Síða 1 af 1

MSI GTX 1080 skjákort - ASUS Z170A - i5 6600k ofl.

Sent: Fim 17. Sep 2020 22:55
af Proniel
Ég er hér með nokkra íhluti til tölu ef einhver er áhugasamur, Er ekki alveg nægilega var við markaðsvirði á þessum íhlutum í dag, þannig verðlöggur og skítköst eru velboðin, tek allt til skoðunar. Ég set einhver viðmiðunarverð þau eru alls ekki heilög.

Skjákort: GTX 1080 MSI Twin Frozr. - (SELT)
https://www.msi.com/Graphics-card/GeFor ... -X-8G.html

i5 - 6600k - 20.000 kr.
https://ark.intel.com/content/www/us/en ... 0-ghz.html

Asus Z170A - 15.000 kr.
https://www.asus.com/Motherboards/Z170-A/

Vinnsluminni - Mushkin Silverline 21333 Mhz 16GB ( 4x4GB ) - 15.000 kr.
https://www.amazon.com/Mushkin-Silverli ... B01HMZKT4W

Endilega hafið samband ef þið hafið einhverjar frekari spurningar
S: 857-7770

-Torfi Franklín

Re: MSI GTX 1080 skjákort - ASUS Z170A - i5 6600k ofl.

Sent: Fös 18. Sep 2020 00:32
af Frussi
Mín tvö sent: ég keypti 1080 fyrir tveimur og hálfu ári á 65.000 hérna á vaktinni svo ég held að þú þurfir að lækka þig talsvert þar. Fyrir utan það eru nýju 3000 kortin búin að setja markaðinn á hliðina

Re: MSI GTX 1080 skjákort - ASUS Z170A - i5 6600k ofl.

Sent: Fös 18. Sep 2020 00:34
af Sinnumtveir
Mín skoðun: þú ert hressilega yfir skynsamlegu verði á öllum hlutunum.

Re: MSI GTX 1080 skjákort - ASUS Z170A - i5 6600k ofl.

Sent: Fös 18. Sep 2020 02:02
af tobbi11
Nýtt----Notað --Nýtt
64k ------65k ----75k
2060 < 1080 < 2060 super,
--------- +4%-----+4%


Ég nenni ekki annari verðumræðu en þetta er ca. munurinn á þessum kortum svo allir geti tekið upplýsta ákvörðun

Re: MSI GTX 1080 skjákort - ASUS Z170A - i5 6600k ofl.

Sent: Fös 18. Sep 2020 02:16
af pepsico
65 þús. væri í hærri kantinum fyrir verð á 1080 Ti, sem er mun stærri bróðir 1080, svo þetta verð er auðvitað aldrei að fara að skila sér í neinum viðskiptum. Ég seldi 1080 hæstbjóðanda á 58 þúsund fyrir tvem heilum árum.

Re: MSI GTX 1080 skjákort - ASUS Z170A - i5 6600k ofl.

Sent: Fös 18. Sep 2020 12:02
af batti01
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=83821&p=714494&hilit=1080#p714494
Svipað kort fór fyrir 42 þús. fyrr í mánuðinum


https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=82077&p=711723&hilit=1080#p711723
Annað fór fyrir 50 þús í apríl á árinu.

65 þús er greinilega of mikið fyrir þetta kort miðað við fyrri verðlagningu en sama hver sölumaðurinn er, þá er alltaf til stærra fífl sem er til í að borga uppsett verð(hef stundum verið það fífl)

Re: MSI GTX 1080 skjákort - ASUS Z170A - i5 6600k ofl.

Sent: Fös 18. Sep 2020 14:55
af kallikukur
Skal taka kortið á 25 þúsund :)

Re: MSI GTX 1080 skjákort - ASUS Z170A - i5 6600k ofl.

Sent: Fös 18. Sep 2020 19:34
af Proniel
Skv ofanverðum lögreglum sýnist mér ég vera að fara að láta skjákortið fara á milli 40-50 þúsund :)

Re: MSI GTX 1080 skjákort - ASUS Z170A - i5 6600k ofl.

Sent: Fös 18. Sep 2020 21:10
af GunZi
Býð 35þ í 1080 kortið.

Re: MSI GTX 1080 skjákort - ASUS Z170A - i5 6600k ofl.

Sent: Lau 19. Sep 2020 10:24
af einar1001
seinasta svona kort seldist á 24þ á ebay, svo fær fólk aldrei meira en fólk er tilbúið að borga. 35þ er mjög gott tilboð