Síða 1 af 1

XBOX 360 með HDMI tengi

Sent: Lau 06. Jan 2007 00:14
af ManiO
Engadget var að leka út mynd af prototype XBOX360 þar sem er HDMI tengi Mynd

http://www.engadget.com/2007/01/05/the- ... me-zephyr/

Sent: Lau 06. Jan 2007 01:19
af Harvest
Hvenær á markað??

Hætti við að kaupa xbox 360 á seinustu sec. í dag. :)

Is this a sign or what :D

Sent: Lau 06. Jan 2007 01:22
af ManiO
Harvest skrifaði:Hvenær á markað??

Hætti við að kaupa xbox 360 á seinustu sec. í dag. :)

Is this a sign or what :D


Lol, góður :D En því miður engin dagsetning, bara "soon".

Sent: Lau 06. Jan 2007 01:25
af Harvest
Lol, góður :D En því miður engin dagsetning, bara "soon".


Ahh... trúi þér ekki!

Hata þetta soon bull... en ´þó ég kaupi ekki með hd tenginu... gæti ég þá ekki spilað í hd? kemur ekki eitthvað dót til að spila hd við eldri vélar?

Sent: Lau 06. Jan 2007 01:30
af Genezis
Vélin eins og hún er í dag sendir alveg frá sér HD merki - það er jú einn af helstu sölupunktunum hjá Microsoft. Þú notar þá annað hvort component eða VGA til þess (getur fengið VGA->DVI millistykki ef þess þarf). Munurinn er að það eru hliðræn (e. analog) merki, HDMI er stafrænt (e. digital) og getur bæði borið mynd og hljóð.

Annars er ekkert víst að þetta sé ósvikin mynd eða þá að vélin komi á markað (gæti verið concept/beta/developer vél).

Sent: Lau 06. Jan 2007 01:36
af @Arinn@
maður sér það alveg að þetta er ekki ósvikin mynd að það myndi ég halda.

Sent: Lau 06. Jan 2007 01:45
af Harvest
þannig að þið eruð að segja að ég eigi að fara á morgun að kaupa boxið???

er hún ekki bara til í bt og í start??

vitiði kanski um eitthverja staðir þar sem hún er ódýrar?

Sent: Lau 06. Jan 2007 01:59
af DoRi-
@Arinn@ skrifaði:maður sér það alveg að þetta er ekki ósvikin mynd að það myndi ég halda.

double negative?


en ætli það yrði innbyggt hddvd drif?
svo las ég einhverstaðar að það ætti að breyta vélbúnaðinum eitthvað

Sent: Lau 06. Jan 2007 02:01
af Genezis
Ef að þú hefur áhuga á 65nm CPU (sem á að skila sér í lægri hita), 120 gb og HDMI tengi skaltu bíða. Það er talið (talið, ekki heldur ÖRUGGT) að Microsoft svari þessu á CES sem er haldið í næstu viku (mánudag-miðvikudag). Það er nú ekki langt í það.

Þitt er valið - en Elko á að vera með vélina ódýrast (hvort hún er uppseld í augnablikinu veit ég eigi). Held að Max sé einnig með hana til sölu. Ef Max er með hana ódýrar áttu að geta fengið endurgreiddan mismuninn + 5% af honum aukalega frá Elko.

Ef ég tek dæmi: Segjum að hún sé á 42 þús í Max en 43 þús í Elko. Þá áttu að fá 1.050 kr. endurgreitt frá Elko (1 þús mismunur + 5% sem er 50 kr.). Einnig býður Elko upp á viðbótartryggingu fyrir 4 þús minnir mig - þá er vélin í ábyrgð í þrjú ár en ekki tvö ár. Færðu þá nýja vél ef vélin bilar, eyðileggst af slysförum (t.d. að þér takist að hella gosi inn í vélina einhvern veginn :P) eða ef henni er stolið.


Nú er komin mun haldbærri sönnun fyrir þessu, ég efast stórlega um að þetta sé allt saman falsað (skoðið einnig myndbandið): Ýtið hér

Sent: Lau 06. Jan 2007 15:25
af @Arinn@
DoRi- skrifaði:
@Arinn@ skrifaði:maður sér það alveg að þetta er ekki ósvikin mynd að það myndi ég halda.

double negative?


en ætli það yrði innbyggt hddvd drif?
svo las ég einhverstaðar að það ætti að breyta vélbúnaðinum eitthvað


Núna ertu kominn með sönnun.......

Sent: Lau 06. Jan 2007 15:54
af SolidFeather
Þetta er allt fake! Rabble rabble rabble!

Sent: Þri 16. Jan 2007 17:26
af ÓmarSmith
Nei reyndar er þetta alveg skothellt.

Xbox er að koma með þessa vél með DVI og HDMI tengi en innbyggt HD-DVD er ekki á leiðinni. Það er hægt að kaupa það sem aukabúnað og kostar ekki nema 200 dollara. Vélin er margfalt sölumeiri svona með HD-DVD sem aukabúnað en að hækka hana í verði um 2-350 dollara og hafa innbyggt HD-DVD. Það kæra sig ekkert allir um það.

Einnig er að koma nýr örri í vélina sem er 65nm en það er reyndar löngu vitað. Hugsanlega kemur hún líka með stærri disk en 120Gb er ekkert skothelt.

Sent: Þri 16. Jan 2007 21:50
af SolidFeather
Gleymdi [sarcasm][/sarcasm]

Sent: Þri 16. Jan 2007 22:48
af ManiO
SolidFeather skrifaði:Gleymdi [sarcasm][/sarcasm]


Persónulega fannst mér það óþarfi :wink:

Sent: Mið 17. Jan 2007 00:33
af gnarr
ÓmarSmith skrifaði:Hugsanlega kemur hún líka með stærri disk en 120Gb er ekkert skothelt.


Núverandi útgáfan er nú með 20GB disk, svo að 15GB er ekki beint stærri diskur.

Sent: Mið 17. Jan 2007 08:32
af ÓmarSmith
Hvar talaði um 15GB disk ?

R u High :lol:

Sent: Mið 17. Jan 2007 09:09
af Blackened
munurinn á Mb og MB ;)

Sent: Mið 17. Jan 2007 09:19
af Tappi
gnarr skrifaði:Núverandi útgáfan er nú með 20GB disk, svo að 15GB er ekki beint stærri diskur.


hahaha
Þér finnst svo rosalega gaman að leiðrétta fólk með bita og bæti

Sent: Mið 17. Jan 2007 10:01
af gumol
ÓmarSmith skrifaði:Hvar talaði um 15GB disk ?

R u High :lol:

Við munum bögga þig útaf svona eins lengi og við lifum ;)

Sent: Mið 17. Jan 2007 11:40
af gnarr
Tappi skrifaði:
gnarr skrifaði:Núverandi útgáfan er nú með 20GB disk, svo að 15GB er ekki beint stærri diskur.


hahaha
Þér finnst svo rosalega gaman að leiðrétta fólk með bita og bæti


Þetta er svona álíka og ef að fólk myndi alltaf segja: "Ég er 184metrar á hæð". Þetta er vitlaust og asnalegt, svo ég mun ekkert hætta að leiðrétta fólk með þetta.

Ómar, go help your uncle jack off a horse.

Sent: Mið 17. Jan 2007 12:30
af ÓmarSmith
hehe

Já kannski að hann eigi í vandræðum með að komast niður ;)