Síða 1 af 1

[TS]Bílskúrssala (GTX 1080, Galaxy Tab S4, RTX 2080ti ofl.)

Sent: Sun 06. Sep 2020 18:20
af Haukurj
EDIT: Eftir yfirþyrmandi magn af fyrirspurnum um GTX 1080 kortið ákvað ég að uppfæra póstin hérna. Þar sem ég vill gefa öllum sem sýndu áhuga á kortinu séns hugsaði ég að setja þetta bara sem uppboð væri sniðugast. Þar sem ég veit að ekki allir kíkja á spjallrásina endilega daglega hef ég ákveðið að gefa rúman sólarhing í þetta. Svo fram að 23:59, þriðjudagsins 8. September mun ég taka öllum boðum sem berast og ég mun posta hérna núverandi hæstaboði úr bæði pms og þráðnum fyrir hina til að sjá.

EVGA GeForce GTX 1080 FTW GAMING núverandi hæstaboð 42þ
- SELT


Var að taka til og áttaði mig á því að ég er sitjandi á fullt af tæknidóti eins og einhverskonar tölvudreki. Hugsaði að það væri betra að koma þessu í gagn hjá fólki í stað þess að safna ryki hjá mér.

Ég gerði u.þ.b. 4sec guesstimation á verðunum, svo endilega sendið boð í það sem þið hafið áhuga á í pm, skal skoða allt.

  1. PNY 2080T GeForce RTX 2080 Ti 11GB Blower - 160þ
    1. AMD Phenom II X6 Six-Core Processor 1090T (3.2GHz) AM3, Retail (Black Edition)
    2. Asus Crosshair IV Formula Socket AM3/ AMD 890FX/ CrossFireX/ SATA3.0&USB3.0/ A&GbE/ ATX Motherboard
    3. CORSAIR DOMINATOR 6GB (3 x 2GB) 240-Pin DDR3 SDRAM DDR3 1600 - Fara öll þrjú saman á 15þ?
  2. XFX ATI Radeon HD 5970 2 GB Black Edition 10þ

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Fjúff, þetta voru íhlutirnir svo er smá auka hér.

  1. Samsung Galaxy Tab S4 10.5in + S Pen + Keyboard case + charging dock - 75þ
  2. Jabra REVO Wireless Bluetooth Stereo Headphones - týndi hleðslusnúrunni notar miniusb - 6þ
  3. Razer MEGALODON - Virka enn, en driverinn frá razer er hell að reyna fá til að virka - 2þ

Er einnig með Valve Index sem ég er ekki viss hvort ég sé til í að selja en minnist á hana hér ef það er einhver sem langar að gera mér alvarlegt tilboð skal ég íhuga þau.

Eins og ég sagði voru þessi verð fljótlega ákveðin því mig langar að klára þessar sumar tiltektir. Endilega sendið mér tilboð í pm og skal skoða allt.

Re: [TS]Bílskúrssala (GTX 1080, Galaxy Tab S4, RTX 2080ti ofl.)

Sent: Sun 06. Sep 2020 21:29
af steinar993
Tek 1080 á 30 :)

Re: [TS]Bílskúrssala (GTX 1080, Galaxy Tab S4, RTX 2080ti ofl.)

Sent: Mán 07. Sep 2020 01:16
af ofvy
Tek 1080 33 :)

Re: [TS]Bílskúrssala (GTX 1080, Galaxy Tab S4, RTX 2080ti ofl.)

Sent: Mán 07. Sep 2020 10:33
af Haukurj
Jæja, ég veit ekki hvaða öskju Pandóru ég opnaði við að verðsetja 1080-inu á 30 þús, en ég vaknaði í dag og allir landsmenn og mamma þeirra voru búin að senda mér skeyti um að kaupa það. Það byrjaði meiraðsegja fólk að hækka boðin sín áður en ég komst í að svara þeim í morgun.

Þar sem ég sé það ekki raunhæft að ég vinni sem einhverskonar PM uppboðshaldari fyrir svona marga ætla ég að uppfæra aða póstin eftir smá. Skal reyna finna einhverja lausn sem er sanngjörn gagnvart öllum þeim sem hafa sýnt áhuga.