Síða 1 af 1

[TS] LG G2 (SELDUR), Gömul skjákort, örgjörvi, shuttle tölva ofl.

Sent: Mán 11. Júl 2016 22:53
af jonsson9
Sælir Vaktarar!

Ég var að hreinsa úr skápnum heima og fann miklar og gamlar gersemar, góð nostalgía sem ég fékk. Nú veit ég ekkert hvort eitthvað af þessu hafi eitthvað verðmæti eða hvort að einhver vilji eitthvað með þetta að gera but here goes :)

Basically fer þetta bara allt á uppboð eða jafnvel að þetta verði gefið ef einhver vill þetta.

Skjákort:

MSI NX6600GT 128MB

MSI NX7600GT 256MB

Nvidia GeForce 8800GT 512MB

Móðurborð og örgjörvi:

AMD Athlon 64 3500+ 2.2 GHz
MSI MS-7125 K8N Neo4
Vifta á örgjörvan að auki.
NOTE: Móðurborðið og örgjörvinn eru í kassa með aflgjafa minni og eh fleira sem má alveg fara með ef fólk vill.

Shuttle Tölva:

Shuttle tölva, keypt í tölvutækni um 2009 minnir mig.
Shuttle XPC SP35P2
Intel Core2 Duo E6600 @ 2.40GHz
Super Talent DDR2 800Mhz 2x1GB
Geisladrif
400W Aflgjafi
500GB HDD - (Ekki 100% hvort hann se með fullifemm)
Windows XP (Diskurinn fylgir með).
Eins og er, er 7600GT Skjákortið í henni, gæti fylgt með þessvegna.

Sími: //SELDUR
LG G2. Keyptur í Vodafone 2014 að mig minnir.
Vel farinn, alltaf verið í hulstri.

Uppboð á þetta shit (jafnvel gefins? Hvað veit ég :) )

Sendið mér PM fyrir frekari uppl.

Re: [TS] LG G2, Gömul skjákort, örgjörvi, shuttle tölva ofl.

Sent: Mán 11. Júl 2016 23:11
af HalistaX
jonsson9 skrifaði:
Nvidia GeForce 8800GT 512MB

Djöfulsins flashback fæ ég þegar ég sé minnst á þetta helvíti. Vinur minn fékk vél með þessu korti í fermingargjöf og gat samt ekki spilað Crysis í fullum gæðum, það flottur var Crysis. Þetta var það allra flottasta og kraftmesta á sínum tíma. Ohhh, hvað ég nagaði neglurnar á fingrum mínum af mér því mig langaði svo mikið í flotta vél sem gæti keyrt Crysis, þó það væri nú ekki nema bara í low to medium. Bölvaði PS3'ini minni allt sótsvart í leiðinni, ásamt "litlu"(17") fartölvuni minni sem ég fékk í fermingargjöf.

En svo ég snúi mér nú að efni þráðarins, er þessi Shuttle vél ekki tilvalin sjónvarpstölva? Ræður hún við 4K efni? Held það samt varla, þetta er svo gamalt kort sem þú lætur fylgja þarna með... En það er alltaf hægt að kaupa nýtt.

Re: [TS] LG G2, Gömul skjákort, örgjörvi, shuttle tölva ofl.

Sent: Mán 11. Júl 2016 23:22
af jonsson9
HalistaX skrifaði:

Uss segðu. Ég fékk nú þennan AMD Athelon örgjörva í fermingargjöf og sú upplifun að geta loksins spilað cs 1.6, man nú ekki hvort að hún höndlaði samt leikinn í 100fps :japsmile

Það var ekki fyrr en shuttle-inn kom til sögunar þar sem ég fékk þessi langþráðu stable 100fps!

Annars datt mér það í hug að kannski einhver vildi fá hana uppá sjónvarpsvél, lítil og nett. Ég hef sjálfur ekki hugmynd hvort hún gæti ráðið við það.

Re: [TS] LG G2, Gömul skjákort, örgjörvi, shuttle tölva ofl.

Sent: Mán 11. Júl 2016 23:33
af EOS
jonsson9 skrifaði:Nvidia GeForce 8800GT 512MB

Bíddu bíddu...erum við að tala um hágæða G92? \:D/ :sleezyjoe

Re: [TS] LG G2, Gömul skjákort, örgjörvi, shuttle tölva ofl.

Sent: Mán 11. Júl 2016 23:37
af jonsson9
EOS skrifaði:
jonsson9 skrifaði:Nvidia GeForce 8800GT 512MB

Bíddu bíddu...erum við að tala um hágæða G92? \:D/ :sleezyjoe

Haha nú veit ég ekki alveg :D það lýtur allavega svona út.

Mynd

Re: [TS] LG G2, Gömul skjákort, örgjörvi, shuttle tölva ofl.

Sent: Þri 12. Júl 2016 08:36
af Klemmi
Ég skal taka LG G2 á 7þús ef enginn býður betur :)

Re: [TS] LG G2 (SELDUR), Gömul skjákort, örgjörvi, shuttle tölva ofl.

Sent: Þri 12. Júl 2016 14:29
af Tesy
Hvað seturu þennan Shuttle á?

Re: [TS] LG G2 (SELDUR), Gömul skjákort, örgjörvi, shuttle tölva ofl.

Sent: Þri 12. Júl 2016 14:31
af jonsson9
Tesy skrifaði:Hvað seturu þennan Shuttle á?

Þú býður bara ;)