Síða 1 af 1

Tecshop farið á hausinn... ?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 14:04
af sveik
Ætlaði að tékka á verði á skjákortum hjá þeim núna rétt í þessu og þá blasti þetta við:

Re: Tecshop farið á hausinn... ?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 14:13
af Dúlli
Er ekki hissa. Lítur svo ótraustvekjandi út fyrir meðal mann.

Re: Tecshop farið á hausinn... ?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 16:03
af Njall_L
Conceptið við að hafa ódýrari verð og engann lager fannst mér fínt en framkvæmdin var ekki nægilega góð. Heimasíðan var óþægileg í notkun og erfitt að finna nokkuð á henni.

Re: Tecshop farið á hausinn... ?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 17:34
af GuðjónR
Það er margbúið að reyna þetta módel, það fer alltaf sömu leið. Þessi útkoma var fyrirsjáanlega allan tímann.
Þið sem tölduð ykkur vera versla ódýrt, gangi ykkur vel með ábyrðarmálin ef eitthvað bilar.

Re: Tecshop farið á hausinn... ?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 18:03
af Moldvarpan
Þeir voru með glötuðustu heimasíðu bransanum.

Svo skiptir orðspor miklu máli.

Re: Tecshop farið á hausinn... ?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 18:39
af arons4
Leit bara virkilega ófagmannlega út og ekki hjálpaði nafnið.

Re: Tecshop farið á hausinn... ?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 20:23
af asgeirbjarnason
Það er mjög leitt. Mér líkaði mjög vel við vöruúrvalið og þjónustuna hjá þeim, þó að heimasíðan hafi vissulega verið sú ljótasta sem ég hef séð.

Re: Tecshop farið á hausinn... ?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 20:37
af chaplin
Of mikið úrval og óskipurlögð vefsíða. Ég var hrifinn af hugmyndinni, en eini munurinn á þeim og að panta sjálfur að utan er smá álagning + þurfa að sjá um viðgerðir/ábyrgð sjálfur.

Re: Tecshop farið á hausinn... ?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 21:51
af ZiRiuS
Væri forvitnilegt að heyra frá þeim varðandi ábyrgðarmál...

Re: Tecshop farið á hausinn... ?

Sent: Fös 19. Ágú 2016 05:39
af HalistaX
NNNNNNNNEEEEEEEEEIIIIIIII

Ég sem ætlaði að versla við þá eftir að ég kæmi mér aftur á fætur eftir bílakaupin.... Nú þarf ég greinilega að sérpanta eitthvað rándýrt frá einni af hinum tölvuverslununum... ](*,) ](*,) :crying :crying

Sýnist Computer.is vera með sama skjá og ég ætlaði að kaupa, á 25k meira.... Svo er The Schindler's List með hann á 35k meira en Tecshop.

Ohhh, afhverju keypti ég hann ekki í sumar?

Kannski því tölvan var alltaf biluð.... Kannski.... :-k :-k