Síða 1 af 1

Skjáskot Crysis DX9 VS DX10

Sent: Fös 14. Des 2007 00:50
af Yank
Hér eru skjáskot sem ég tók með Jetway ATI X3870 korti annars vegar í DX9 og hins vegar DX10. Allt í botni sem hægt er að stilla í botn í þessum leik. DX9 High en DX10 gefur bara möguleikan á Very High. Það er að sjálfsögðu ekkert skjákort til sem ræður við þessi gæði enda var þetta að malla í 10-15 FPS. þannig ekki spilanlegt.

Skotin eru ekki nákvæmlega sömu rammar þannig munur er t.d. á fuglum og ryki og laufblöðum og drasli sem fýkur um. En gefur góða mynd af muninum. Þurfti reyndar að minka myndirnar en þær voru teknar í 1680x1050 upphaflega.

Hvað segið þið er mikill munur ?

Meiri litadýpt

Sent: Fös 14. Des 2007 02:22
af Gets
Talsvert meiri liladýpt í DX10

Humm prentvillupúkin á ferðinni, ég átti við litadýpt en ekki liladýpt :?

Sent: Fös 14. Des 2007 08:27
af ÓmarSmith
Það er andskotans engin munur á þessu. Ég fiktaði í þessu fram og tilbaka og editaði hjá mér CFG skránna til að unlocka VERY HIGH effecta í DX9 og viola. Kominn með DX10 effecta í XP.

Crysis og Vista = Nei takk

En h vað þessi skjáskot hjá þér varðar þá er alltof lítill munur til að ræða það e-ð.

Einna helst litirnir og smá skuggar kannski.

Sent: Fös 14. Des 2007 22:05
af Yank
Mér finnst DX10 mun skarpari, og þess virði að nota vista fyrir það. Eina sem vantar er skjákort sem getur keyrt þessa grafík.

Sent: Lau 15. Des 2007 17:28
af ÓmarSmith
Leikurinn laggar mikið meira í Vista en í XP.

Og með því að tweaka a cfg skrárnar þá ertu að spila í alveg nákvæmlega sömu grafík.

Það eru ítarlegar umræður um þetta bæði á

http://www.crysis-online.com
http://www.incrysis.com


Mönnum ber saman um að XP sé málið sökum fleiri FPS og grafíkin sé engan veginn betri í DX10 ( Þannig að maður virkilega taki eftir því )

Þetta er svekk fyrir mesta CRYSIS fan á landinu eins og mig ;) En leikurinn bara er alveg eins og XP.

Sent: Lau 15. Des 2007 19:41
af GuðjónR
Mér finnst nú DX9 myndin flottari....himinn blárri og fuglar sýnlegir á himnum..
Vona að þið hefði ekki hent góðum DX9 kortum og látið plata ykkur í DX10 fyrir þetta? sem ekkert er.
hehehehehe...

Sent: Lau 15. Des 2007 21:36
af Yank
GuðjónR skrifaði:Mér finnst nú DX9 myndin flottari....himinn blárri og fuglar sýnlegir á himnum..
Vona að þið hefði ekki hent góðum DX9 kortum og látið plata ykkur í DX10 fyrir þetta? sem ekkert er.
hehehehehe...


Láttu það ekki plata þig, þessi skot eru ekki tekin á nákvæmlega sama tímapunkti. Fuglarnir eru flognir úr hreiðrinu í DX10 skotinu.

Sent: Lau 15. Des 2007 21:39
af Yank
ÓmarSmith skrifaði:Leikurinn laggar mikið meira í Vista en í XP.

Og með því að tweaka a cfg skrárnar þá ertu að spila í alveg nákvæmlega sömu grafík.

Það eru ítarlegar umræður um þetta bæði á

http://www.crysis-online.com
http://www.incrysis.com


Mönnum ber saman um að XP sé málið sökum fleiri FPS og grafíkin sé engan veginn betri í DX10 ( Þannig að maður virkilega taki eftir því )

Þetta er svekk fyrir mesta CRYSIS fan á landinu eins og mig ;) En leikurinn bara er alveg eins og XP.


Það sem þú ættir frekar að vera svektur yfir er að ekki er til skjákort sem keyrir þennan leik almennilega sama hvort það er í XP eða Vista. Þessi leikur er svona framtíðarsýn í grafík næstu 1-2 árin.

Sent: Sun 16. Des 2007 00:56
af ManiO
Yank skrifaði:
Það sem þú ættir frekar að vera svektur yfir er að ekki er til skjákort sem keyrir þennan leik almennilega sama hvort það er í XP eða Vista. Þessi leikur er svona framtíðarsýn í grafík næstu 1-2 árin.


Eins og ég hef áður sagt, Crysis er ekkert annað en Benchmark forrit með single player "storyline."

Sent: Sun 16. Des 2007 15:41
af ÓmarSmith
Nokkuð rétt.

Það er varla skjákort sem er í góðum fílíng í dag með þennan leik öðruvísi en þú lækkir soldið í grafík.

Ég er að spila leikinn í 1280x800 og bland af med/High með VERY HIGH tweaks.

Það verður gaman að sjá hvernig 9800GTX kortið á eftir að höndla þennan leik ásamt Q6600 @ 3.0Ghz

Eða einfaldlega 2nd Gen af DX10 kortunum sem eru væntanleg 2008

Sent: Sun 16. Des 2007 19:08
af GuðjónR
Ég spilaði hann í medium gæðum og eini staðurinn sem ég varð var við lagg var borðið þar sem snjóaði.

Sent: Mán 17. Des 2007 22:38
af Pepsi
ja, AMD/ATI eru, samkvæmt orðrómi, að búa til 8 kjarna kort sem koma á næsta/þarnæsta ári. Semsagt ný lína 2,4 og 8 kjarna kort, vonandi satt og vonandi tilkall til grafísku krúnunnar............ Gott fyrir okkur leikjakallana ef ATI komast aftur á skrið. Semsagt betri og öflugri kort handa okkur. fyrr

Sent: Þri 18. Des 2007 00:24
af ÓmarSmith
Ehh.. og helduru virkilega að Nvidia séu bara chillandi á narjonum að bíða eftir þessu korti til að koma með sitt útspil ?

Think again.

Þeir verða án efa á undan með e-ð monster þar sem að yfirhöndin er svo svakalega þeirra núna og búin að vera alveg síðan 8800 línan var kynnt.

9800GTS og GTX kortin lofa líka rosalega góðu. GTS kortið úr þeirri línu er t.d mikið öflugra en 8800 Ultra í dag, og það er ekki einu sinni komið official specs á kortið.

Ég gæti alveg eins trúað þeim til að hafa þau enn öflugri en fyrst var talað um.

Sent: Þri 18. Des 2007 22:45
af Pepsi
Think again? Why? Hvernig geta nýju Nvidia kortin lofað góðu ef speccarnir eru ekki einusinni opinberir? Auðvitað verða þau öflugri en þau sem fyrir eru, hverjum dytti í hug að framleiða nýja línu sem verður ekki öflugri en sú gamla?? 8 kjarna skjákort lofar líka góðu þó engir speccar séu komnir....


Það sem ég var að benda á er að ákveðinn orðómur er í gangi, eitthvað nýtt frá AMD/ATI, og það sem ég vona er, að þau kort verði helvíti öflug, jafnvel það öflug að þeir nái að skáka Nvidia..... Hvað myndi það gera fyrir okkur?


Jú samkeppni á ný, sem er gott. Ef ATI getur ekki komið með eittvað nógu öflugt gegn Nvidia, þá hafa þeir enga þörf fyrir að flýta sér að koma tækninýjungum og krafti nýrra korta til okkar leikja og grafík fíkla.....

Semsagt, ég vill fá eitthvað breakthrough frá ATI eingöngu til að halda Nvidia á tánum. Og ef enginn er sammála mér í þessu, þá er eitthvað að.

Sent: Mið 19. Des 2007 13:03
af ÓmarSmith
gæti bara ekki verið ....... meira sammála ;)

Það þarf að hrista aðeins upp í þessu þar sem að ATI hafa ekki átt neitt útspil í alltof langan tíma.