Síða 1 af 1

[TS] Gigabyte 2080 Ti (SELT!)

Sent: Fös 02. Okt 2020 14:13
af aron9133
Eg er með arsgamalt 2080 ti til sölu, (en get ekki afhent það fyrr en eg fæ nytt kort sem er i pöntun) þar sem eg nota þetta þangað til

En endilega hendið a mer tilboðum og hæst bjoðandi (og að verðið se sanngjarnt) endar með kortið!

ATH! Enn og aftur tek fram að eg get ekki afhent kortið fyrr en eg er komið með nyja kortið í hendurnar (sem er i pöntun) þannig vonandi ætti ekki að vera of langt i það

Verð a kortinu keypt var 239 þus og er dyrara vegna markaðs i dag synist mer

En happy bidding!

Pm fyrir tilboð svara ekki commentum/ drullu commentum
Þar sem eg er lika litið inna þessari siðu er best að senda sms i 6939007

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Fös 02. Okt 2020 17:27
af Harold And Kumar
Ætla bara að láta vita, ekki séns að þú fáir nálægt 200k fyrir þetta.

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Fös 02. Okt 2020 17:29
af Brimklo
Hversu langt er að nýja kortið komi?

Edit: Hef engann áhuga á að kaupa þetta kort. Finnst bara að það sé gott að hafa tímalínu fyrir manneskju sem heimskulega tekur þennan díl hjá þér.

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Fös 02. Okt 2020 18:03
af pepsico
Endilega útskýrðu þessa línu fyrir okkur hinum sem búum ekki endilega í sama heimi og þú: "Verð a kortinu keypt var 239 þus og er dyrara vegna markaðs i dag synist mer"

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Fös 02. Okt 2020 18:07
af jonsig
Held að hann sé að tala um að kortin séu dýrari í dag útaf gengisþróun

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Fös 02. Okt 2020 18:26
af DaRKSTaR
skiptir engu hvað bull verð kemur framm í dag á síðum á 2080ti, það er rusl í samanburði við 157.950 zotac kortið.. þannig að gángi þér vel með að selja kortið í dag en að afhenda það svo í framtíðinni eihverntímann, sorry en menn geta farið í næstu tölvubúð í dag og borgað 3080 kort dreift þessu eins og þeir vilja eða whatever og svo er hringt í þá þegar kortið kemur,, basicly það sama og þú ert að bjóða upp á en munurinn er sá að 3080 verður ekki notað þegar þú færð það í hendur og einhver að hjakkast á því á fullu frá því þú pantar það þar til þú færð það.

skiptir engu hvað gengið er í dag,, ef það væri lærra þá væri zotac kortið lærra en 157.950kr og það er staðreind.

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Fös 02. Okt 2020 18:55
af pepsico
Það eru engin 2080 Ti kort á Vaktinni dýrari en verðið sem hann sagðist hafa keypt sitt á. Þetta kort er ekki til lengur á lager en er ennþá á sama verði hjá computer.is, og ég held við getum öll verið sammála því að RTX 3080 lendingin sé augljóslega búin að hrista upp í verðunum á þessu korti.
Ég bíð spenntur eftir útskýringu--alveg eins og ég bíð ennþá spenntur eftir mynd af kvittun sem hann sagðist eiga frá Kísildal að selja sér i9-9900K örgjörva á 199 þúsund árið 2018, sem hann sagðist ætla að senda mér fyrir ca. tíu mánuðum, eftir að ég stóð hann að verki að ljúga að fólki um nývirði vélar sem hann var að selja.

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Fös 02. Okt 2020 21:04
af MrIce
Hérna.... hvaða pillur ertu að éta félagi og hvar get ég fengið nokkrar? Er með Geforce 6600gt sem mig langar að selja á 200þús+

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Fös 02. Okt 2020 21:24
af hilmard94
ég býð 50þ en ég get samt ekki borgað strax því ég þarf fyrst að selja GTX 1060 kortið sem ég er með núna

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Fös 02. Okt 2020 22:02
af Úlvur
80k ?

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Fös 02. Okt 2020 22:21
af Sir_Binni
90þús?

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Lau 03. Okt 2020 00:22
af einarhr
Æj sorglegt hversu lengi þú nennir að vera hössla hérna á Vaktinni =D>
Það kaupir enginn draslið þitt og þú orkar á því.

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Lau 03. Okt 2020 01:06
af Brimklo
fór yfir post history hjá þér og verð eiginlega bara að spyrja hvort þetta sé allt þýfi?

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Lau 03. Okt 2020 09:08
af sigbjartur
Vá hvað þetta eru bitur og súr comment maður.. (öfundsýki?)

Þekki ekki til hanns sölusögu en skil ekki afhverju allir eru að álykta að hann vilji fá fáranlegt og ósanngjarnt verð fyrir kortið?
Hann vill fá tilboð og hæst bjóðandi fær kortið, afhverju eru allir að búa til draugasögur í kringum uppoð haha?
Verðlöggur velkomnar en það er ekki einu sinni neitt verð... ÞETTA ER UPPOÐ..
Hann tekur fram upprunalega keypt verð og er það bara mjög eðlilegt þegar maður er að selja hluti.

En svo gæti hann alveg verið að ætlast til að fá 200k fyrir það haha, sem er absurd..

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Lau 03. Okt 2020 09:36
af Semboy
aron9133 er sanngjarn hef haft fín viðskipti við hann. Hann hefur ábyggilega ekki séð þessa frétt.

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Lau 03. Okt 2020 14:30
af Robotcop10
vil bara segja ég hef haft viðskipti við hann Aron áður, ekkert nema frábært. Keypti CPU, mobo og ram af honum og hann græjað það fyrir mig í tölvuna mína án vesen og auka kostnað

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Lau 03. Okt 2020 14:35
af pepsico
sigbjartur ímyndaðu þér heim þar sem þessi notandi setur bara þráðinn inn án þess að skrifa "Verð a kortinu keypt var 239 þus og er dyrara vegna markaðs i dag synist mer".
Setning sem gefur í skyn að verð á þessu korti hafi HÆKKAÐ þó það sé í raun komið úr sölu hér á landi, og hafði verið á SAMA verði og hann keypti það á þegar það var tekið úr sölu, og allt þetta rétt eftir að ný lína af skjákortum sem skilar miklu betri afköstum/krónu og afköstum/watt kemur út. M.ö.o. er algjörlega óréttlætanlegt að halda því fram að verð á þessum kortum hafi hækkað - sama hvort átt er við nývirði þeirra í búðum eða endursöluvirði þeirra notaðra.
Ég bíð spenntur eftir útskýringu á því hvað hann á við með þessu.

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Lau 03. Okt 2020 20:53
af sigbjartur
pepsico skrifaði:sigbjartur ímyndaðu þér heim þar sem þessi notandi setur bara þráðinn inn án þess að skrifa "Verð a kortinu keypt var 239 þus og er dyrara vegna markaðs i dag synist mer".

Algjörlega, hann hefðir mátt orða þetta "keypt fyrir x árum á x verði" og punktur.
Dýrari vegna markaðs á líklega við um gengið en þar sem þetta kort er ekki að fara koma inn á þessu nýja gengi á það algjörlega ekki við.

Þetta er allt rétt og er ég sammála með þetta orðalag.
Það breytir því þó ekki að hann sé að að biðja um tilboð og óþarfi/ósanngjarnt að hertakaþráðinn með madeup skít.. right?

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Mán 19. Okt 2020 15:20
af TheWizard
enn til?

Re: [TS] Gigabyte 2080 Ti (afhendist seinna)

Sent: Mán 19. Okt 2020 18:03
af Tbot
sigbjartur skrifaði:
pepsico skrifaði:sigbjartur ímyndaðu þér heim þar sem þessi notandi setur bara þráðinn inn án þess að skrifa "Verð a kortinu keypt var 239 þus og er dyrara vegna markaðs i dag synist mer".
Setning sem gefur í skyn að verð á þessu korti hafi HÆKKAÐ þó það sé í raun komið úr sölu hér á landi, og hafði verið á SAMA verði og hann keypti það á þegar það var tekið úr sölu, og allt þetta rétt eftir að ný lína af skjákortum sem skilar miklu betri afköstum/krónu og afköstum/watt kemur út. M.ö.o. er algjörlega óréttlætanlegt að halda því fram að verð á þessum kortum hafi hækkað - sama hvort átt er við nývirði þeirra í búðum eða endursöluvirði þeirra notaðra.
Ég bíð spenntur eftir útskýringu á því hvað hann á við með þessu.

Algjörlega, hann hefðir mátt orða þetta "keypt fyrir x árum á x verði" og punktur.
Dýrari vegna markaðs á líklega við um gengið en þar sem þetta kort er ekki að fara koma inn á þessu nýja gengi á það algjörlega ekki við.

Þetta er allt rétt og er ég sammála með þetta orðalag.
Það breytir því þó ekki að hann sé að að biðja um tilboð og óþarfi/ósanngjarnt að hertakaþráðinn með madeup skít.. right?

Því miður er hann búinn að vinna sér inn þetta orðspor.