Síða 1 af 1

Cs 1.6 lag!

Sent: Þri 24. Jún 2008 01:51
af ArniHrafn
sælir tölvusérfræðingar

Tölvan mín ofhitnaði síðasliðinn 7. júní og ég fór daginn eftir og keypti mér nýja.
Intel core 2 duo E8400 3 Ghz örgjörvi
Asus P5N-D móðurborð
2 x 2 Gb 800 mHz vinnsluminni
nvidia 9600 gt 512 mb skjákort

Ég er búinn að nota tölvuna aðallega undir vefráp og videogláp en æxlaðist til að setja gamla counter strike í hana og bjóst við að það yrði "smooth"
en annað kom á daginn ...
Á ca. 20 sekúndna fresti stoppa ég allveg og birtist síðan eftir 3 sek á stað 10 metrum fyrir framan mig
Lýsir sér bara eins og risa lagg á 20 sek fresti

þetta bara botna ég ekki, tölvan glæ ný og allir driverar uppi. Er Cs of þungur fyrir þessa tölvu?! :o neei því á ég bágt með að trúa
Skjákortið stillt á performance en ekki quality eins og mér var sagt að gera.

Mætti halda að ég væri að spila á einhverjum glötuðum serverum útí kína, en ég er bara að spila á þessum klassísku íslensku serverum :(
Þetta kemur sér frekar illa þegar maður er t.d í miðju scrimmi og síðan ertu bara laggandi á 20 sek fresti og ert alltaf drepinn :roll:


Ef einhver hefur lausn við þessu mikla vandamáli mínu væri sú hjálp hjartanlega vel þegin

-Árni :D

Re: Cs 1.6 lag!

Sent: Þri 24. Jún 2008 08:30
af mind
Þetta lýsir sér nú frekar eins og þetta sé netið(pakkatap) heldur en sjálfur tölvubúnaðurinn, samt soldið langt síðan ég spilaði síðast.

Ertu að spila á þráðlausu neti ?
Hvernig internettenginu ertu með ?
Virka aðrir netleikir án hökts ?
Getur verið að það sé einhver hugbúnaður í gangi í bakgrunninum ? t.d. vírusvörn sem er að reyna fara í gang.

Það er stundum til í dæminu að nýjustu reklar fyrir skjákort virki ekki sem skildi, getur prufað eldri ef þú vilt útiloka þá.

Re: Cs 1.6 lag!

Sent: Þri 24. Jún 2008 08:58
af raggzn
þetta lýsir sér eins og flushentitypacket þar sem það kemur útaf þráðlausu neti =) ekki tölvubúnaðurinn.

Re: Cs 1.6 lag!

Sent: Mið 25. Jún 2008 00:22
af ArniHrafn
Ja ég er á þráðlausu neti :oops: vesen að tengja inn í mitt herbergi því ég er svo langt frá routernum. Hélt samt að mín tenging (Hive Max 12/mb) væri nógu góð til að ráða við þetta þar sem ég er að geta t.d downloadað á 1 mbps og deila á 150 kbps + það að allir leikir virkuðu mjög smooth í gömlu vélinni :|
Samt engin vírusvörn eða neitt í gangi þegar ég spila (utan við nod32 sem er alltaf í gangi) og slökkt á µtorrent og alles :D

En í sambandi við einhverja rekla fyrir skjákortið? hvar finn ég eldri rekla ef ég þarf að skipta? hvað þarf ég að googla til að fá það sem skyldi?

takk fyrir svörin félagar ;)


-Árni

Re: Cs 1.6 lag!

Sent: Mið 25. Jún 2008 07:52
af Aimar
Nyjasti Nvidia driverinn. [http://www.nvidia.com/Download/index.aspx?lang=en-us]

Re: Cs 1.6 lag!

Sent: Mið 25. Jún 2008 09:26
af mind
Þetta er ekki réttasta lýsingin á hvernig hlutir virka en líklega einfaldasta útgáfan.

Stærðing á tengingunni t.d. ADSL2+ 12mb hefur lítið að gera með sjálft þráðlausa netið.

Hraðinn á tengingunni þinni er alveg nægur, en það þarf ekki meira heldur en að þú eða nágranni þinn kveikji á örbylgjuofn til að hafa áhrif á þráðlausa netið, það til dæmis drapst heima hjá mér allt þráðlausa netið við að kveikja á örbylgjuofn. Getur stundum lagað þetta með að breyta á hvaða channel þráðlausa netið er.

Download virkar öðruvísi heldur en tölvuleikir, download eru oftast stærri pakkar sem eru bara endursendir ef eitthvað klikkar þar sem það er engin tímaþröng á þeim.

Þegar þú hinsvegar ert að spila tölvuleiki þá er mjög mikilvægt að allir pakkar til og frá þér komist hratt og tímanlega til skila svo þú sjáir hvað er í gangi og aðrir sjái hvað þú ert að gera, hinsvegar þegar tapast nógu margir pakkar þá fer tölvuleikurinn í "bið" eftir upplýsingum sem er líkt því að frjósa. Svo heldur hann áfram að biðja um nýjustu upplýsingarnar og ef ekkert skeður þá biður hann um alveg nýtt sett af upplýsingum því allar hinar upplýsingarnar eru orðnar of gamlar. Þegar hann fær það þá fer hann aftur í gang og "laggið" stoppar.
Þetta er líklega ferlið sem þér finnst "lagga" og svo nokkrum sek seinna er allt í lagi.

Þær lausnir sem eru í boði:
Kaupa alminnileg þráðlaus loftnet fyrir báða [u]enda[/u]. Þau sem fylgja eru yfirleitt einungis 1-2dBi og þú getur fengið allt uppí 7dBi innanhúsloftnet.(sem eru margfalt öflugri) - athugaðu að ekki allir routerar leyfa þér að skipta um loftnetið.
Net yfir rafmagn, held samt sett kosti 15-25þús ef það á að ná 100mb + hraða
Leggja netkapal.

Re: Cs 1.6 lag!

Sent: Mið 25. Jún 2008 21:30
af ArniHrafn
takk fyrir svörin :D

ég var að spá í að tengjast í gegnum LAN beint í routerinn en ég veit ekkert hvernig ég geri það. Ok snúrurnar eru á sínum stað held ég en er ekk einhvað sem ég þarf að gera eftir það? fikta einhvað í stillingum eða svoleiðis? :oops: