Síða 1 af 2

Crysis Multiplayer Íslenskir Spilarar

Sent: Sun 13. Jan 2008 16:32
af ÓmarSmith
Sælir.

Langaði að vita hvað það eru margir hérna sem spila Crysis daglega eða sirka í MP ?

Ég spila hann alveg amk í 1-2 tíma á dag og elska Powerstruggle.

Væri gaman að spila leikinn með íslendingum og jafnvel nota Teamspeak og svona.

Látið mig vita hérna hverjir af ykkur eru að spila.

Sent: Mán 14. Jan 2008 21:15
af Ezekiel
Ég spila nú eitthvað en það varð eitthvað minna eftir að ég fékk Xbox í jólagjöf frá kellu. Ætla samt að vera duglegur að koma mér á netið aftur í Crysis.

Sent: Þri 15. Jan 2008 09:40
af ÓmarSmith
Eru virkilega ekki fleiri hérna sem spila þennan leik online ?

Össs.. Þetta er by far einn besti mp leikur sem ég hef spilað. Ég segi reyndar að BF2 í Crysis grafíkinni væri the Ultimate game

Sent: Þri 15. Jan 2008 11:33
af Andriante
Ömurlegur multiplayer leikur

Ekki að ástæðulausu að það spilar hann enginn. Þú ert með einhverjar delusions of grandeur þegar það kemur að Crysis Ómar minn :lol:

Sent: Þri 15. Jan 2008 13:01
af Dazy crazy
crysis var örugglega svo dýr þegar að hann keypti hann að hann tímir ekki einu sinni að segja að hann sé lélegur.

væri eins og að segja eyddi 6000 krónum í ónýtan hlut. haha :wink:

Sent: Þri 15. Jan 2008 13:05
af ÓmarSmith
Það er meira en nóg af fólki að spila hann, bara fáir íslendingar sem ég veit af amk.

Ef þér þykir hann lélegur þá er það þitt issue. Mér þykir hann alveg yfirburða góður.

Powerstruggle er án vafa eitt besta mp concept sem ég hef spilað.

Sent: Þri 15. Jan 2008 13:24
af Blasti
Ég væri til í íslenskan server

Sent: Þri 15. Jan 2008 13:29
af ÓmarSmith
Ég er að spá í að opna bara server og við sjáum svo bara til. Spurning um að hafa hann CrysisIceland eða álíka með passwordi.

Sent: Þri 15. Jan 2008 13:37
af Dazy crazy
ég sagði ekki að mér þætti hann leiðinlegur, finnst hann bara svona melló.

Sent: Þri 15. Jan 2008 13:58
af ÓmarSmith
Ertu búinn að prufa almennilega serveraí MP ?

Ég fílaði hann ekkert eins vel fyrst eins og núna, en leið og ég datt inn í Powerstruggle og hitti á server með skemmtilegu fólki þá varð þetta allt annað.

Svo spillir ekki fyrir hversu yndislega flottur leikurinn er.

Sent: Þri 15. Jan 2008 15:47
af Dazy crazy
ég á hann ekki, bara aðeins búinn að kippa í hann í svona 4 klukkutíma eða eitthvað. Veit að það segir ekki mikið, kannski ég ætti að skoða hann aðeins betur yfir helgi.

Sent: Þri 15. Jan 2008 15:56
af ÓmarSmith
úúfff já.

Ættir að fjárfesta bara í honum. Þú ert með nógu ´góða vél í það. Nota hann bara í XP og tweaka hann svo til.

Sérð ekki eftir því.


fyrir utan hversu FÁRÁNLEGA gaman er að leika sér í Editornum. Spawna þyrlur og hvirfilbyli og svona skemmtilegt. Breyta tíma dags, og allri lýsingu í leiknum.

Getur t.d breytt litnum á sólinni og hversu mikið endurkast hún gefur af sér á hlutum. Bara þetta er of skemmtilegt tól " CryEditor "

Sent: Mið 16. Jan 2008 08:39
af corflame
Hmm, mar ætti kannsi að prófa MP, ekki það að ég hafi of mikinn tíma til að spila þessa dagana, datt úr 20+ tímum á viku (cs source) niður í <2 tíma á mánuði

Sent: Mið 16. Jan 2008 10:40
af Dazy crazy
þú ert voðalega mikið fyrir þetta orð tweak ómar.

Sent: Mið 16. Jan 2008 12:45
af ÓmarSmith
Já og er eitthvað athugavert við það ?

Er e-ð skárra að nota orðið " Tjúna " ? eða " LOL " ?

Sent: Mið 23. Jan 2008 22:07
af egg27
Verð að segja að hann olli mér vonbriðgum þessi leikur, single player er geðveikt en mér finnst multiplayer eiginlega bara ömurlegt

Sent: Fim 24. Jan 2008 16:03
af stjanij
cool ómar, stjum upp server og gerum þetta. geturðu plöggað eitt hvað´niðri í síma fyrir server?

Sent: Fim 24. Jan 2008 17:33
af ÓmarSmith
Það er bara aldrei að vita. Sjá hvað Tech Gúbbarnir segja.

Annars er ólíklegt að e-r af vélunum ráði við hann ;) ÞEssi leikur þarf " tussu " góðan server.


En yfir til þín Egg. Hefur þú prufað að spila PowerSTruggle e-ð af ráði ?

Það tekur smá tíma að detta inn í það og finna sér skemmtilegan server. ÞEgar það gerist... úú..goody goody.

Re: Crysis Multiplayer Íslenskir Spilarar

Sent: Fim 03. Apr 2008 13:13
af ÓmarSmith
Vekja upp gamlan þráð !!!

Hverjir hafa áhuga á íslenskum server gott fólk ?

Re: Crysis Multiplayer Íslenskir Spilarar

Sent: Mán 07. Apr 2008 20:25
af Dazy crazy
Ég væri til ef ég kæmi þessum leik sem ég er með til að virka.

Re: Crysis Multiplayer Íslenskir Spilarar

Sent: Fim 17. Apr 2008 23:01
af Omerta
Uss, þetta er eitthvað sem maður þarf að kynna sér.

Re: Crysis Multiplayer Íslenskir Spilarar

Sent: Fös 25. Apr 2008 23:47
af Harvest
Hérna verð ég bara að bakka Ómar upp.. þetta er geggjaður mp leikur.

Að vísu leiðinlegt að ekki sé hægt að rústa eins miklu eins og og í sp, en engu að síður geggjaður mp. Mæli líka með honum í lan!

Veit að það er seint í rassinn gripið en eruði enn að spila hann?

Re: Crysis Multiplayer Íslenskir Spilarar

Sent: Lau 26. Apr 2008 10:02
af GuðjónR
Ég náði aldrei að klára þennan leik.
Síðasta skrímslið um borð í skipinu náði mér alltaf...
Einhver trix til að sigra það??

Re: Crysis Multiplayer Íslenskir Spilarar

Sent: Sun 18. Maí 2008 12:12
af hsm
GuðjónR skrifaði:Ég náði aldrei að klára þennan leik.
Síðasta skrímslið um borð í skipinu náði mér alltaf...
Einhver trix til að sigra það??


Kanski að ÞETTA hjálpi ???
En ég er ekki búinn að lesa þetta svo ég veit ekki.
Er ekki kominn neitt áfram í þessum leik þar sem ég hef fórnað allt of miklum tíma í að læra heldur en að vera að leika mér #-o

Re: Crysis Multiplayer Íslenskir Spilarar

Sent: Fös 30. Maí 2008 21:35
af pulsar
Þetta er án efa besti og flottasti leikur sem ég hef spilað, er líka búinn að tweaka hann til.. :shock:

Ég dl-aði leiknum og get ekki spilað MP nema ég eyði 6k í það út í búð á mánudaginn, sem ég er mikið að pæla í að gera því megnið af mínum frítíma fer í tölvuna og ég fæ bara ekki leið á þessum leik, búinn að klára hann tvisvar, er að prófa Delta núna en það er kannski einum of erfitt.

Langar að prufa multi playerinn!