Síða 1 af 1
Vandamál með að keyra Half Life 2
Sent: Fös 08. Ágú 2008 17:20
af DoofuZ
Félagi minn var nýlega að setja inn Half Life 2 hjá sér og leikurinn mælir sjálfur með að hafa grafíkina í hæsta (autodetect fídusinn) en samt hökktir leikurinn eitthvað hjá honum og líka þó hann lækki aðeins stillingarnar
Tölvan hans ætti samt að vera nógu góð til að keyra leikinn, þetta er
MSI K9AG NEO2-Digital HDMI móðurborð með innbyggðu ATI Radeon x1250 skjákorti, svo er hann með 2 gb í minni og AMD Athlon 64 X2 Dual Core 4200+ HT 2,2GHz örgjörva. Hvað er eiginlega málið? Er tölvan eitthvað léleg eða?
Re: Vandamál með að keyra Half Life 2
Sent: Fös 08. Ágú 2008 17:31
af Joi_gudni
nei tölvan er ekki léleg. þú þyrftir að hafa ömurlega tölvu til að geta ekki spilað HL2 en keyptiru hann á steam eða á disk? Orangebox eða Original hl2?
Re: Vandamál með að keyra Half Life 2
Sent: Fös 08. Ágú 2008 17:59
af DoofuZ
Tja, hann var nú bara tekinn af netinu
Re: Vandamál með að keyra Half Life 2
Sent: Fös 08. Ágú 2008 17:59
af Joi_gudni
ussussuss.. þá gæti hvað sem er verið að honum..
Re: Vandamál með að keyra Half Life 2
Sent: Fös 08. Ágú 2008 18:47
af beatmaster
DoofuZ skrifaði:...móðurborð með innbyggðu ATI Radeon x1250 skjákorti
Þú svaraðir þarna sjálfur hvað vandamálið er, innbyggð skjákort höndla ekki leikjaspilun, eru fín í alla aðra vinnslu en henta ekki í þetta, allt annað í tölvunni er nógu gott (bara eitthvað gamalt agp/pci-e myndi keyra þetta betur en innbyggða skjákortið)
Re: Vandamál með að keyra Half Life 2
Sent: Fös 08. Ágú 2008 19:29
af DoofuZ
Jamm, mér datt svosem í hug að innbyggða skjákortið gæti verið vandamálið en fannst það samt svoldið ólíklegt miðað við þær litlu vélbúnaðarkröfur sem leikurinn gerir. Ég meina hann hökktir líka með allt í lægsta
Og þetta er reyndar episode 2 af hl2 en samt...
Re: Vandamál með að keyra Half Life 2
Sent: Mán 11. Ágú 2008 22:10
af ÓmarSmith
hehe
þetta skjákort er flöskuháls.
Þú færð ATI 3850kort á 7000kr í Tölvutækni og það held ég ræður alveg við HL2 með góðu móti. Plús að það er viftulaust.
Re: Vandamál með að keyra Half Life 2
Sent: Mið 13. Ágú 2008 01:11
af Gúrú
Þú meinar víst 3450.