Síða 1 af 2
Svo ps3 á eftir seljast ílla sögðuð þið?
Sent: Sun 08. Apr 2007 22:04
af hakkarin
Ég er enginn fanboy en mér finnst samt soldið fyndið að eftir allt þetta
XBOX OG WII EIGA EFTIR AÐ JARÐA PS3!!!!
SONY MENN HAFA SKOTIÐ SIG Í FÓTINN MEÐ PS3!!!!
SONY Á EFTIR AÐ TAPA FORMAT STRÍÐINU!!!!
Þá er ps3 búinn að slá met og seldist miklu meirra í evrópu heldur en þegar Xbox 360 og wii komu first. Éf ég vitna í enhvern gaur (eða konu) hérna á vaktini : já mér hlakkar bara til til að sjá hvað hún á eftir að seljast ílla hér á
Íslandi! Þá getur hann étið það aftur. Samt ef maður pælir í því, afhverju er ps3 svona vinsæl? Væntanlega bara af því að ps2 rústaði xbox og að því að xbox 360 hefur verið auglýst lýtið sem ekki neitt miðað við ps3 hvernig sem það má vera
Sent: Mán 09. Apr 2007 11:11
af andribja
Þetta var aðallega því það var til nóg af tölvum @ launch... (Ég er ekki fanboy, ég á PS3)
Sent: Mán 09. Apr 2007 14:32
af Pandemic
Vá einhver var að skoða fréttirnar á bt.is
Sent: Mán 09. Apr 2007 15:21
af hakkarin
Pandemic skrifaði:Vá einhver var að skoða fréttirnar á bt.is
Hvaða frétt
Sent: Mán 09. Apr 2007 15:29
af ÓmarSmith
Hverngi væri nú að bakka þetta upp með T.D Sölutölum en ekki bara brosköllum og þvaðri.
Sent: Mán 09. Apr 2007 17:07
af Dagur
ég veit ekki með Xbox360, en wii seldist upp um leið og það er ennþá erfitt að fá eintak í mörgum evrópulöndum. Þú getur labbað út í búð hvar sem er og keypt PS3 aftur á móti
Sent: Mán 09. Apr 2007 17:47
af hakkarin
Dagur skrifaði:ég veit ekki með Xbox360, en wii seldist upp um leið og það er ennþá erfitt að fá eintak í mörgum evrópulöndum. Þú getur labbað út í búð hvar sem er og keypt PS3 aftur á móti
Sem þýðir að nóg er til af tölvuni og af hverju er það slæmt
Fæ mér líklega Xbox þannig að mér nokkuð sama
Sent: Mán 09. Apr 2007 17:50
af Alcatraz
Byrjar vel, en það þýðir ekki að þetta muni enda vel.
Xbox 360 vs. PS3 verður, held ég, bara spurning um það hvað þú velur, eins og með fótboltalið. Ef ég á Xbox 360 tölvuna þá held ég því fram að hún sé mun betri en ef ég ætti PS3 væri það öfugt.
Ég held að þessar tölvur muni seljast svipað.
Sent: Mán 09. Apr 2007 17:51
af zedro
hakkarin skrifaði:Pandemic skrifaði:Vá einhver var að skoða fréttirnar á bt.is
Hvaða frétt
BT.is skrifaði:PlayStation 3 slær met í sölu!Sala á PlayStation 3 fór af stað með látum sl. föstudag og er þetta stærsta útgáfuhelgi leikjtölvu á Íslandi frá upphafi! PlayStation 3 seldist í fleiri eintökum en PlayStation 1 og 2, aðrar leikjavélar seldust einnig í minna magni þegar þær fóru í sölu og landsmenn því klárlega tilbúnir að taka þátt í afþreyingar-byltingunni sem PlayStation 3 kynnir til leiks.
Þessi árangur speglar þann árangur sem PlayStation 3 náði á helstu mörkuðum Evrópu þegar vélin var gefin út, og má nefna að PlayStation 3 er mest selda leikjavél frá upphafi í Bretlandi útgáfuhelgina, en vélin seldist í 165,000 eintökum, en Nintendo Wii seldist í 105,000 eintökum fyrstu helgina og Xbox 360 í 70.000 eintökum.
PlayStation 3 er miklu meira en bara leikjatölva, og er í raun afþreyingarkerfi sem spilar Blu-ray myndir, sem að er næsta kynslóð mynddiska sem skarta svo skýrum myndgæðum að þér finnst þú vera á staðnum. Einnig inniheldur tölvan netsamfélag sem brýtur blað í samskiptum og gagnvirkni. Í PlayStation 3 er 60GB harður diskur þar sem eigendur vélarinnar geta geymt allt sitt efni á, nettenging er þráðlaus og á PlayStation 3 er HDMI tengi sem gerir kleift að ná hæstu upplausn í háskerpu eða 1080p. Blu-ray diskarnir taka 25GB að efni sem nýtist vel í næstu kynslóð kvikmynda og leikja. En ekki nóg með þetta, því PlayStation 3 býður uppá endalausa tengimöguleika - tengdu USB tæki, Memory Stick, SD eða CompactFlash eða tengdu PSP tölvuna þráðlaust við PlayStation 3 til að njóta afþreyingar á ferðinni.
Stýripinni PlayStation 3 inniheldur svokallaða SIXAXIS tækni, sem að er innbyggður hreyfiskynjari sem skynjar allar hreyfingar leikmanna og nýtist gríðarlega vel í flestum leikjum.
Á útgáfudegi vélarinnar komu ótrúlega margir leikir og er fjölbreytni þeirra gífurleg. Meðal helstu leikja eru :Resistance: Fall of Man™, MotorStorm™, Genji™: Days of the Blade, FORMULA ONE CHAMPIONSHIP EDITION og Ridge Racer™ 7, Godfather Don's Edition, Virtua Fighter V, Call of Duty 3, Tony Hawk's Project 8 og Def Jam Icon svo einhverjir séu nefndir og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Sent: Mán 09. Apr 2007 18:24
af Amything
Djöfull er mikill FNYKUR af þessu. Verst að fólk kaupir þetta kjaftæði.
Sent: Mán 09. Apr 2007 19:32
af zedro
Amything skrifaði:Djöfull er mikill FNYKUR af þessu. Verst að fólk kaupir þetta kjaftæði.
Ertu að gefa í skyn að BT sé að segja ósatt
omygash
Sent: Mán 09. Apr 2007 22:48
af kristjanm
Zedro skrifaði:Amything skrifaði:Djöfull er mikill FNYKUR af þessu. Verst að fólk kaupir þetta kjaftæði.
Ertu að gefa í skyn að BT sé að segja ósatt
omygash
Nei það myndi BT aldrei gera, BT eru eitt heiðarlegasta fyrirtæki á landinu og hugsa bara um það sem er viðskiptavininum fyrir bestu, ekkert annað.
Sent: Þri 10. Apr 2007 00:36
af Birkir
Það er náttúrulega alveg rosalegt hype í kringum ps3, miklu meira en var í kringum xbox360 og wii.
Sent: Þri 10. Apr 2007 01:51
af gumol
Ekki sambærilegt, nóg til af PS3 en Xbox seldist upp (ef það sem hefur komið fram hér er rétt)
Sent: Þri 10. Apr 2007 02:00
af Pandemic
Er ég sá eini hérna sem sá fréttir þess á Digg að danir hefðu bitið agnið sem sony setti út og allar aðrar evrópuþjóðir gefið skít í ps3?
Veit allavegana fyrir víst að þetta var versta launch af öllum tölvunum í Frakklandi.
salesfigures
önnur skemmtileg frétt sem reyndar segir að uk launchið hafi verið í gott en salan minnkar skuggalega mikið.
Og ég fann ekki DK fréttina
Sent: Þri 10. Apr 2007 14:40
af Harvest
kristjanm skrifaði:Zedro skrifaði:Amything skrifaði:Djöfull er mikill FNYKUR af þessu. Verst að fólk kaupir þetta kjaftæði.
Ertu að gefa í skyn að BT sé að segja ósatt
omygash
Nei það myndi BT aldrei gera, BT eru eitt heiðarlegasta fyrirtæki á landinu og hugsa bara um það sem er viðskiptavininum fyrir bestu, ekkert annað.
Já, og þeir eru líka ódýrastir!
Sent: Þri 10. Apr 2007 21:25
af ÓmarSmith
Bwahahahaha ....
BT = fínt fyrir gamla fólkið.
Sent: Mán 30. Apr 2007 15:33
af arnifo
rétt að salan á ps3 fór vel af stað, en hún stendur líka í stað núna. Hjá Elko eru búnar að vera til heill hellingur af PS3 í u.þ.b. viku og enn hefur ekki eitt einasta eintak selst og fólk er heldur ekkert að spurja um hana.
Sent: Lau 19. Maí 2007 19:02
af Semboy
Ég fékk mér Playstation 3 bara fyrir Ground Theft Auto 4
Sent: Lau 19. Maí 2007 19:06
af Semboy
ÓmarSmith skrifaði:Bwahahahaha ....
BT = fínt fyrir gamla fólkið.
ég skil ekki þessa dagana, það eru allir að öðvunda Bt
Sent: Lau 19. Maí 2007 19:29
af ICM
Semboy verst að hann er hannaður fyrst á Xbox 360 og verður að öllum líkindum með betri grafík á 360 (þeir nota einungis 360 til að sýna fjölmiðlum) auk þess að vera með slatta exclusive episodic content.
Ef þú ert með harðan disk í vélinni þinni þ.e.a.s. -Á Core vélum verður hann lakari með lengri loading tíma t.d. en það má búast við lengri loading tímum á PS3 útgáfunni vegna þess hversu hægt Blu-Ray drifin snúast.
PS3 er að seljast hrikalega illa í USA, ásættanlega í evrópu og la la í Japan. USA er stærsti leikjamarkaðurinn og miklu betri leikir sem eru gerðir fyrir þann markað en Japan -ef þú ert ekki hrifin af Anime og fantasíum.
Sent: Lau 19. Maí 2007 20:07
af Pandemic
Sony menn eiga enga Exclusive titla eftir þegar Forza 2 Motorsport kemur út, hann á eftir að eigna sér Gran Turismo miðað við það sem ég hef séð úr honum.
Sent: Lau 19. Maí 2007 22:25
af SolidFeather
Pandemic skrifaði:Sony menn eiga enga Exclusive titla eftir þegar Forza 2 Motorsport kemur út, hann á eftir að eigna sér Grand Turismo miðað við það sem ég hef séð úr honum.
Þú kannt ekki að skrifa Gran Turismo og telst því ekki með
Sent: Lau 19. Maí 2007 22:59
af ICM
Forza er of raunverulegur fyrir suma
Sent: Sun 20. Maí 2007 00:56
af HemmiR
Semboy skrifaði:Ég fékk mér Playstation 3 bara fyrir Ground Theft Auto 4
já er það? veistu ég mun ekki fá mér ps3 utaf e-rjum screenshottum ég vil fá að sjá þetta með berum augum.. við munum nú allveg eftir hvernig var með tekken leikinn sem var bara photoshoppaður i klessu og svo sagt að grafíkin væri þannig eða e-ð álika