Síða 1 af 1

Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Fös 25. Okt 2019 15:31
af sandraolafsd
Er með þessa gömlu fartölvu til sölu ef einhver vill. Hafði hugsað mér að fara með hana í nova og fá inneignarnótu hjá þeim upp í einhverja aðra vöru en hugsaði með mér að það væri kannski einhver hér sem myndi vilja nýta sér hana eða einhverja parta úr henni :) Ef einhver hefur áhuga má senda mér sms eða hringja í síma 8453424. Fer annars með hana í nova í lok Nóv :)

uppfært: seld

Kveðja,
Sandra

Re: Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Fös 25. Okt 2019 16:37
af sandraolafsd
Fer ekki undir 20k

Re: Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Fös 25. Okt 2019 19:58
af Maniax
Sýnist Nova ekki taka við fartölvum en þú getur svosem prófað og sjá hvað þeir segja ;)
https://www.nova.is/endurgraeddu

Re: Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Fös 25. Okt 2019 23:41
af sandraolafsd
ohh í alvöru.. hélt þau myndu taka við öllum apple vörum, ég hef eitthvað misskilið :( en þá verður hún bara í boði hér, er búin að fá nokkur tilboð í hana svo það ætti að reddast - takk samt fyrir að benda mér á þetta :)

Re: Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Sun 27. Okt 2019 19:57
af kusi
Ertu með meiri upplýsingar um hana? Örgjörva, minni, skjástærð oþh.

Aðallega velti ég þó fyrir mér hvort hún styðji macOS 10.15 Catalina?

Re: Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Sun 27. Okt 2019 20:12
af Njall_L
kusi skrifaði:Ertu með meiri upplýsingar um hana? Örgjörva, minni, skjástærð oþh.

Aðallega velti ég þó fyrir mér hvort hún styðji macOS 10.15 Catalina?

Ef þetta er Mid-2012 vél eins og auglýsinginn gefur til kynna þá styður hún Catalina. Ef þetta er hinsvegar Late-2011 eða eldri sem gæti verið keypt 2012 þá er High Sierra nýjasta stýrikerfið sem hægt er að setja upp.
https://support.apple.com/en-is/HT210222

Re: Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Sun 27. Okt 2019 22:03
af kusi
Njall_L skrifaði:
kusi skrifaði:Ertu með meiri upplýsingar um hana? Örgjörva, minni, skjástærð oþh.

Aðallega velti ég þó fyrir mér hvort hún styðji macOS 10.15 Catalina?

Ef þetta er Mid-2012 vél eins og auglýsinginn gefur til kynna þá styður hún Catalina. Ef þetta er hinsvegar Late-2011 eða eldri sem gæti verið keypt 2012 þá er High Sierra nýjasta stýrikerfið sem hægt er að setja upp.
https://support.apple.com/en-is/HT210222


Það er einmitt það sem ég var að spá. Ég er ekki nógu sleipur í þessum mökkum til að geta séð það í hendi mér :)

En support fyrir High Sierra endar á næsta ári. Aftur er ég ekki makkakall en ímynda mér að það sé vesen.

Re: Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Mið 30. Okt 2019 15:21
af sandraolafsd
Hæ, afsaka sein svör! Ég er ótrulega léleg að finna svona út, þessi var keypt í nóvember 2012 og átti að vera nýjasta nýtt

Re: Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Mið 30. Okt 2019 15:23
af sandraolafsd
Ætla að kveikja á henni og finna allar upplýsingar

Re: Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Mið 30. Okt 2019 15:31
af sandraolafsd
Upplýsingar
Endilega látið mig vita ef það er eitthvað fleira sem vantar :)
Fer á 20 þús til þann fyrsta sem vill.

Re: Macbook Pro Fartölva 2012 Árgerð

Sent: Fim 31. Okt 2019 22:06
af methylman
Att PM