Síða 1 af 1

"[TS] Leikjaborðtölva

Sent: Fim 19. Okt 2023 10:13
af damada
Vörulýsing
Majórinn hefur klifrað metorðastigann og er treyst fyrir miklum mannafla. Á herðum hans hvílir mikil ábyrgð en hann veit að reynsla hans og þjálfun hafa búið hann undir verkefnið eins vel og hugsast getur. Hann er reiðubúinn og einbeittur.

Majórinn í rauða liðinu er með vel samstillt herfylki undir sinni stjórn. Í því er brynbeittur og hraðskreiður Ryzen 7 7700X örgjörvi af nýjustu gerð, hrattvirkt 32GB DDR5 vinnsluminni og marghleypt RX 6800XT skjákort. Rúmgóður og leifturhraður 1TB NVMe PCIe 4.0 SSD diskurinn og vandaður 850W 80+ Gold aflgjafinn í baksveitunum tryggja stöðugar og afkastamiklar birgðarlínur.

Majórinn er með 3 ára ábyrgð sem starfsmenn okkar sjá um frá A til Ö.


Windows stýrikerfi fylgir tölvunni en hægt er að fá vélina án stýrikerfis og lækkar þá verðið um 19.500kr

Öllum tilboðum okkar má breyta, vinsamlegast hafið samband og fáið upplýsingar hjá starfsmönnum Kísildals


Kísildalur tekur einarða afstöðu gegn hvers kyns hernaðarbrölti í raunheimum og leggur til að öll stríð í framtíðinni séu háð í tölvuleikjum.

Powered by Froala Editor

Innihald borðtölvu
Aflgjafi *(Væntanlegt) Gamemax GX-850 Pro BK 850W ATX3.0 aflgjafi
Harður diskur 1TB WD Black SN770 M.2 NVMe SSD
Hljóðkort ALC897 Nahimic Audio
Kassi AeroCool Interstellar ATX turnkassi
Móðurborð ASRock B650M PG Riptide µATX AM5 móðurborð
Netkort 100/1000/2500 Mb/s (Dragon RTL8125BG)
Skjákort XFX Radeon RX 6800XT Speedster SWFT 319 16GB
Stýrikerfi Windows 10/11 Home
Vinnsluminni G.Skill 32GB (2x16GB) Flare X5 6000MHz DDR5 (fyrir AMD)
Örgjörva kæling Be quiet! Pure Rock 2 FX Black örgjörvakæling
Örgjörvi Ryzen7 7700 AM5 áttkjarna örgjörvi með SMT
Tegundarlýsing
Framleiðandi Kísildalur
Tegundarheiti Ofurstinn – Rauða liðið
Yfirlokkur Leikjaturnar
Tengimöguleikar
Diskatengi 4 x SATA3 + 2 x M.2 socket (128Gb/s + 64Gb/s)
DisplayPort 3 x v1.4
HDMI 1 x v2.1
Hljóðtengi að aftan 5 mini-jack tengi fyrir 7.1 hljóð
Hljóðtengi að framan Hljóðtengi og hljóðnematengi
USB tengi að aftan 4 x USB2.0, 2 x USB3.2 Gen1 og 2 x USB3.2 Gen2, þar af eitt type-C
USB tengi að framan 2 x USB3.0 og 1 x USB3.1 Type-C
Önnur tengi PS/2

Keypt September 2023 í Kísildal, nóta fylgir. Kostar 340.000 ný
Óska eftir tilboðum
https://kisildalur.is/category/30/products/2708