Síða 1 af 1

[Hætt við sölu]Nýr og ónotaður ASUS DSL-AC68U

Sent: Þri 27. Jan 2015 18:05
af dingoinn
Var kippt með heim frá Þýskalandi og þegar heim var komið kom í ljós að þetta var ADSL útgáfan en ég er með ljósleiðara.
Er ekki búinn að kveikja á honum, bara búinn að opna kassann og setja loftnetin á.

Mynd

Nánari upplýsingar: http://www.asus.com/Networking/DSLAC68U/

Hann kostar nýr 43.900 í Start, ég læt þennan á 34 þús.

Re: Nýr og ónotaður ASUS DSL-AC68U

Sent: Þri 27. Jan 2015 18:14
af worghal
Compatible with ADSL2/2+, ADSL, VDSL2, fiber and cable services for complete future-proofing

ertu viss um að þú getir ekki notað hann?

Re: Nýr og ónotaður ASUS DSL-AC68U

Sent: Þri 27. Jan 2015 18:40
af dingoinn
Sko ég kem ekki netkaplinum frá ljósleiðaraboxinu í DSL tengið, það er RJ-11 símatengill. Vanalega er WAN tengi sem tekur RJ-45 kapal, það er þannig á RT útgáfunni (RT-AC68U).

Re: Nýr og ónotaður ASUS DSL-AC68U

Sent: Þri 27. Jan 2015 18:46
af FreyrGauti
dingoinn skrifaði:Sko ég kem ekki netkaplinum frá ljósleiðaraboxinu í DSL tengið, það er RJ-11 símatengill. Vanalega er WAN tengi sem tekur RJ-45 kapal, það er þannig á RT útgáfunni (RT-AC68U).


Eins og ég skil síðuna á að vera hægt að breyta einu lan tengi í wan tengi í software.

Re: Nýr og ónotaður ASUS DSL-AC68U

Sent: Mið 28. Jan 2015 12:23
af dingoinn
Það er rétt, fór að grúska í þessu og það kom í ljós að hann býður uppá hvort tveggja sem er algjör snilld. Takk fyrir ábendinguna !