Mér er slétt sama hvernig leikurinn verður, ég myndi aldrei kaupa leik frá fyrirtæki eins og Valve (enda á ég líka frímiða
)... Ég meina, þvílíkir imbar! Þeir eru að framleiða einn eftirsóttasta leik allra tíma og síðan kemur bara einhver hakkari og stelur öllu? Hvað voru þeir að nota sem eldvegg? Sinclair Spectrum?
Gabe Newell er fáviti, manni líður stundum eins og hann og George W. Bush séu náskyldir, svo lík er vitleysan sem vellur upp úr þeim. Mennirnir hjá ID software eru til fyrirmyndar, þeir segja að leikurinn sé kominn á gull þegar hann er kominn á gull, ekki eins og Valve, halda að þeir geti bjargað einhverju með að segja "Hann er alveg að komast á gull!!...
Manni líður stundum eins og Valve sé í keppni við ID, því þegar einhver segir eitthvað hjá ID, þá kemur einhver frá Valve og fer að pimpa HL2....