Síða 1 af 1

[SELDUR] [TS] Seagate 1TB USB 3.0 2.5" Flakkari

Sent: Fim 04. Feb 2016 23:15
af Guffaluff
Er með utanáliggjandi harðan disk til sölu.

- Model: SRD00F1
- 1TB
- 5.400 snúningar
- USB 3.0
- Skráakerfi: Mac, NTFS, FAT (Kaupandi ræður)

Diskurinn er nú þegar nýformattaður í NTFS skráakerfið (microsoft), en ef óskað er eftir get ég formattað hann fyrir kaupanda í Mac kerfið eða FAT. FAT virkar á bæði Mac og Windows, en er með stærðartakmörkun þar sem stök skrá getur ekki verið stærri en 4GB.

Diskurinn er keyptur 2014 og er því að nálgast 2 ára aldur, en hefur ekki verið mikið notaður. Hann hefur fyrst og fremst verið notaður við sjónvarp og hefur því ekki verið í gangi nema þegar verið var að glápa á imbann :). Það hefur sama og ekkert verið ferðast með hann, enda lítur hann út nánast eins og nýr, eins og sjá má á myndinni.

Sambærilegur diskur í ELKO kostar kr. 13.995,-

http://www.elko.is/elko/is/vorur/Flakka ... etail=true

Sjá myndir í viðhengi

Tilboð óskast :)