað byssur sem eru ekki svona "handheld" en mér tekst enganveginn að unmounta þær nema með því að nota syrettes til að heala mig. Ég vona að þetta skiljist. Google hjálpar mér takmarkað + það að ég virðist hafa lent í cappi svo ég nenni lítið að bíða í nokkrar mín eftir síðum til að loada.

Von mín var að einhver hérna hefði lent í þessu en náð að græja þetta?