Síða 1 af 1

[TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Mið 20. Feb 2019 12:20
af GunniH
Hæ,

Er með eldri týpuna af 2411 skjánum, hann er með HDMI (60 hz), DVI (144 hz) og VGA (60 hz held ég).

Ástæða sölu er að ég var að uppfæra skjákortið og nýja kortið er einungis með HDMI og Display.

Er staðsettur í miðbæ 101, rétt hjá 3 Frökkum.

EDIT: Þetta er XL2411Z

Re: [TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Mið 20. Feb 2019 14:08
af Storm
eina sem þér vantar er active displayport yfir í dual link dvi breytistykki

Re: [TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Mið 20. Feb 2019 14:20
af GunniH
Jeb, sem ég hef ekki fundið so-far á Íslandi og m.v. Google leit[1] kostar það 18 þúsund ókomið til landsins á meðan nýr skjár kostar 40k.

Ef ég næ að selja þennan skjá á segjum 20 þúsund er ég að borga svipað jafn mikið (á milli) fyrir glænýjan skjá og ég myndi kaupa breytistykkið á.

[1] t.d. https://www.startech.com/AV/Displayport ... r~DP2DVID2

Re: [TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Mið 20. Feb 2019 14:58
af Njall_L
Er þetta ekki nákvæmlega breytistykkið sem þig vantar?
https://tolvutek.is/vara/displayport-i- ... p-dvi-4k-d

Re: [TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Mið 20. Feb 2019 15:09
af GunniH
Neib, því miður er þetta ekki dual-link active - ég er búinn að vera í samskiptum við Tölvutek (þar sem bæði skjárinn, á sínum tíma, og kortið var keypt) og eiga þeir ekki til svona breytistykki. Það er þó búið að koma ábendingu til innkaupastjóra að það gæti verið sniðugt að eiga svona.

Svona breytistykki virkar þó alveg fyrir þá sem eru með 60 hz.

Re: [TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Sun 24. Feb 2019 23:45
af walkman
Er til í að taka þennan skjá hjá þér. Ertu til í 13 þús fyrir ?

Re: [TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Mán 25. Feb 2019 01:00
af einaroli
hvað viltu fá fyrir skjain ?

Re: [TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Mán 25. Feb 2019 01:36
af DJOli
Tengið sem Njall_L postaði er Dual link dvi tengi úr displayport. Það stemmir amk við myndina sem er notuð (allir mögulegir pinnar sem DVI býður uppá).
Mynd
Það fylgir því þó, að þú verður að nota DVI-I eða DVI-D (Variantar af DVI-D og DVI-I sem merktir eru á myndinni með Dual-link stuðning).

Edit: Sé að þú minnist á Dual-link *active* sem segir væntanlega til um hvort tengið styðji actually að flytja dual-link.
Stykkið hjá Tölvutek virðist aðeins vera 4K Active, sem er ekki það sama, skilst mér.

Edit2:
Fann breytir úr DP í Active dual-link dvi, sem þýðir að ef þú tengir skjá við þetta, þá áttu að ná honum í 144hz ef hann styður 144hz.
https://www.amazon.com/DisplayPort-Dual ... B00A493CNY
Verð: $170 með toll og innflutningsgjöldum, sem gerir í dag, 20.378kr.-

Re: [TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Mán 25. Feb 2019 14:30
af GunniH
DJOli skrifaði:Tengið sem Njall_L postaði er Dual link dvi tengi úr displayport. Það stemmir amk við myndina sem er notuð (allir mögulegir pinnar sem DVI býður uppá).
Mynd
Það fylgir því þó, að þú verður að nota DVI-I eða DVI-D (Variantar af DVI-D og DVI-I sem merktir eru á myndinni með Dual-link stuðning).

Edit: Sé að þú minnist á Dual-link *active* sem segir væntanlega til um hvort tengið styðji actually að flytja dual-link.
Stykkið hjá Tölvutek virðist aðeins vera 4K Active, sem er ekki það sama, skilst mér.

Edit2:
Fann breytir úr DP í Active dual-link dvi, sem þýðir að ef þú tengir skjá við þetta, þá áttu að ná honum í 144hz ef hann styður 144hz.
https://www.amazon.com/DisplayPort-Dual ... B00A493CNY
Verð: $170 með toll og innflutningsgjöldum, sem gerir í dag, 20.378kr.-


Akkúrat og m.v. reviews þá eru þessir dual link active converterar samt ekki 100% reliable og held ég því að það besta í stöðunni sé bara að selja og nýta tækifærið í uppfærslu.

Ég þarf að halda skjánum til 5. mars, en þá lendir þessi: https://tolvutek.is/vara/benq-zowie-xl2 ... ar-svartur

Hæsta tilboð í dag er 15k.

Re: [TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Mán 25. Feb 2019 20:57
af DJOli
Ég myndi samt vera alveg viss um að nýji skjárinn styði Vesa ef þú skyldir vilja uppfæra í öðruvísi skjástand.

Re: [TS] BenQ 2411 144 hz skjár

Sent: Lau 02. Mar 2019 14:47
af OBG
Er þessi en òseldur eða ?