Síða 1 af 1

Opna port, hjálp!

Sent: Þri 07. Apr 2009 07:46
af Callio
Sælir/Sælar

Ég er búinn að reyna að opna port til að geta "hostað" leik í Warcraft III. En það ætla ekkert að fara virka.

Ég er búinn að fara í http://www.portforwarding.com, gerði allt þar sem átti að gera, en samt virkar ekki að hosta leik í wc3.
Ég er búinn að prófa að loka FireWall, er líka búinn að prófa að opna port þar, en samt virkar það ekki.

Ég er búinn að vera á http://www.google.com og leitað á mörgum síðum og spjöllum, og gá hvort ég myndi finna lausn á þessu. En ekkert ætla að virka.

Svo ég hugsaði með mig hvort þetta sé vista að kenna, því ég er með Vista.

En samt finn ég ekki neitt né neitt til að hjálpa mér og ég hef prófað allskyns hluti en virkar samt ekki neitt.

Ef einhver af ykkur spjallverjum gætu hjálpað mér, væri mjög vel feginn, því ég er búinn að reyna að geta hostað leik í wc3 í marga daga, en ég er bara kominn á leiðarenda og spurja um hjálparhönd.

Ég er hjá Ogvodafone, Zyxel P-660W-D1

Ég er búinn að prófa fara inná http://www.ogvodafone.is og fara þarna í að opna port, en var búinn að gera það áður.

Getur einhver sagt mér hver í fjandanum er að stoppa mig til að geta hosta leik í Wc3?

Það hefur ábyggilega komið 100 þræðir um að opna port, en þetta vandamál er bara of skrýtið.
Stefán.

Re: Opna port, hjálp!

Sent: Þri 07. Apr 2009 11:49
af Andriante
Hringdu í vodaphone og biddu þá um að opna port 6112.

Badaboom, komið.

Re: Opna port, hjálp!

Sent: Þri 07. Apr 2009 13:28
af depill
Vodafone mun segja þér að opna portið sjálfur þar sem þeir aðstoða ekki við það vegna blablblablalb

Þú ert sem sagt búinn að opna portið í NATinu á ZyXEL routernum ? Ertu líka búinn að gata eldvegginn undir Firewall og ertu búinn að tékka á því að eldveggurinn á vélinni þinni er ekki heldur að blocka það ?

Re: Opna port, hjálp!

Sent: Þri 07. Apr 2009 15:01
af Callio
Ég slökkti bara á FireWall.

Ég er ekki viss hvort ég opnaði port þar rétt.
Virkar eitthvað að hringja til Ogvodafone?

Re: Opna port, hjálp!

Sent: Þri 07. Apr 2009 15:30
af Andriante
Callio skrifaði:Ég slökkti bara á FireWall.

Ég er ekki viss hvort ég opnaði port þar rétt.
Virkar eitthvað að hringja til Ogvodafone?


Hmm.. ég gat allavega hringt í símann og Tal og beðið þá um að opna port.

Re: Opna port, hjálp!

Sent: Þri 07. Apr 2009 18:34
af Callio
Nei heyrðu, ég gerði smá villu þarna og það er bara komið hjá mér.

Þakka ykkur innilega fyrir hjálpina.

Stefán.

Re: Opna port, hjálp!

Sent: Þri 07. Apr 2009 18:37
af KrissiK
http://www.vodafone.is/internet/adsl/stillingar
ég fann þarna opna port stillingar meirasegja fyrir minn router og ég þarf að opna port fyrir Call Of Duty 4 :D!
og þetta ætti að virka..á eftir að prófa