Síða 1 af 1

COD4 og Gears til landsins?

Sent: Þri 06. Nóv 2007 14:36
af fr0sty
Veit einhver hvenær þessir eru væntanlegir til íslands??

Sent: Þri 06. Nóv 2007 18:53
af Andriante
Ég er búinn að tala við skífuna sem byrgir leikina og þeir segja að þeir komi 9. nóv í verslanir, en það er ekki alveg 100%.

Ég hringi aftur á morgun og fæ það endanlega staðfest og læt ykkur vita.

Sent: Þri 06. Nóv 2007 20:59
af fr0sty
frábært, takk.

Sent: Mið 07. Nóv 2007 14:24
af Andriante
Það er alveg pottþétt að hann kemur á föstudaginn, það er hinsvegar hugsanlegt að hann komi ekki í verslanir fyrr en með seinni sendingum (16-18) samkvæmt BT.

Ég er líka búinn að hafa samband við Elko og gæinn þar sagði að hann kæmi á morgun, sem er líka hugsanlegt þar sem það er ekkert óvanalegt að þeir fái sendingar deginum fyrir launch..

Hinsvegar fannst mér Elko gæinn ekki vita alveg hvað hann var að tala um, en allavega hann kemur pottþétt á föstudeginum.

Og með gears of war, ég gleymdi að spurja.. Hann kemur alveg ábyggilega á sama tíma